Alþýðublaðið - 10.03.1990, Side 14
14
Laugardagur 10. mars 1990
RAÐAUGLÝSINGAR
Menntamálaráðuneytið
Laust embætti er
forseti íslands veitir
Prófessorsembætti í handlæknisfræðum við
læknadeild Háskóla íslands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjanda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, fyrir 17. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. mars 1990.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í verkið „Borgar-
holt — Aðveituæð" 1. áfangi.
Um er að ræða byggingu á um 1.000 m af steyptum
hitaveitustokki með 500 og 600 mm stálpípum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 3.
apríl 1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
|P Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í aðfærsluæðar og
dreifikerfi fyrir Hafnarfjörð 13. áfanga, Hvaleyrar-
holt — Reykjanesbraut.
Hvaleyrarholt: Heildarlengd lagna er um 2.160 m,
pípustærðir eru 0 20—0 200.
Reykjanesbraut: Heildarlengd lagna er um 650 m,
pípustærð er 0 250.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 13.
mars, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 3.
apríl 1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
P Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. borgar-
verkfræðingsins í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í
gatnagerð, lagningu holræsa og jarðvinnu vegna
vatnslagna í Vatnagarða frá Sægörðum að Holta-
vegi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 9.000 m3
Fyllingar 6.500 m3
Lagning holræsa 410 m
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 20.
mars 1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í
steypta kantsteina víðsvegar í Reykjavík. Heildar-
magn er um 23 km.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 1.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn
22. mars 1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
111 Húsverndarsjóður
MU Reykjavík
í lok apríl verður úthlutað lánum úr húsverndarsjóði
Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til við-
gerða og endurgerðar á húsnæði í Reykjavík sem
sérstakt varðveislugildi hefur af sögulegum eða
byggingarsögulegum ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja greinar-
góðar upplýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum,
verklýsingar og teikningar eftir því sem þurfa þykir.
Umsóknarfestur er til 6. apríl 1990 og skal umsókn-
um, stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur,
komið á skrifstofu garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105
Reykjavík.
Tilboð óskast í röntgenbúnað fyrir Landspítala og
Vífilstaðaspítala.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgar-
túni 7, Reykjavík.
Tilboð skulu berast á sama stað fyrir kl. 11.00 f.h.
þann 24. apríl 1990 merkt: „Útboð 3571 A + B" þar
sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóð-
enda.
f{\lNKAUPASTOFI\lUI\I RÍKISIIMS
__ BORCARUJM 7 105 RtVKJAVlK
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn mánudaginn 19. mars kl. 20.30 að
Hótel Sögu — Átthagasal.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Alþýðubandalagiö Kópavogi
Spilakvöld
verður í Þinghól Hamraborg 11.3. hæð, mánudag-
inn 12. mars kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
brosum/
í nmfarrHnni
- og altt gtnjnr betur! *
guwEPow
HAMRABORG
FÉLAGSMIÐSTÖÐJAFNAÐARMANNA
HAMRABORG 1 4A KÓPAVOGI
OPIÐ HÚS
Laugardaginn 17. mars verður opið hús í Hamra-
borg.
1.
Vinnufundir frá 13.00 til 18.00, félagar og stuðnings-
menn Alþýðuflokksins hvattir til að mæta og taka til
hendinni.
2.
Skemmtikvöld. Frá kl. 20.00 til ?????
(Þátttakendur skemmta sér léttir í lund)
Skemmtiatriði óþekkt (uppákoma)...
Skemmtinefnd.
HAMRABORG
FÉLAGSMIÐSTÓÐJAFNAÐARMANNA
HAMRABORG 14A KÓPAVOGI
Alþýðuflokkur Kópavogs
Félagsfundir alla mánudaga kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Bæjarmál, borgarfull-
trúar Alþýðuflokksins
kynna það sem efst er á
baugi.
2. Nefndarmenn gera
grein fyrir störfum í
nefndum.
3. Kosningabaráttan.
4. Rannveig Guðmunds-
dóttir alþingismaður
kemur á flesta fundi og
segir frá störfum á Al-
þingi.
ATH. Allir nefndarmenn Alþýðuflokksins eru sér-
staklega boðaðir á fund 19. mars kl. 20.30.
Fundarherferð SUJ
„Ungt fólk sem leitar nýrra leiöa"
Annar fundur: UMHVERFISMÁL.
Staður: HVERFISGATA 8—10, Rvk.
Stund: LAUGARDAGINN 10. mars, kl. 15.00.
Ungir jafnaðarmenn.
Prófkjör Alþýðuflokksins
í Borgarnesi
Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs í Borgarnesi
vegna bæjarstjórnarkosninganna.
Kosið verður í Svarfhóli við Gunnlaugsgötu, laugar-
daginn 10. mars og sunnudaginn 11. mars, kl.
14.00—18.00, báða dagana.
Rétt til þátttöku í prófkjöri hafa allir þeir er náð hafa
18 ára aldri 26. maí 1990, eiga lögheimili í Borgar-
nesi og eru ekki flokksbundnir né yfirlýstir stuðn-
ingsmenn annarra stjórnmálasamtaka sem bjóða
fram í Borgarnesi í vor.