Alþýðublaðið - 19.02.1993, Page 9
Föstudagur 19. febrúar 1993
9
leiðis hafa í tímans rás verið tekin upp
rannsóknargjöld.
á að halda og ákveðið að leggja sér-
staka áherslu á matvælamenntun. Það
var unnin upp námskrá með mismun-
andi brautum, stuttum og löngum, sem
miðuðust við það að nemendur gætu
sótt starfsnám sem myndi nýtast í at-
vinnulífinu þegar aukin áhersla yrði á
matvælaframleióslu hér á landi. Þá var
gert ráð fyrir að þeir sem hygðu á fram-
haldsnám á þessu sviði eftir framhalds-
skóla gæru farið beint upp úr þessum
skóla.
Eins átti Hótel- og veitingaskólinn
að vera þama til húsa til þess að dýr út-
búnaður og tæki yrðu samnýtt. Þrátt
fyrir að öllum þætti þetta prýðisgóðar
hugmyndir og á þær fallist, þá stendur
enn þann dag í dag, 10 árum seinna,
einungis opinn grunnur við Mennta-
skólann í Kópavogi þar sem matvæla-
iðjuskólinn á að rísa. Nú tíu árum síðar
er það okkur lífsspursmál að fara að
vinna betur úr hráefninu sem við eigum
og fara út í matvælaiðju í stórum stíl.
Ef við ætluðum okkur í slfka fram-
leiðslu núna þá eigum við varla til
menntað fólk til að vinna að henni.“
Hvemig meturðu póliriska stöðu rík-
isstjómarinnar í dag ?
„Ég er auðvitað mjög upptekin af
því að þessari ríkisstjóm takist að snúa
vöm í sókn. Ég er mjög upptekin af því
að andstæðingum hennar skuli hafa
tekist að koma því inn hjá þjóðinni að
sá vandi sem við eigum við að glíma
og atvinnuleysið sem við búum við sé
ríkisstjóminni að kenna.,,
Að tæta hvort annað niður
það versta
„Þetta er hins vegar vandi sem á sér
langan aðdraganda, vandi sem aðrar
Evrópuþjóðir hafa búið við og við
emm að verða fyrir núna. Okkur hefur
ekki lánast að fara inn á nýjar brautir í
atvinnumálum á liðnum ámm og í okk-
ar mikilvægasta atvinnuvegi, sjávarút-
vegi, er mikill samdráttur núna. Þá má
ekki gleyma þvf að atvinnuleysisspáin
sl. haust var mun hrikalegri en raunin
hefúr orðið.
Aðgerðir í efnahagsmálum hafa m.a.
komið í veg fyrir að fyrirtæki sem ella
hefðu lagt upp laupana hafa náð að
standa af sér hríðina. Okkur hefur hins
vegar alls ekki tekist nógu vel að koma
þessum skilaboðum til þjóðarinnar og
ég tel það brýnasta verkefni þessarar
ríkisstjómar að koma áformum sínum
vel til skila.
Ég hef reyndar af því vemlegar á-
hyggjur ef þessi tími verður valinn til
mikilla átaka á vinnumarkaði, ég tala
nú ekki um ef verkföll em framundan.
Að öðru leyti finnst mér að mjög brýnt
að okkur takist að vinna að því að
koma á fót nýjum þáttum í atvinnulíf-
inu sem illa hefur gengið fram að þessu
og að Alþýðuflokksmönnum lánist að
standa saman á erfiðum tfmum og
vinna að því sem best er fýrir okkar
þjóð. Það versta sem fyrir okkur getur
komið er að tæta hvort annað niður,
þegar mest ríður á að standa samarí',
sagði Rannveig Guðmundsdóttir al-
þingismaður að lokum í samtali sínu
við Alþýðublaðið.
Ný þjónustugjöld mjög erfið
,>I ér finnst að fyrir okkur í Alþýðu-
flokknum séu öll gjöld, sérstaklega ný
þjónustugjöld í heilbrigðisþjónustunni,
mjög erfið. Hins vegar var farið í gegn-
um þessa umræðu á flokksþingi okkar
á síðastliðnu sumri og þá kom í ljós að
r okkar flokki er ákveðinn vilji til þess
að horfa á þetta svið með vissri víðsýni
og skoða það í ljósi þess að þetta eru
orðnir mjög útgjaldaffekir málaflokk-
ar. Það hefur sýnt sig að í ríkisstjóm
höfum við þurft að standa að tillögum
um ákveðin ný gjöld eða hækkun
gjalda þar sem þau fúndust fyrir.
Ég held hins vegar að við verðum að
fara mjög varlega á þessu sviði. Sú um-
ræða sem ffam hefur farið í okkar
flokki um að viðhalda hefði átt
svokölluðum sjúkrasjóðsgjöldum
fremur en ganga lengra á þeirri braut að
taka gjöld fyrir þjónustuna á fyllilega
rétt á sér. Það er alveg ljóst að fólk er
tilbúið til að borga fyrir ákveðna sam-
neyslu. Mér finnst að fólk hafi með
mjög jákvæðu hugarfari á sínum tíma
greitt sjúkrasamlagsgjöld en þau voru
síðan felld inn í skattana. Ég held að
það sé þá miklu jákvæðara að það sé
borgað afmarkað tryggingargjald til
heilbrigðisþjónustunnar. Við Alþýðu-
flokksmenn bindum að vísu miklar
vonir við tilvfsunarkerfið sem heil-
brigðisráðherra ætlar að koma á og að í
kjölfarið lækki gjöld umtalsvert í heil-
brigðisþjónustunni. Á hinum Norður-
löndunum hefur átt sér stað svipuð þró-
un og hér, bæði hvað varðar gjaldtöku
og lyf]akostnað.“
Nýverið kom fram áfangaskýrsla um
skálastefnuna upp að háskólastiginu.
Hvemig líst þér á þœr hugmyndir sem
þar koma fram?
„Ég tel að sú skýrsla hafi verið mjög
vel unnin. Mér finnst það góð vinnu-
brögð að þar er sest yfir skólamálin og
skilgreint hvar við emm stödd og hvar
vandinn liggi. Það eru held ég allir
sammála um að það er margvíslegur
vandi núna í okkar skólakerfi. Það er
vandi fýrir marga unglinga sem eru að
stefna inn á brautir sem þeir síðan reyn-
ast ekki ráða við. Og það er vandi fyrir
okkur sem þjóð að svo stór hluti, nærri
80%, skuli stefna á stúdentspróf sem
hentar engan veginn hluta þessara
nemenda eða þjóðfélaginu.
Nefndin hefúr farið þá leið að vinna
áfangaskýrslu og setja fram tillögur til
opinnar umræðu. Hún hefur verið
gagnrýnd lýrir það, m.a. af samtökum
kennara, en ég held að það sé mjög
mikilvægt að á þessu stigi sé ekki búið
að koma fram með einhverjar mála-
miðlanir heldur að setja fingurinn beint
á vandann og kalla síðan fram umræðu
um þau mál sem víðast úti í samfélag-
inu.“
Þessi skýrsla er órædd á milli stjóm-
arflokkanna en tillögur sem þama
koma fram fara saman með þeim hug-
myndum sem Alþýðuflokkurinn hefur
sett fram um eflingu grunnmenntunar
og að auka beri meira starfsmenntun-
ina. I því efni vil ég benda á hversu lok-
uð stjómvöld hafa verið fyrir nýjung-
um og eflingu starfsmenntunar á nýj-
um sviðum. Fyrir 10 ámm var í Kópa-
vogi, að frumkvæði þeirra bæjarstjóm-
ar sem þá sat og ég átti reyndar aðild
að, unnin námsskrá fyrir væntanlegan
fjölbrautaskóla sem stofnsettur var þá.
Það var ákveðið að fara ekki inn á
sömu svið og í samkeppni við þá fjöl-
brautaskóla sem vom hér í kringum
okkur. Fremur að líta til framtíðar um
hvers konar menntun þessi þjóð þyrfti
!ÝR PIRÐAB/IHLIN6UR FLUCLtlPA |R KOMINN ÚT!
Sólarstrendur, heimsborgir, hraðbrautir, sveitavegir, fjölskyldustaðir ogframandi
| lönd. Aldreijafn bjart framundan áferðadri Flugleiða. Ótal ferðamöguleikar.
vHagstœð kjör. Úrvalsþjðnusta. Komdu með Flugleiðum út í heim. - Nýi
\ I ferðabæklingurinn ásamt verðskrá liggur frammi á söluskrifstofum Æt
\ okkar, hjá umboðsmönnum u
allt land og áferðaskrifstofu
Traustur tslenskur ferðafélagi
■ .1 ' W i#-. ■ tieillandi heims-
vJ borgir beggja vegna
Atlantsbafs
fltig, gistimöguleikar við allra htsfi. Hress-
í ing, skemmtun og verslun. Flug og borg:
\ einfalt, freistandi, hagstcett og umfram
\ allt stór-skemmtilegt.
\ V*B0 TILIXWDON t.ds,
> jJ frá 32.250 á manninn m.v.
2 fullorðna og 1 bam (2-11 ára) í 4 daga.
(Frá 33.200 kr. m.v. 2 fullorðna 14 daga.)
Frábærar ökuleiðir út
WmVÆMÆm. dlum áfangastöð-
|| um Flug/eiða austan
hafs og vestan. Úrvals bílaleigubílar frá
Hertz. Einfalt, ódýrt, auðvelt og umfiram ,
allt eins og þú vilt hafa það.
28.560 kr. á manninn m.v. 2 fullorðna
og 2 börn 2-11 ára) í bil í B-flokki t
tvier vikur. (Frá 38.600 kr.
trt.v. 2 fullorðna í
btl t A-fl. i2 vikur.) URMlfjjL
Mb Florida-Orlando: Frá-
bar fjölskyldustaður
‘N allan ársins hring.
G öiareelona,
Í' A1 tlanó. Sólar-
R staðir allt í kringum
Miðjarðarhaf. Flug og sól: einfalt,
'yndislegt, hagstcett og umfram allt bara ceðislega gott.
m ORLANDO t.d.\ jra 5J 200 kr. a tnanntnn
m.v. 2 fullorðna og 2 börti (2-11 ára) 19 daga íEnclave Snites.
(Frd 64.100 kr. in.v. 2 fullonhia í 9 daga íEnclave Suites.)
ÍEl E5
Ath. fhigvallarskattar eru ekki inmfaldir ítilgmndu verði. ísland: 1.230 kr., USA: 1.363 kr.