Alþýðublaðið - 19.02.1993, Qupperneq 6
6
Föstudagur 19. febrúar 1993
- glæsileiki, ljúfur söngur, gamansemi og litadýrð í frumsýn-
✓ s
ingu Islensku Operunnar í kvöld
Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir f hlutverkum sínum í Sardasfurstynjunni.
fslenska Óperan frumsýnir í kvöld, -
og það er ævinlega mikill viðburður í
menningarlíftnu. Að þessu sinni verður
slegið á létta strengi. Sardasfurstynjan,
óperetta eftir Stein og Jenbach, með
hinni vinsælu tónlist Ungverjans
Emmerich Kálmán, er næsta viðfangs-
efni Óperunnar.
Sögusviðið eru hinar heitu og vina-
legu heimsborgir, Vín og Búdapest
snemma á þessari öld. Enda þótt
heimsstyrjöld geisi, eru ógnir vígvall-
anna fjarri glaðværum íbúunum. Að-
allinn bregður ekki af vana sínum, þótt
á fallanda fæti sé, dansar og skemmtir
sér, og lætur hverjum degi nægja sína
þjáningu.
I Kabarettinum hefur haslað sér völl
Sylva Varescu, Sardasfurstynjan sjálf,
og vekur þar aðdáun og hrifningu. Upp
hefst ástarævintýri með ungum fursta-
syni. Meira þarf ekki að segja um sögu-
þráðinn. Hann er laufléttur og kátur.
í íslensku Óperunni hefur mikið ver-
ið starfað undanfamar vikur og mánuði
að æfingum og viðamiklum undirbún-
ingi fyrir sýningar á Sardasfurstynj-
unni. Þetta er dýr og mannmörg upp-
færsla og áreiðanlega verður líf og fjör
á sviði óperunnar á næstunni.
Hér er um að ræða óperettu, eins og
gamanóperur eru kallaðar. í óperettu
fléttast saman mikil litadýrð, dans og
talaður texti milli sunginna atriða.
Óperettur áttu upphaf sitt í Frakklandi
og urðu síðar vinsælar í Austurríki og
fleirum löndum. Offenbach samdi óp-
erur, og það gerði Valsakóngurinn Jó-
hann-Strauss, yngri einnig. A þessari
öld komu söngleikir í stað óperettanna,
en engu að st'ður hafa hinar gömlu
óperettur átt talsverðum vinsældum að
fagna og eru oft settar á svið víða um
heim.
Þjóðleikhúsið sviðsetti verkið fyrri
part árs 1964 og hét það Sardasfustinn-
an í þýðingu Egils Bjamasonar. Hlaut
óperettan miklar og almennar vinsæld-
ir þá. Nú hefur verkið verið þýtt að
nýju; leiktexta þýddi Flosi Ólafsson, en
Þorsteinn Gylfason söngtexta. An efa
hafa þýðendur breytt um áherslur, nafn
óperettunnar er jafnvel ekki hið sama
og fyrr.
Óperan hefur fengið fleiri hæfa
krafta til liðs við sig. Kjartan Ragnars-
son gerði leikgerðina og er leikstjóri;
hljómsveitarstjóri hljómsveitar Is-
lensku Ópemnnar er Páll Pampichler
Pálsson; stjómandi kórs íslensku Óper-
unnar er Peter Locke og konsertmeist-
ari er Zbigniew Dubik; leikmynd er
eftir Sigurjón Jóhannsson; búninga
hannaði Hulda Kristín Magnúsdóttir;
höfundur dansa er Auður Bjamadóttir;
um lýsingu annast Jóhann B. Pálma-
son; og sýningarstjóri er Kristín S.
Kristjánsdóttir. Þetta er þó aðeins hluti
þess fólks sem ekki sést þegar fólk nýt-
ur Sardasfurstynjunnar, því 30-40
manns koma við sögu við hin ýmsu
störf við undirbúning sýningarinnar og
ýmis störf meðan á sýningum stendur.
A sviðinu em síðan margir okkar
góðu söngkrafta, lítum nánar á það úr-
valslið: Signý Sæmundsdóttir fer með
hlutverk Sylvu Varescu, en Bergþór
Pálsson með hlutverk greifans. Önnur
hlutverk fara þau með Þorgeir J. Andr-
ésson, Jóhanna G. Linnet, Sigurður
Bjömsson, Kristinn Hallsson,
Sieglinde Kahmann og Bessi Bjama-
son. Segja má að Bessi Bjamason sé
einskonar brú miili uppfærslna Óper-
unnar og Þjóðleikhússins fyrir 19
ámm, því Bessi var þá f hlutverki Boni,
en nú leikur hann Tscheppe greifa.
Margir fleiri koma við sögu á sviðinu,
herrar, liðsforingjar, gjálífisfólk, telp-
ur, þjónar og margir fleiri. Og ekki má
gleyma 35 manna kór íslensku Óper-
unnar, sem getið hefur sér hið besta
orð.
UMBÆTUR
TIL ALMANNAHEILLA
Verkefnin framundan
REYKJAVIK
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra
Alþýðuflokkurinn boðar til opins stjómmálafundar
í Súlnasal Hótel Sögu þriðjudaginn 23. febrúar kl.20.30.
Framsögumenn verða:
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra
Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra
Fundastjóri verður Össur Skarphéðinsson formaður þingflokks Alþýðuflokksins.
Alþýðuflokkurinn er afkastamikill umbótafiokkur sem hefur
almannahagsmuni að leiðarljósi.
Spurt er:
Hvaða verkefni eru framundan hjá Alþýðuflokknum?
Vilja kratar jojóðarsátt í stað sundrungar á vinnumarkaði?
Hvernig verður komist hjá frekara atvinnuleysi?
Hefur ríkisstjórninni tekist a6 bæta skuldastöðu þjóðarinnar?
Hefur endurskoðun velferðarkerfisins tekist sem skyldi?
Hvert stefnir í sjávarútvegsmálum?
Þessum spumingum og mörgum öðmm verður svarað á fundinum.
Allir velkomnir
ALÞÝÐUFLOKKURINN - JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS
Sighvatur Björgvinsson,
heilbrigðisráðherra
Össur Skarphéðinsson formaður
Þingflokks Alþýðuflokksins