Tíminn - 23.04.1968, Side 12
12
rw)r<"?!w»jfyy.gp^ir^W»'
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 1968.
Auglýsing
um áburðarverð 1968
Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftirtalinna
áburðartegunda er ákveðið þannig fyrir árið 1968:
Við skipshliS á Afgreitt á bfla
ýmsum höfnum í Gufunesi
umhverfis land.
Kjarni 33,5% N kr. 4.960,00 kr. 5.020,00
Þrífosfat 45% P2O5 — 4.220,00 — 4.320,00
Kalí klórsúrt 60%. K2O — 3.060,00 — 3.160,00
Kali br.st.s. 50% K2O — 3.980,00 — 4.080,00
Kalmammon 26% N — 3.960,00 —j 4.060,00
Kalksaltpétur 15,5% N — 3.040,00 — 3.140,00
Garðáburður 9-14-14 — 4.060,00 — 4.160,00
A Túnblanda 22-11-11 . — 4.560,00 — 4.660,00
Tvígild blanda 26-14-0 — 4.860,00 — 4.960,00
Tvígild blanda 22-22-0 — 5.020,00 — 5.120,00
Tröllamjöl 20,5% N — 6.040,00 — 6.140,00
Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki inni-
faiið í ofangreindum verðum fyrir" áburð kominn
á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og afhendingargjald
er hins vegar innifalið í ofangreindum verðum
fyrir áburð, sem afgreiddur er á bíla í Gufunesi.
— Meðalhækkun áburðar nemur 19,53% miðað
við áburðarverð 1967.
ÁBURÐARSALA RÍKISINS
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN H.F.
Steypu - hrærivélar
og fleiri áhöld til byggingarframkvæmda, er til
leigu lengri eða skemmri tíma. Sent og sótt, ef
óskað er.
Áhaldaleigan v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 1372£j.
Verzlunarstörf
Fjölskyldumaður, vanur verzlunar- og skrifstofu-
störfum, óskar eftir atvinnu utan Reýkjavíkur.
Húsnæði þarf að vera fyrir hendi, mætti t.d. vera
lítil jörð í nágrenni vinnustaðar, til leigu eða
kaups. Tilboð sendist í pósthólf 1357, Reykjavík,
merkt: „Vinna“.
VIL KAUPA
stóran kæliskáp, mætti vera með frystihólfi.
KAUPFÉLAG HRÚTFIRÐINGA, Borðeyri.
Vön HERFI
sveitavinnu óskast aftaní jarðýtu T.D. 9.
Óska eftir kaupavinnu í’ Upplýsingar í síma 1730,
sumar. Upplýsingar í síma 33145. V. Akranesi.
Glæsileg
útkoma
Sigurvegarar i 1. flokki karla, Fram. Fremri röð frá vinstri: Ragnar
Álf.__Reykjavík.____Ekki verður Árnason, Gylfi Hjálmarsson, GOnnar Þórarinsson, Arnþór Óskarsson,
ananð sagt en útkoman lijá Fram
í nýafstöðnu íslandsmóti í hand-
knattleik sé glæsileg. Félagið vanh
sigur í 5 flokkum af 7. Enda þótt
Fram hafi jafnan á síðustu árum
unnið mörg mót, er þessi útkoma
einhver sú bezta, sem félagið hef-
ur náð. Aðstaða félagsins er þó
Iéleg hvað æfingaaðstöðu snertir,
en hins vegar hefur Fram mörg-
um frábærum þjálfurum á að
skipa, sem unnið hafa óeigingjarnt
uppbyggingarstarf. Form. Hand-
knáttleiksdeiidar Fram er Birgir
Lúðvíksson og á hann einnig stór-
an þátt í þessu, en það gefur auga
leið, að til þess að ná árangri
verða þrír aðilar að haldast í hend
ur, íþróttafólkið, þjálfararnir og
svo þeir, sem sinna stiórnarstörf-
um. Birgir hefur verið formaður
deildarinanr um mörg undanfarin
Jón Friðsteinsson, fyrirliði, Ragnar Gunnarsson og Ágúst Guðmundsson.
Aftari röð: Þorgeir Lúðvíksson, þjálfari, Rúnar Vilhjálmsson, Hlnrik
Einarsson, Axel Axelsson, Guðjón Ragnarsson, Ingvar Bjarnason, Kjartan
Gíslason, Karl Bcnediktsson, Frímann Vilhjálmsson og Marteinn Geirss.
ár.
í 1. flokki karla léku Fram og
Ármann til úrslita. Leikurinn var
ekki uipp á það bezta, en Fram
var greinilega betra liðið og sigr-
aði 11:8. — f 2. flokki karla léku
Fram og FH til úrslita. Fram-pilt
arnir reyndust mun sterkari og
unnu 10:5. — f 3. flokki léku
Fram og Víkingur til úrslita. Leik
urinn var æsispennandi, einkum
undir lokin, og unnu Víkingar með
eins marks mun, 8:7.
f 1. flokki kvenna var aðeins
einn riðill og sigraði Fram í báð-
um sínum leikjum, sem voru gegn
KR og Ármanni. — f 2. flokki
kvenna léku Fram og KR til úr-
slita. Fram sigraði 5:3.
Fimmta mótið, sem Fram sigr-
aði í, var í 1. deild karla. Til gam
ans má geta þess, að samtals lék
Fram 41 leik í öllum flokkum og
sigraði í 32. Fjórum Ieikjum lykt-
aði með jafntefli, en aðeins 5 leik
ir töpuðust, þar af tveir í meist-
araflokki kvenna, en þar hlaut
Fram 3. sæti. Samt. skoraði Fram
í þessu íslandsmóti 537 mörk gegn
349 mörkum. — Sem sé góð út-
koma hjá Fram.
Sigurvegarar í 2. flokki karla, Fram. Fremri röð frá vinstri: Gunnar
Jóhannsson, Einar Matthiasson, Jón Sigurðsson, Ágúst Guðmundsson og
Marteinn Geirsson. Aftari röð: Þorgeir Lúðvíksson, þjálfari, Guðjón
Ragnarsson, Jón Pétursson, Pétur Jóhannesson, Axel Axelsson, Rúnar
Vilhjálmsson, Kjartan Gíslason, Ingvar Bjarnason og Jón Friðstelnsson,
þjálfari. (Tímamyndir Gunnar).
Sigurvegerar í 1. fiokki kvenna, Fram. Fremri röð frá vinstri: Guðrún
Valgeirsdótttr, Sigrún Guðmundsdóttir, Elín HjöHeifsdóttir, Ma rgrét
Hjálmarsdóttir, Margrét Eiríksdóttir fyriHiði og Hrafnhildur Hjartardót+ir.
ÍÞRÓTTIR
Aftari röð:.Hilmar Ólafsson, þjálfari, Þórdís Ingólfsdóttir, Guðbjörg Hjör-
Framhald af bls. 13.
sá leikmaður, sem sýnt hefur
hvað glæsilegust einstaklingsþrif
í ísl. handknattleik, Geir Hall-
steinsson, var ekki svipur hjá sjón,
virtist örþreyttur. Sennilega hef
ur Geir lagt allt of mikið á sig
í vetur, en auk þess, sem hann
er leikmaður með FH og landslið
inu, þjálfar hann marga af yngri
flokkum FH.
Mörk Fram skoruðu: Björgvin
6, Arnar 4, Pétur og Sig. E. 3
hvor, Gunnlaugur, Ingólfur, Guð-
jón, Gylfi J. og Gylfi H. 2 hver.
Mörk FH: Geir 5, Örn 4, Auðunn
og Árni 2 hvor, Birgir ög Gils
1 hvor.
Á undan léku Valur og Víking-
úr og unnu Vikingar 23:22, en
Valur hafði yfir í hálfleik 12:9.
Þetta var fyrsti og eini sigur
Vikinga í mótinu. Lokastaðan varð
þessi:
leifsdóttir, Magnea Kristinsdóttir, Erla Hafsteinsdóttir og Svandís Sigurð.
•j eriÁVli (■
Fram 10 8 1 1 215:172 17
Haukar 10 7 0 3 223:205 14
F.H. 10 5 2 3 210:201 12
Valur 10 4 0 6 197:199 8
KR 10 3 0 7 186:213 6
V'ikineur ■ 10 1 1 8 175:216 3
Sigurvegarar í 2. flokki kvenna, Fram. Fremri röð frá vinstri: Andrea
Steinarsdóttir, Kristín Orradóttir, Elín Hjörleifsdóttir, Kolbrún Þórlsdóttir,
Guðrún Sverrisdóttir og Guðriður Halldórsdóttir. Aftari röð: Ingólfur
Óskarsson, þjálfari, Sigrún Sigurðardóttir, Þórdís Ingólfsdóttir, Oddný
Sigsteinsdóttir, fyrirliði, Sigríður Magnúsdóttir og Eva Geirsdóttir.