Alþýðublaðið - 16.02.1985, Qupperneq 1
alþýðu
blaðið m
Laugardagur 16. febrúar 1985
33. tbl. 66. árg
25.000
eintök
Alþýðublaðið í dag er prentað í 25.000 eintökum.
Blaðið verður borið út á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og er dreifing þess nákvæm og örugg. Hér er því
um að ræða góðan auglýsingamiðil.
Alþýðublaðið mun næst koma út í þessari stærð og
þessu upplagi í næsta mánuði. Þeir sem áhuga
hafa á því að auglýsa í því blaði geta hringt í síma
Alþýðublaðsins, 81866.
VERTU MEÐ!
Stórsókn Alþýðuflokksins fyrir
réttlæti og bættum lífskjörum
# Það hefur vart farið fram-
hjá neinum að Alþýðu-
flokkurinn er í stórsókn
um þessar mundir. Nýlegar
skoðanakannanir hafa sýnt
að ef gengið yrði til kosn-
inga nú, þá yrði Alþýðu-
flokkurinn næst stærsti
stjórnmálaflokkur þjóðar-
innar og fengi þréttán þing-
menn. Þúsundir kjósenda
hafa snúið sér til Alþýðu-
flokksins á síðustu vikum.
Og sóknin er nýhafin.
Henni verður fylgt fast eft-
ir.
# Ýmislegt bendir til þess að
kosningar fari fram í sum-
ar eða síðar á þessu ári.
Ríkisstjórnin er komin að
fótum fram og getur ekki
komist hjá því að leggja
málin fyrir dóm kjósenda
fyrr en síðar.
# Undanfarnar vikur hefur
formaður Alþýðuflokksins,
ásamt þingmönnum og for-
ystumönnum fiokksins,
efnt til 60 opinna funda
víða um land. Fundaher-
ferðin er farin undir heit-
inu: „Hverjir eiga ísland?“
— Er það fámenn stétt
fjármagnseigenda eða hinn
vinnandi fjöldi.
# Metaðsókn hefur verið á
öllum þessum fundum.
Þúsundir landsmanna hafa
setið þessa fundi Alþýðu-
flokksins. Og fundaher-
ferðin stendur ennþá yfir.
# Alþýðuflokkurinn hefur
lagt fram skýr markmið og
bent á afdráttarlausar ieiðir
til að jafna tekju- og eigna-
skiptinguna í landinu og
stuðla að þjóðfélagslegu
réttlæti. Það hefur átt sér
stað stöðug tekjutilfærsla
frá launþegum til fámennr-
ar, nýríkrar stéttar stór-
eignamanna. Hinir ríku
hafa makað krókinn, en al-
mennt launafólk setið eftir;
kjör þeirra hafa rýrnað.
Þjóðinni hefur verið skipt í
tvo hópa: Lúxusþjóðina
sem lifir í vellystingum og
hinsvegar þjóð launamanna
sem vinnur lengstan vinnu-
dag í allri Evrópu en ber
skarðan hlut frá borði.
# Það verður að jafna kjör-
in. Tillögur og stefnumið
jafnaðarmanna miða að
því.
• Vertu með í sókn jafnaðar-
manna til réttlátrar skipt-
ingar þjóðartekna og í bár-
áttunni fyrir bættum lífs-
kjörum. Taktu virkan þátt í
stórsókn Alþýðuflokksins.
r
Urræði Alþýðuflokksins
í húsnæðismálunum
Þingmenn Alþýðuflokksins
lögðu fyrir nokkru frarn frum-
varp á Alþingi, þar sem leitast er
við að fyrirbyggja að versnandi
lífskjör auki greiðslubyrði verð-
tryggðra lána langt umfram eðli-
lega greiðslugetu fólks.
Þingmenn allra flokka hafa lýst
yfir stuðningi sínum við frum-
varpið, enda sjá allir að misvœgi
lánskjaravísitölu og launa hefur
leikið húsbyggjendur og kaup-
endur afar grátt hin síðari ár.
Myndir og frásagnir
úr fundaherferð
Þessi mynd er frá fundi Jóns
Baldvins og Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, í Hafnarfirði. Húsfyllir
var einsog sjá má á myndinni. /
opnu blaðsins eru fleiri myndir úr
fundaherferð Jóns Baldvins um
Island, ásamt stuttum frásögnurn
Jóns, af nokkrum eftirminnileg-
um atvikum frá yfirreiðinni.
BIs.
10 og 11
Vfegna innlausnar spariskírteina ríkissjóÓs bjóÓum viÓ
VERBTRVGGÐA
r"LT>vaxtareikni
f ......íJPTf AHir afgreiðslustaðir Samvinnubankans annast innlausn
JJLf.
Z_/ LJ z
AHir afgreiðslustaðir Samvinnubankans annast innlausn
spariskírteina ríkissjóðs og bjóða sparifjáreigendum
verðtryggðan Hávaxtareikning með vöxtum.
Hávaxtareikningur er alltaf laus og óbundinn.
Kynntu þér Hávaxtareikninginn.
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn