Tíminn - 23.04.1968, Qupperneq 3
ÞKIÐJUDAGUR 23. apríl 1968.
TIMINN
Neytendasamtökin 15 ára
FB-Reykjavík, sunnudag.
Nú eru liðin 15 ár frá stofn
un Neytendásamtakanna. Þótt
undarlegt megi virðast, eru
íslenzku samtökin þriðju elztu
í heiminum, en þegar Alþjóða
sam'band Neytendasamtaka var
stofnað fyrir 8 árum var full
trúum skipað til sætis eftir
stofnaldri samtaka þeirra, og
kom þietta þá í ljós.
Nú er verið að senda út tvö
tölublöð Neytendablaðsins til
félagsmanna, en brátt kemur
út stórt rit í tilefni afmælis-
ins. í afmælisritinu verður rak
iji saga samtakanna og starf
semi þeirra.
Félagsmenn eru nú um
5000—6000 talsins, en þrátt
fyrir það að margir bætist við
týnast aðrir af ým=um ástæð
um, aðallega þó vegna breyttra
heimilisfanga, og vanrækslu
um að tiilkynna slíkt. Á síðasta
ári var breytt aðferðinni við
félagaöflunina, og tekið upp
á að „hnippa kurteislega í neyt
endur og spyrja þá um áhuga
þeirra á að gerast félagar.“
Undirtektir munu hafa verið
mjög góðar og fjölgaði íélags-
mönnum um hátt á annað þús
und.
Háskólafyrirlestur
Prófessor Seve Ljungman frá
Stokkhólmsháskóla flytur tvo
fyrirlestra í boði lagadeildar
Háskólans þriðjudag 23. apríi
og föstudag 26. apríl kl. 5,30
báða dagana í 1. kennslustofu.
Fyrri fyrirlesturinn fjallar
um raunhæf úrlausnaratriði á
sviði höfundarréttar, en hinn
síðarnefndi um nokkur atriði
á sviði einkaleyfislaga og lög
gjafar um ólögmæta verzlunar
háttu.
Fyrirlestrarnir verða fluttir
á saensku, og er Ölilum heimill
aðgangur.
DEDD B ÐBBBjs
Q E G C t Ð Q ÐPj
FAUNA 1968 komin út
FB-Reykjavík, mánudag.
Fauna 1968, fjölrituð bók
með teikningum af kennurum
og nemendum 6. bekkjar
Menntaskólans í Reykjavík
veturinn 1967 til 1968 er kom
in út. Sautján teiknarar hafa
að þessu sinni séð um teikning
arnar í Faunu. í bókinni eru
257 teikningar af bæði nemend
um og kennurum. Bókin er
seld í bókaverzlun KRON í
Bankast.ræti og einnig í
Menntaskólanum í löngu frí-
mínútunum milli kl. 10.40 og
11 dag hvern. Myndin er af
Einari Magnússyni rektor
menntaskólans.
Ferðastyrkir til USA
Menntastofnuin Bandaríkj-
annia á íslandi (Ftu'ltoriglht-
stofnunin) veitir ferðastyrki
I'slendiingum, sem fengið hafa
inngöngu í háskóla eð'a aðrar
æðri meinntastof.nianir í Banda
ríkjunum á námsárinu 1968—
69. Styrkirnir nægjia fyrir ferða
bostn.aði frá Reykj-awík til þeirr
ar borgar, sem næst er við-
komandi háskóla og heim aft-
ur.
Umsóknum fylgja afrit af
skilrikjum fyirir því, að um-
sækjanda hafi verið veitt inn-
ganga í háskóla eða æðri
menntastoflniun í Bandaríkjun
um, og umsækjandi þarf að
geta sýnt, að hann geti stað-
ið strauim af kostmaði við nám
sitt og dvöl ytra. Umsækjandi
þarf að gan'ga undir sérstakt
enskuipróf á skrifstofu stofn-
unarinmar og sýna heiibrigðis-
vottorð. Umsækjendur skulu
vera íslenzkir rikisborgarar.
Umisóknareýðublöð eru af-
aflhent á skrifstofu stofnuniar-
innar, Kirkjutorg 6, 3. hæð, og
sendar í pósthólf nr. 1059,
Reykjavík fyrir 8. mai n.k.
Hver vill taka banda-
rískan sumargest?
Á þessu ári eru liðin rúm-
lega 20 ár síðan Ameriean
Field Servioe hóf að veita
gagnfræða- og menntaskóla-
nemum styi-ki til þess að
stunda nám í Bandaríkjunum.
Frá árinu 1957 hafa 164 ís-
lenzkir unglingar farið til
Bandaríkjanna á vegum AFS
og firá 1001 hefur 21 bandarií.sk
ur unglingur drvalið hér tvo
mánuði að surnri til.
A.F.S. á íslandi vill vekja
áhuga íslenzkra fijölskyldna á,
að einmitt núna er verið á
höttum eftir fjölsfcyldum, er
vilja taka bandaríska nemend-
ur inn á heimili sín. Nemend-
urnir eru bæði piltar og stúlk-
ur á aldrinum 16—18 ára. Að-
eins einn nemandi býr á
hverju heimili. Þeir koma
seint í júni og fara í lok ágúst-
miánaðar.
Viss skilyrði eru höfð í huga
við val heimila: Fjölskyldan
skal vera venjuleg, íslenzk fjöl
skylda, og foreldrar bæði orð-
in 3'5 ára. Á heimilinu sé uing-
lingur á aldrinum 16—18 ára,
að einhver tali ensku, og fram-
ar öllu, að sumargesturinm
finni, að hann sé velfcominn
og litið verði á hanin sem einn
af fjölskyldunni.
Þeir nemendur, er fcoma
hiingað, eru valdir úr hópi tuga
þúsunda nemenda, er sækja
um styrk þennan ár hvert, og
geta þvi talizt úrval banda-
rískra nemenda.
Þær fjölskyldur á íslamdi,
sem áihuga hafa á að taka
bandarískan umgling inn á
heimili sitt næsta sumar, hafi
vimsamlegast samband við Jón
Steinar Guðmundsson, Grund-
argerði 8, sími 33941.
Myndin er af þeim er hlutu styrkinn aS þessu sinni.
ÞRÍR LEIKARAR
HLJÓTA STYRK
Á laugardag voru liðin 18 ár
frá því Þjóðleikhúsið var vígt.
Það kvþld var frums. leikr. Guðm
mundar Kambans, Vér morðingj-
ar. Að lokinni sýningu kvaddi,
Þjóðleikhússtjóri Guðlaugur Rós-
inkranz, sér hljóðs og veitti þrem
ur af leikurum Þjóðleikihússins
styrk úr Menningarsjóði leikhúss
ins. Sjóðurinn var stofnaður fyrir
18 árum á vígsludegi Þjóðl.hússins
Þeir, sem hlutu styrk úr Menn-
ingarsjóðnum að þessu sinni voru
Kristbjörg Kjeld, en hún hefur
nú starfað hjá Þjóðleikkhúsinu í
10 ár. Hún hefur farið með þrjú
aðalhlutverk á þessu leikári. Stein
unni í Galdra-Lofti, Víólu í Þrett-
ándakvöldi og nú síðast Normu
í Vér morðingjar.
Þá hlaut Ævar Kvaran einnig
styrkinn, en hann hefur verið fast
ráðinn hjá Þjóðleikhúsinu frá
byrjujj og mun hafa leikið þar
fleiri hlutverk en nokkur annar
eða alls nær því 100 hilutverk.
Þriðji leikarinn sem hlaut styrk
úr, Menningarsjóðnum, að þessu
sinni var Benedikt Árnason. Nú
eru liðin 10 ár frá því hann stjórn
aði fyrsta leikritinu hjá Þjóðleik
húsinu, en alls hefur hann stjórn
að þar 21 leikxiti auk þess hefur
hann leikið þar mörg hlutverk.
Áður hafa 10 leikarar hlotið
styrk úr Menningarsjóði Þjóðleik
hússins. Styrkurinn er veittur í
þeim tilgangi að leikarar geti afil
að sér frekar menntunar í listgrein
sinni.
3000 stórvinn-
ingar hjá DAS
Nýtt happdrættisár er að hefj
ast hjá Happdrætti DAS og verð
ur starfsemi þess með sama sniði
og nú er, þ. e. verð óbreytt, kr.
75.00 á mánuði, og 3000 stórir
vinningar frá kr. 5.000.00 upp í
kr. 2.00(^000.00. Veitir happdrætt
ið jafn marga mögulcika til stór-
happs og bæði hin flokkahapp-
drættin til samans, og er þó ó-
dýrast, að því er forsvarsmenn
DAS segja.'
Verkefni þau, sem happdrættið
vinnur að, að búa í haginn fyrir
aldraða fólkið, fara ekki minnk
andi þrátt fyrir byggingar und-an
farinna ára, heldur vaxandi og
kalla eftir frekari og örari fram
kvæmdum.
Um s. I. áramót var hópur
hinina 67 ára og eldri um 1600
manns og sýnt er að um 10%
þessa fólks þarf á Wlliheimilisvist
að halda. Nú eru á öllu landinu
1050 ellivistarpláss og vantar því
í dag um 500 ellivistarpláss og
lað 5 árum liðnum um 300 til
] viðbótar. Bara í Hrafnistu einni
j eru nú yfir 300 manns á biðlista
Þessi hópur fólks, 65 ára og eldri,
| fer hlutfallslega einna mest vax
j andi með þjóðinni.
Þetta sýnir glögglega þörfina
fyrir örari framkvæmdum í bygg
ingamálum aldraðra um allt land
á næstu árum, en nýlega var
lögun Byggingasjóðs aldraðs
fólks breytt á þann/veg, að bygg
ingar eliliheimila og ellideilda út
um iand ættu aðgang að lánum
úr þeim sjóði. En einu tekjur
þess sjóðs eru 40% hagnaður Happ
drættis DAS.
Næstu verkefni Hrafnistu, þegar
létt þffur verið á mestum skuld
um og lóð lagfærð, eru byggingar
lítilla sjálfstæðra ítoúða fyrir
gömuí hjón, sem geta hugsað um-
sig sjálf og sótt sinn mat í eldhús
Hrafnistu. Er einnig mjög mikið
spurt um þessar íbúðir og beðið
eftir framkvæmdum.
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Gefin hafa verið út tvö
myntalbúm, sem ná yfir alla
íslenzku myntina allt frá
1922 og fram á þetta ár.
Myntalbúm þessi eru fram-
leidd í Danmörku hjá fyrir
tæki, sem gefið hefur út al-
búm fyrir Danmörku, Græn
land og ísland, en Frí-
merkjamiðstöðin við Týs
götu hefur fengið umboð fyr
ir þau hér á landi.
Fyrir árið 1944 voru gefinir
út 40 peningar íslenzkir, en
eftir þann tíma hafa komið
út rúmlega 50 peningar.
Fyrstu peningarnir komu
árið 1922, en þeir síðustu
voru slegnir árið 1967. í
albúmunum er einnig rúm
fyrir gullpeninginn af Jóni
Sigurðssyni. Við hvern
pening er ártal og einnig
skýrt frá því í hvaða upp-
lagi hann var sleginn. Geta
menn því fengið nokkurn
fróðleik úr albúminu.
Nokkurt rúm er fyrir ó-
slegna peninga, og er gert
ráð fyrir, að albúmin ættu
að nægja mönnum í næstu
8 til 10 ár. Þó mun ekki
vera gert ráð fyrir nýju 10
króna myntinni, sem senn
verður sef.t í umferð hér á
landi, enda ekki verið gefið
upp enn, hvernig hún lítur
út. Albúmin kosta tvö sam
an 495 krónur.
Frímerkjamiðstöðin var
’ ára 4. apríil s. 1. og fóru
eigendur þá út á nýja braut
þ. e. sölu á myntalbúmum
og handbókum og skrám um
mynt almennt. Hefur lítið
verið gert af slíku hérlendis
til þessa. Verða til sölu í
verzluninni m. a. erlendir
minningapeningar, og pen-
ingar gefnir út í ýmsu sam-
bandi t. d. brúðkaupspening
arnir dönsku.
r