Tíminn - 23.04.1968, Qupperneq 13
f
ÞMÐJUDAGUR 23. apríl 1968.
ÍÞRÓTTIR TÍMINN íí i ■■■■
13
FRAM Eék köttinn, en FH
var í hlutverki músarinnar
Fram kórónaði sig-
ur sinn í ÍsLmótinu
með því að vinna
meðll marka
Alf.—Reykjavík. — Hafi einhver
vafi leikið á því, atf Fram væri
verðugur fslandsmeistari í hand-
knattleik, þá hvarf ^sá vafi eins
og dökk fyrir sólu eftir leik Fram
og FH á sunnudagskvöld. Fram-
arar í essinu sínu léku sér að FH
eins og köttur að mús og unnu
leikinn með 11 marka mun, 26:15,
og vantaði þó þýðingarmikla menn
eins og Þorstein Björnsson og
Sigurberg Sigsteinsson í lið
þeirra. Auk þess, sem FH-ingar
urðu að kyngja þessu stóra tapi,
urðu þeir að sjá á eftir silfur-
verðlaununum, sem féliu í skaut
Hauka.
Sigur Fram gegn FH á sunnu-
dagskvöld, var hápunktur glæsi-
legs keppnistímabils Fram, en
samtals vann Fram sigur í fimm
Sigurvegarar í 3. flokki karla, Víkingur. Fremri röð frá vinstri; Ágúst
Þórðarson, Reynir Oigeirsson, Guðgeir Leifsson, Kristján Guðmundsson og
Kristinn Jónsson. Aftari röð: Vigfús Guðmundson, Guðmundur Stefáns-
son, Skarphéðinn Óskarsson, Guðjón Magnússon, Einar Stefánsson og
þjáifarinn, Pé+ur Bjarnason.
Ísjandsmeistarar Fram í handknattleik 1968. Fremri röð frá vinstri: Jón Pétursson, Björgvin Björgvinsson,
Gunnar Guðmundsson, Ragnar Gunnarsson, Þorsteinn Björnsson, Arnar Guðlaugsson og Pétur Böðvarsson. Aft.
ari röð: Hilmar Ólafsson, þjálfari, Hlnrik Einarsson, Gunnlaugur Hjálmarsson, Gylfi Hjálmarsson, Gylfi Jóhann
esson, Ingolfur Óskarsson, fyririiði, Vilhjálmur Knudsen, Guðjón Jónsson og Sigurður Einarsson.
(Tímamynd Gunnar)
flok'kum af sjö mögulegum í þessu
móti. ÞaS var því sérstök ástæða
fyrir Framara að gleðjast á sunnu
daginn.
Leikurinn á sunnudagskvöldið
bar merki þess, að úrslit mótsins
voru ráðin, áður en leikurinn
hófst. Bæði liðin voru óþvingúð;
engin taugaspenna. Hraðinn var
þ\ú meiri, upphlaupin fleiri og
mörkin sömuleiðis. Það var hitin
ungi landsliðsmaður í Frárn,
Björgvin Björgvinsson, sem kom
Frám á bragðið, en hann skoráði
3 fyrstu mörk Fram. Björgvin
sýndi mjög góðan leik, sömuleið-
is Ingólfur, Gunnlaugur og Sig-
urður Einarsson. Ar.nar sýndi ágæt
tilþrif, en var óheppinn í skot-
aðgerðum. Þá stóð Guðmundur
Gunnarsson, staðgengill Þorsteins
í markinu, sig vel eftir atvikum.
í hálfleik hafði Fram náð yfir-
burðarstöðunni 15:7, og í síðari
hálfleik stóð spurningin. aðeins
um það, hve stór sigurinn yrði.
FH-liðið má muna sinn fífil
fegri. Það var ekki til heil brú
í leik þess. Engin ógnun. Jafnvel
Framhald á bls- 12.
Litli bikarinn
Knattspyrnuvertíðin 1968
er hafin — „knötturinn er
byrjaður að rúlla“. Tveir
fyrstu leikirnir í Litlu bikar
keppninni voru háðir s. 1.
laugardag. Keflvíkingar
unnu ungt og efnilegt lið
Kópavogs með tveggja
marka mun, 4:2, í leik, sem
háður var í Keflavík. Á
Akranesi varð hins vegar
jafntefli milli heimamanna
og Hafnfirðinga, 3:3.
Um helgina voru leiknir
nokkrir æfingaleikir. Vest-
mannaeyingar unnu Viking
tvívegis í Eyjum, 4:2 og 6:1.
Virðist Vestmannaeyja-liðið
í góðri úthaldsþjálfun. —
Þá unnu KR-ingar (með
Þórólf í liðinu) Þrótt, 3:2.
Sigurvegarar ÍR í 2. deild. Fremri röö frá vinstri: Ásgeir Elíasson, Vil-
hjálmur Sigurgeirsson, Gyifi ingimundarson, Halldór Siguðsson, Erlingur
Lúðvíksson og Gunnar Sigurgeirsson. Aftarl röð: Slgurður Bjarnason,
þjálfari, Júlíus Hafstein, Brynjólfur Markússon, Þórarinn Tyrfingsson, fyr
irliði, Jón Sigurjónsson, Óiafur Tómasson og Gunnar Sig. formaður ÍR.
ÍR-ingar loks upp!
Valsstúlkur
unnu
Alf.—Reykjavdk. — Valsstúlk-
urnar urðu fslandsmeistarar í
handknattleik 1968 með sigri yfir
Ármanni í úrslitaleik á sunnu-
daginn, 13:11. Valsstúlkurnar sem
þarna unnu sitt 13. mót í röð
(Reykjavíkur- og íslandsmót utan
húss meðtalin), geta einkum þakk
að Sigrúnu Ingólfsdóttur sigurinn
á sunnudaginn. Hún skoraði 6 af
mörkunum og var sú liðskona
Vals, sem Ármanns-stúlkurnar
réðu ekkert við.
Sbaðan í hálfleik var 11Æ Val
í vil, en lokatölur urðu 13:11
eins og fyrr segir. Árimannsstúlk-
u:mar sýndu góð tilþrif í sókmar-
léiknum, sbr. að þær skora 9
mörk. En loksins, þegar þær byrja
að skora, brást vörnin og mark-
varzlan herfilega. Munurinn á
liðunum var í sjálfu sér lítill —
og hver veit, nema Valsstúlkurn-
ar staldri við töluna 13 og Ármann
vinni næsta mót?
íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki. Fremri röð frá vinstri: Björg Guðmundsdóttir, Guðbjörg Árnadóttir,
fyrirliði, Sigurjóna Sigurðardóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Anna Birria Jóhannesdóttir. Aftari röð: Hrafn-
hildur Ingólfsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Sigrún Ingólfsdóttir, Þórarinn Eyþórsson, þjálfari, Ragnheiður Bl.
Lárusdóttir, Þóranna Pálsdóttir og Guðbjörg Egilsdóttir.
Alf.—Reykjavík. — Eftir fjög-
urra ára setu í 2. deild, tókst
ÍR-mgum loks á sunnudaginn að
vinna sæti í 1. deild á nýjan leik.
Sigur þeirra yfir Ármanni í úr-
siitaleiknum á sunnudagnn var
ekki stór, en leiknum lauk 14:12.
En þrátt fyrir það, er greinilegt,
að ÍR var það lið 2. deildar, sem
helzt á erindi í 1. deild. Það er
skipað ungum ljónum, leikmönn-
um, sem bjóða upp á fjölbreytileg
an leik í sókn. Liðið hefur verið
að mótast og á eflaust eftir að
mótast enn betur í hinni hörðu
keppni 1. deildar.
Athyglisverðasti leikmaður ÍR
er Vilhjálmur Sigurgeirsson. Línu
sendingar hans er oft á tíðum
stórsniallar. Þá eru leikmenn eins
og Þórarinn Tyrfingsson alltaf
ógnandi, þó harkan keyri stund-
um úr hófi fram.
Staðan í hálfieik var 6:3 og í
síðari hálfleik tókst Ármenning-
um að ógna sigri ÍR um tíma. En
Ármanns-liðið var tætingslegt og
skorti festu á þeim augnablikum,
siem mest voru áríðandL
I