Tíminn - 04.05.1968, Qupperneq 13

Tíminn - 04.05.1968, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 4. maí 1968 IÞROTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR 13 Lögreglan bjargaði íslenzka landsliðinu Æstur múgur réðist að ísl. landsliðsmönnunum í handknattleik, þegar þeir fylgdust með knattspyrnuleik á Spáni. Sluppu við illan leik af vellinum. Það fór nærri illa fyrir ís- lenzku landsliðspiltunum í handknattleik, þegar þeir fóru að horfa á knattspyrnu á Spáni. Múgur og margmenni gerði sig líklegan til að ráðast á þá, þegar þeir hvöttu ítalska liðið Torino, sem þarna var að leika gegn heimaliðinu Atl etico Madrid. Leikar stóðu jafn ir, 1:1, þegar Spánverjarnir skoruðu vafasamt mark. Létu íslenzku piltamir óánægju sína í ljós með köllum, en þá skipti engum togum, að mannfjöldinn, hinir æstu áhangendur Atletico Madrid, hópuðust í kringum þá og gerðu sig líklega til að lumbra á þeim. Heilt lögreglulið dreif að og, sló skjaldborg umihverfis ís- lenzku leikmennina og forðaði þeim út af vellinum, en æstur múgurinn fylgdi á eftir. „Okk- uít leizt ekki á blikuna, þegar Iögreglumennimir smelltu upp byssuhulstrunum" sagði Gunn- •iau'gur Hjálmarsson, þegar við ræddum við hann í gær, en landsliðið kom heim í fyrra kvöld. „Spánverjamir voru al- veg óðir og lömdu án afláts á gluggana á langferðabílnum, sem við vorum í. Við þökkuðum okkar sæla að sleppa lifandi úr þessum darradansi", bætti Gunnlaugur við. Já, það gekk á ýmsu í Spán- arför handknattleiksmanna. Fyrst skellur í landslei'knum í Alicante, einhver stærsti lands leikjaósigur íslands. Síðan uppreisn með sigri í síðari landsleiknum í Madrid. Loks óeirðir á knattspyrnuvelli. Við spurðum Gunnlaug, hvort ekki hafi verið noikkur leið að forða hinu stóra tapi í Ali- cante, þrátt fyrir erfið skilyrði, en eins og kunnugt er, var leikið utanhúss í steikjandi hita. „Jú, ég myndi segja það“, sagði Gumtaugur. „Þegar okk ur var orðið ljóst, að við yrð- um að leika við þessar aðstæð ur, ákváðum við að reyna að halda knettinum sem mest. Þetta gekk bærilega til að byrja með og eftir 20 mínútna leik voru Spánverjar aðeins einu marki yfir. En þá hljóp skyndilega allt í baklás- Ótíma bær skot reynd æ ofan í æ. Við vorum flestir undir sömu sök seldir með þétta. Hefðum við hins vegar bjilýð áfram eins og lagt var fyrir, héfði leikurinn aldrei endað með þessum ósköpum. Sennilega hefðum við þó tapað, en aldrei með 12 marka mun." .— Og svo var það síðari leik urinn? ■— Já, hann var miklu já- kvæðari. Það var leikið innan húss í hinni glæsilegu íþrótta höll í Madrid. Áhorfendur voru ekki ýkja margir, eitthvað um tvö þúsund. en leiknum var sjónvarpað beint um adlan Spán. Spánverjarnir voru stað ráðnir í að endurtaka hinn glæsilega leik í Alicante en það tókst þeim ekki. Við vorum staðráðnir í því að hleypa þeim ekki of langt í byrjun og gáf um aldrei eftir. Fyrri hálfleikn um lauk með jafntefli, 9:9, en í síðari hálfleik náðum við okk ur enn betur á strik og náðum þá ágætu forskoti, 16:13. Nokkrar mínútuf voru til leiks ioka og við ákváðum að halda knettinum sem mest, með öðr um orðum að tefja, en ekki tókst betur til, að við misstum knöttinn tvisvar eða þrisvar og Spánverjum tókst í öll skiptin að skora. Var staðan þá orðin jöfn aftur, 17:17, og ^ðeíns mín úta tií leiksloka. Ingólfur Ósk arsson sagði síðasta orðið í þessari viðureign, en sigurmark ið skoraði hann með föstu gólf skoti. Við vorum sannarlega fegnir, þegar flauta tímavarðar ins gall við skömmu síðar. Fyrsti sigur á heimavelli and- stæðings var staðreynd. Framhaia a bls. 14. Og enn Guðmundur setti sitt 99. ísl.met! Alf-Reykjavík. — Sundfólkið okkar slær ekki slöku við þessa dagana. í fyrrakvöld fór fram hið svokallaða Sigurgeirsmót í Sund- hölÞnni á vegum Sundráðsins og voru þá sett þrjú ný fslandsmet. Sigrún Siggeirsdóttir úr Ármanni byrjaði á því að setja met í 400 metra fjórsundi, synti á _ 6:04,0 mín. En ekki stóð þetta íslands- met, nema í 8 mínútur, því að f síðari riðlinum synti Hrafnhild 6-0! Breiðablik burstaði Hafnfirð- j inga í Litlu bikarkeppninni á! fimmtudaginn, en leiknum lauk 1 6:0. Koma þessi úrslit sannarlega á óvart. Hvað er að, Hafnfirðing- ar? ur Guðmundsdóttir, ÍR, á nýju og enn glæsilegra meti, 5:45,7 mín. Gamla metið í þessari grein átti hún sjálf, en það var sett árið 1964 og var 6:16,4 mínútur. Þess má geta, að Hrafnhildur Kristjáns dóttir, Ármanni, synti einnig und- ir gamla metinu, en tími hennar var 6:07.0 mín. Þá var röðin komin að Guð- mundi Gislasyni, Ármanni, en hann setti nýtt íslandsmet í 200 metra baksundi, synti á 2:24,8 mín útum- Fyrra metið var 2:25,1 mín. Til gamans má geta þess, að þetta var 99. íslandsmetið, sem Guðmundur setur á ferli sínum. Eru þá ekki meðtaldar metajafn anir. Árangur í öðrum greinum, sem keppt var í, var nokkuð góður. T. d. synti Ellen Ingvadóttir, Ár manni, á 2:57,3 mínútum í 200 metra bringusundi, en árangur Guðmundur — 99. metið! hennar er nýtt stúlknamet. Þessi árangur Ellenar er mjög athygl- isverður, en fslandsmetið i grein inni er 2:54,7 mínútur og er ekki ólíklegt, að Ellen eigi eftir að sló það. Þá setti Vilborg Júlíusdóttir, Ár manni, telpnamet í 400 metra fjór sundi, synti á 6:53,5 mínútum. Námskeið fyrir íþróttakennara Dagana 28. júlí til 3. ágúst 1968 fer fr,am íþróttakennaranámskeið á vegum danska íþróttakennara- sambandsins. Námskeiðið verður haldið í Sönderborg og verður boð ið íþróttakennurum frá öllum Norðurlöndunum. Námskeiðið er bæði fyrir karla og konur, og tíu fslendingum er boðin þátttaka. Aðaiviðíangsefni v.erður kynn- ing á hinu enska leikfimikerfi Educational Gymnastics. Kennari Mr. Percy Jones Lancashire Education Authority England. Aðr ar greinar verða: Fyrir konur: Körfuknattleikur 1. og II. stig. Kennari Birthe Lem berg. Áhaldaieikfimi Sonja Niel- son. Rytmisk leikfimi (Kit Kruse). Sund (Kaj : Warming). Frjálsar íþróttir (Karen Inge Halkier). Or ientering. (Ivar Berg Sörensen). Fyrir karla: Blak. Kennari Per Göran Pérson. Áhaldaleikfimi. Kennari Ole Rasch. Frjálsar íþrótt ir. Kennari Flemming Westh. Ryt- misk leikfimi. Kennari Verner Jörgensen. Sund. Kennari Kaj Warming. Einnig verða flutt erindi og hringborðsumræður o. fl. Danska íþróttakennarasambandið styrkir tvo íslendinga (íþr.kenn.) um 500 kr. cfcinskar hvorn. Væntanlegir þátttakendur til- kynni þátttöku til Jónínu Tryggva dóttur, sími 84324 eða Árna Njálssonar sími 32805 fyrir 8. maí n k. (Stjórn íþróttakennarafélags íslands). Hrafnhildur — stórbaetti metið Kornungur og efnilegur sund- maður úr KR, Kristbjörn Magnús son, setti nýtt sveinamet í 200 metra baksundi, synti á 2:58,5 mín útum. Er þetta i fyrsta sinn, sem 1 Kristbjörn syndir 200 metra bak sund og á hann áreiðanlega eftir að bæta sig í þessari grein. í lok mótsins fór fram úrslita leikur Sigurgeirsmótsins í sund knattleik KR og Ármann léku til úrslita og var leikurinn mjög jafn og spennandi. Fyrsta hluta lauk með jafntefli, 2:2. Öðrum hluta lauk einnig með jafntefli, 1:1, en í þriðja hluta sigruðu KR- ingar, 2:0. Fjórða og síðasta hluta lauk 1:1 og lauk leiknum þvi með tveggja marka sigri KR, 6:4. Beztur hjá KR var fyrirliðinn, Sig- mar Björnsson, en hann skoraði 3 mörk. Þá sýndi Valdimar Valdi- marsson ágætan leik. Hjá Ármanni var Stefán Ingólfsson einna bezt- ur. Annars eru bæði liðin skipuð nokkuð jöfnum leikmönnum. „KríHskt" atvik úr leik KR oq Vik- ings. Magnús, markv. KR, stökk á HafliSa, miSherja Víkings, innan vítateigs, eins og myndin sýnir. Greinileg vítaspyrna, en dómarinn lokaSi augunum. (Tímam.: Róbert) Knattspyrna um helgina Rvíkurmótinu og Litlu bikar- keppninni verður haldið áfram um helgina. Tveir leikir fara I fram í Litlu bikarkeppninni í dag. ;í Kópavogi leika heimamenn gegn i Keflavik kl. 3 og í Hafnarfirði i mæta heimamenn Akranesi kl. 4. I Keflavík hefur hlotið 6 stig, Framuald a bls. 14 STUTTAR FRÉTTIR • Dundee og Leeds léku fyrri leikinn í undanúrslitum i Borgakeppni Evrópu í fyrra- kvöld. Fór leikurinn fram á velli Dundee og lauk með jafntefli, 1:1. —0— • Enska landsliðið (leik- menn undir 24 ára) sigraði Ungverja 4:0 í leik, sem háður var í Liverpool í fyrrakvöld. Er þetta fyrsti sigur liðsins i þessum aldursflokki gegn Ung- verjum. —0— • f undanúrslitum í Evrópu- bikarkeppni bikarhafa sigraði SW Hamburg Cardiff í síðari leik liðanna 3:2 og er þýzka liðið þar með komið i úrslit en fyrri leiknum lauk með jafn- tefli. —0— • Úrslit á Englandi í fyrra kvöld: Arsenal - Sheff. W. 3:2 Fulham - Stoke 0:2, WBA • West Ham 3:1. í 2. deild vann Ipswich Crystal Palace 3:1 og er með því líklegur sigurvegari í deildinni. Badmlnton íslandsmeistaramót í badminton verður sett í íþróttahúsi KR i dag kl. 1,30. Mót þetta mun verða fjölmennasta badmintonmót sem farið hefur fram á landi hér til þessa. Keppendur eru frá Reykjavík, ísafirði, Akranesi, Siglufirði, — Keflavík, Stykkishólmi og Grund arfirði. Keppt verður i meistaraflokki og fyrsta flokki — og í fjórum af fimm greinuim íþróttarinnar 1 Fratnhald á bls. 14

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.