Alþýðublaðið - 19.02.1993, Qupperneq 1
Atvinnuleysið í Kópavogi
37 miss* vinmi
á hálfum mánuði
- þar voru 433 á atvinnuleysisskrá í gœr -
„ Uggvœnlegt ástand“, segir Guðmundur Oddsson, bœjaifulltrúi
„Þetta er uggvænlegt ástand satt að segja að ástandið mundi
og ég hef miklar áhyggjur af fara skánandi í þessum mánuði,
þróun þessara mála. Eg hélt nú en svo er greinilega ekki. Mér
Oddi kaupir bókaútgáfu
Hafsteins í Hólum
Prentsmiðjan Oddi mun í
framtíðinni hasla sér nokkum
völl í bókaútgáfu. Samningar
hafa tekist um kaup Odda á
Bókaforlaginu Þjóðsögu, en
það fyrirtæki hefur gefið út
bækur sem telja má til menning-
arlegri hluta útgáfunnar í land-
inu.
Meðal bóka sem Þjóðsaga
hefur gefið út eru Gráskina,
Gríma, ritsöfn eldri rithöfunda
þjóðarinnar, t.d. Jóns Trausta,
listaverkabækur og Árbókina í
myndum og ótalmargt annað.
Hafsteinn Guðmundsson, oft
kenndur við Hóla, hefur um ára-
tuga skeið rekið Þjóðsögu, og
það hefur hann gert að mikilli
smekkvísi, bæði í vali efnis,
sem og í bókagerð, sem hann er
rómaður fyrir. Hafsteinn mun á-
fram annast um útgáfu Árbók-
arinnar í myndum, sem margir
eiga og safna.
finnst að fjölmiðlar og aðrir
gleymi því oft hvað ástandið er
ægilegt í stærri kaupstöðunum.
Það er mikið rætt um 150 at-
vinnulausa í Bolungarvík, en
enginn talar um það í fjölmiðl-
um þegar á fimmta hundrað eru
í sömu stöðu hér í Kópavogi.
Það er beinlínis rangt að horfa
alltaf á prósentutölur, þvf að
vandamálið er miklu meira á
okkar svæði“, sagði Guðmund-
ur Oddsson, bæjarfulltrúi í gær.
Atvinnuleysið mikið í Kópa-
vogi um mánaðamótin janúar-
febrúar, þá voru skráðar 168
konur og 228 karlar á atvinnu-
leysisskrá. Núna, rúmum hálf-
um mánuði síðar hefur fjölgað
um 37 á skránni, 433 einstak-
lingar áttu engan vinnustað
lengur.
Það er uggvænlegt að sjá að
fólk á besta aldri, 29-39 ára er
40% af hinum atvinnulausu.
Einn af hverjum tíu er 19 ára
eða yngri, 27% á atvinnuleysis-
skránni eru 24 ára og yngri. í
eldri hópunum eru 14% at-
vinnulausra 60 ára og eldri, en
24% eru 50-59 ára._
Kópavogur
heimsóttur
Alþýðublaðið í dag er sér-
staklega tileinkað Kópavogi og
þaðan að finna margvíslegar
fréttir og viðtöl við fólk.
Myndin hér við hliðina er
tekin í hinn stórglæsilegu og
risastóru sundlaug þeirra í Kóp-
avogi ^
Rúmgóður fjölskyldubíll á verði smábíls
834.000,-kr!
tpO ^fiöjvus1
^mvetrarde^
Ur/>orrann!
Bílarnir fást til afliendingar strax!
Verið velkomin - Gerið verðsamanburð og reynsluakið
HYUNDAI PONY árgerð '93.
HYunoni
... til framtíðar
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁKMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36