Alþýðublaðið - 10.03.1990, Side 16
fll>\ 1111111 Mllll
Þriöjudagur 16. jan. 1990
Glæpur bróður mins var
að segja sannleikann
Ungur ísraelsmadur í heimsókn í Reykjauík
til aö fá stuöning vid aö fá bróöur sinn leystan úr fangelsi í ísrael
Me'ir Vanúnú í snjónum í Reykjavik í gærdag. ( kvöld talar
hann á fundi sem haldinn verður á Hótel Borg til stuðnings
bróður hans, sem situr í ísraelskri prísund fyrir það eitt að
segja sannleikann sem allir þó vissu. Á sunnudag verða
haldnir tónleikar til stuðnings fanganum i Langholtskirkju.
I þrjú og hálft ár hafa
vökul augu vídeómynda-
véla gætt ísraelsmanns-
ins Mordechai Vanúnú.
Ljós logar í fangaklefa
hans allan sólarhringinn
þar sem honum er haldið
í algjörri einangrun frá
heiminum. Aðeins einu
sinni í mánuði fær hann
stutta heimsókn nánustu
ættingja en að öðru ieyti
er hann í algjörri ein-
angrun í búri sínu. Hver
er glæpur Mordechai
Vanúnú?
Glæpur hans var að segja
sannleikann. í þessu tilfelli
vildi hins vegar svo illa til
aö sannleikurinn var leynd-
armál ísraelstjórnar, það að
ísraelsmenn framleiddu
kjarnorkuvopn. „ísraelsk
stjórnvöld hafa ýmsar
ástæður fyrir því að vilja
Almenningur
kynnist
Hóskólnnum
Það verður mikið um að
vera í byggingum á vestan-
verðri Háskólalóðinni á
morgun, sunnudag. Þá verð-
ur ,,opið hús“ hjá Háskólan-
um og deildir skólans og
starfsemi kynnt almenningi. I
Þjóðarbókhlöðu gefst fólki
kostur á að kynnast öllum
deildum skólans ásamt 22
sérskólum landsins. Þar hefur
verið komið upp einum
fimmtíu kynningarbásum
þar sem líflegar kynningar
fara fram. Vísindastörf Há-
skólans verða kynnt í eigin
húsakynnum verkfræðideild-
ar og raunvísindadeildar.
Kynningin á Háskólanum fer
í raun öll fram á samfelldu
svæði á háskólalóðinni, þ.e.
vestan Suðurgötu.
VEORID
í DAG
Þykknar upp sunnanlands
að morgni laugardags
með hægt vaxandi aust-
anátt, víða verður hvasst
með snjókomu og skaf-
renningi syðst á landinu,
en talsvert hægara og úr-
komulítið i öðrum lands-
hlutum. Á sunnudag er
gert ráð fyrir austan og
norðaustan átt um land
allt. Snjókoma eða él á við
og dreif norðan- og aust-
anlands, en úrkomulaust á
suðvesturlandi.
ekki viðurkenna kjarn-
orkuvopnaframleiðslu sína
þó umheimurinn hafi lengi
vitað af henni. Þá hafa Vest-
urlandaþjóðir sínar ástæð-
ur fyrir því að taka þátt í
laumuspilinu. Ein ástæðan
er sú að ef tilvist kjarnorku-
vopna ísraelsmanna væri
opinberlega viðurkennd
ættu Bandaríkjamenn erf-
itt með að halda áfram að
veita ísraelsmönnum hern-
aðar og efnahagsaðstoð
vegna laga sem banna að
slík aðstoð sé veitt löndum
sem framleiða kjarnorku-
vopn." sagði Me'ir Vanúnú
bróður Mordechai.
Hann er nú staddur hér á
landi og dvelur hjá vina-
fólki í Fossvogshverfi í
Reykjavík og ætlar að
kynna málstað bróöur síns.
Me’ir féllst á að segja blaða-
manni Alþýðublaðsins
sögu bróður síns í gær.
Mordechai Vanúnú starf-
aði sem tæknimaður við
kjarnorkuver í Dímona í
Negev-eyðimörkinni í Isra-
el. Honum var ásamt mörg-
um fleirum sagt upp störf-
um 1985. Haustið '86 kom-
ust blaðamenn The Sunday
Times í London á snoðir
um að Mordechai ætti
myndir í fórum sínum frá
Dimona og gæti þar með
endanlega fært sönnur á að
ísraelsmenn framleiddu
kjarnorkuvopn. Mordechai
féllst á að veita blaðinu við-
tal og fá þeim myndirnar til
birtingar. Viðtalið var tekið
og fastmælum bundið að
greinin skyldi birtast 28
september ’86. En greinin
birtist ekki þann dag. Mor-
dechai varð hræddur og
óttaðist aðgerðir ísraelsku
leyniþjónustunnar.
Nokkrum dögum fyrr
hafði hann kynnst konu á
götu í London. Þegar Mor-
dechai tók að ókyrrast
hvatti hún hann eindregið
til að flýja með sér til Ítalíu
þar sem hún sagðist geta
komið honum í samband
við fjölmiðla. Þegar til
Rómar var komið tóku þau
á leigu litla íbúð. Daginn
eftir komuna til Rómar réð-
ust útsendarar ísraelsku
leyniþjónustunnar inn í
íbúðina. Þeir yfirbuguðu
Mordechai, svæfðu hann
og smygluðu honum i
böndum til ísraels án mót-
mæla ítalskra stjórnvalda.
Konan reyndist vera út-
sendari leyniþjónustunnar.
„Ekkert sást eða heyrðist
til bróður míns vikum sam-
an. Fjölskyldan vissi ekkert
hvað af honum hafði orðið,
við vorum jafnvel farin að
halda að hann hefði verið
myrtur.” Það var ekki fyrr
en bróðir minn var færður
til réttarhalda mörgum
mánuðum síðar að honum
tókst að koma skilaboðum
til okkar með þvi að rétta
fram lófann þar sem hann
hafði skrifað: „Mér var
rænt í Róm.”
Ljósmyndir af lófa bróður
míns birtust á forsiðum
margra heimsblaða en við-
brögð stjórnvalda á Vestur-
löndum létu á sér standa.
Réttarhöldin yfir Morde-
chai fóru fram með mikilli
leynd. Jafnvel gluggar rétt-
arsalarins voru byrgðir
þannig að hvorki mætti sjá
inn eða út. „Bróðir minn
var dæmdur áður en réttar-
höldin hófust,” segir Me’ir.
„Hann var úthrópaður sem
óvinur ísraelsku þjóðarinn-
ar, þó allt sem hann gerði
hafi verið að koma upplýs-
ingum á framfæri sem á
Vesturlöndum þykja sjálf-
sagðar. Jafnvel saksóknari
ríkisins sagði opinberlega
að sýkna eða sakleysi skipti
hér ekki máli heldur það að
bróöir minn fengi dóm.”
„Ég varð fyrir vonbrigð-
um með viðbrögð Vestur-
landa, í orði kveðnu segjast
þau berjast fyrir mannrétt-
indum, en þegar að því
kemur að standa vörð um
rétt einstaklinga gerist ekk-
ert.”
Ég hef ferðast um heim-
inn til að kynna málstað
Mordechai og vinna mál-
stað hans fylgi.
„Ég hef áhyggjur af and-
legri og líkamlegri heilsu
bróður míns við þær
ómanneskjulegu aðstæður
sem hann býr. Með því að
þrýsta á ísraelsk stjórnvöld
má ef til vill stytta fangelsis-
vist hans, en það tekur tíma
og þangað til held ég áfram
aö berjast.”
Fólk
Hallgrímur Snorrason,
hagstofustjóri fær það
hlutverk að verða fyrsti
ráðuneytisstjóri nýstofn-
aðs umhverfisráðuneytis,
eða þar til sú staða verður
formlega veitt. Hallgrím-
ur mun stjórna Hagstof-
unni meðfram nýja starf-
inu . . .
★
Tölvutæknin ryður sér
braut inn á öll svið þjóð-
lífsins, — jafnvel bændur
landsins eru farnir að
nýta sér möguleika tölv-
anna. í blaðinu Norður-
slóð á Dalvík er þannig
sagt frá því að Búnaðar-
samband Eyjafjarðar
gekkst nýlega fyrir tölvu-
námskeiði. Um 20 þátt-
takendur voru á nám-
skeiði Æuars Hjartarson-
ar, búfræðiráðunauts . . .
★
Konur hafa stofnað sinn
Kiwanisklúbb, Hörpu.
Soffía Jacobsen er forseti
klúbbsins, en með henni
starfa í stjórn þær Þyrí
Marta Baldursdóttir,
Edda Þorsteinsdóttir,
Svava Björg Gísladóttir
og Auöur Jacobsen. Kon-
urnar hafa þegar tekið til
við ýmis mannúðarstörf,
— fyrsta verkefni þeirra
verður aö styðja við bak-
ið á Elínu Birnu Haröar-
dóttur, sem beðið hefur í
London í mánuð að fá
grætt í sig nýtt hjarta . . .'
★
I stærsta tímariti Svíþjóð-
ar, Vár bostad, sjáum viö
að ung íslensk kona er
starfandi blaðamaður.
Hún heitir María Arna-
dóttir, mun vera Akureyr-
ingur og gift kona í Stokk-
hólmi. I síðasta blaði segir
María skemmtilega frá
miðaldra heilsu„frikum"
sem hafa það áhugamál
að baða sig í ískaldri vök
og fara þess á milli í óguð-
lega heitt sánabað . . .