Alþýðublaðið - 19.02.1993, Blaðsíða 10
10
Föstudagur 19. febrúar 1993
Ungir jafnaðarmenn
Líflegt starfí Kópavogi
Félag ungra jafnaðarmanna í Kópavogi (FUJ-Kópavogi)
var endurreist seint á síðastliðnu ári, nánar tiltekið þann
28. október. Haldinn var svokallaður „endurreisnaraðal-
fundur“ með pompi og prakt, nýtt fólk kosið í stjórn og
flunkuný lög samþykkt. Að aðalfundinum loknum voru
herlúðrar þeyttir og boðað til ráðstefnu þetta sama kvöld.
Ráðstefnan hafði yfirskriftina „ÍSLAND/KÓPAVOGUR
- Færeyjahagfræðin í hávegum?“
Stefán Hrafn Hagalín formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Kópavogi. Hann er
jafnframt framkvæmdastjóri SUJ.
Framsögu höfðu Jón Bald-
vin Hannibalsson formaður
Alþýðuflokksins, Jón Sig-
urðsson iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, Rannveig Guð-
mundsdóttir alþingismaður, Guð-
mundur Oddsson bæjarfulltrúi í
Kópavogi og Sigurður Pétursson
formaður Sambands ungra jafnað-
armanna (SUJ).
Ráðstefnugestir voru fjölmargir
og kynslóðabilið var fullkomlega
brúað því dágóður hópur af eldri
krötunum í bænum lét sjá sig.
Kannski ekki að furða þótt mæting-
in væri góð því langt var síðan jafn-
margir „þungavigtarkratar" vom
framsögumenn á einum og sama
fundinum í Kópavogi - og þó víðar
væri leitað.
Félag ungra jafnaðarmanna í
Kópavogi er nokkurra ára gamalt.
Einhverra hluta vegna hefur gengið
treglega að halda uppi starfsemi
þess mörg undanfarin ár. Undan-
fama fjóra mánuði hefur verið unn-
ið hörðum höndum við að snúa vöm
í sókn og hefur það tekist allbæri-
lega.
Félagið er þegar orðið eitt af
stærri aðildarfélögum Sambands
ungra jafnaðannanna og ungir
Kópavogsbúar famir að setja mark
sitt á starfsemi þess. Ungir jafnaðar-
menn úr Kópavogi eiga menn í
háum embættum innan SUJ.
Til dæmis er varaformaður SUJ
Kópavogsbúi og fonnaður FUJ-
Kópavogi er jafnframt fram-
kvæmdastjóri SUJ. Einnig eigum
við menn í fastanefndum SUJ, sam-
bandsstjóm SUJ og flokksstjóm Al-
þýðuflokksins.
Tíðir fundir eru haldnir í stjóm fé-
lagsins og einnig hafa verið haldin
skemmtikvöld. Ungir jafnaðarmenn
vom fjölmennir á 40. þingi SUJ sem
haldið var í Munaðarnesi í nóvem-
ber 1992. Reyndar vom Kópa-
vogskratamir næstfjölmennasti
hópurinn á eftir Reykvíkingunum.
Fámenni úr Kópavoginum er
greinilega liðin tíð.
Innan félagsins eru starfræktar
tvær málstofur. Annars vegar mál-
stofa um menningar og menntamál
og hins vegar málstoi'a um bæjar-
og landsmál. Unnið er nú að útgáfu
blaðs sem dreift verður á öll heimili
í Kópavogi og freka i indvinningar
eru fyrirhugaðir en . agn af þeim
verður að bíða Ix íma. Eitt er
víst: Félag ungra aaðarmanna í
Kópavogi er komi að vera!
Ahugasamir ei attir til að
hafa samband við skrifstofu SUJ
-sími 29244 (Stefán Hrafn).
„FÉLAG UNGRA JAFNAÐARMANNA í KÓPA-
VOGI HVETUR IANDSMENN TIL AÐ STILLA Á
SJÓNVARPSSTÖÐINA SÝN OG FYLGJAST MEÐ
HÁTTALAGI ÞINGMANNA STJÓRNARAND-
STÖÐUNNAR!"
Skjáauglýsing sem birtist oft á skjánum í janúar
síðastliðnum í tiiefni af ótrúlegri skrumskælingu
[Dingmanna sfjórnarandstöðunnar á lýðræð-
inu.Herferð FUJ-Kópavogi gegn þessu lýðræðisof-
beldi heppnaðist vel og vakti mikla athygli.
Vinstra megin er varaformaður Sambands ungra jafnaðarmanna - Magnús Árni
Magnússon og við hlið hans stcndur Sigurður Pctursson formaður sambandsins.
Magnús Árni er stjórnarmaður í Félagi ungra jafnaðarmanna í Kópavogi.
Tekið á „ÍSLAND / FÆREYJAR - Færeyjahagfræðin í hávegum?“, ráðstefnu sem Fé-
lag ungra jafnaðarmanna í Kópavogi hélt að loknum endurreisnaraðalfundi sínum 28.
október 1992. Jón Baldvin Hannibalsson í ræðustól. Við hlið hans situr fundarstjórinn
Magnús Árni Magnússon.
STJORN FELAGS
UNGRA JAFNAÐAR-
MANNA í KÓPAVOGI
Stefán Hrafn Hagalín ('71 j - formaður
Hreinn Jónsson ('73) - varaformaður
Jón Einar Sverrisson ('76) - ritari
Einar Jóhannes Ingason ('76) - gjaldkeri
Asmundur Guðmundsson ('67) - ritstjóri málgagna
Sævar Guðni Sævarsson ('73) - meðstjórnandi
Vilberg Friðrik Olafsson ('68) - meðstjórnandi
Magnús Arni Magnússon ('68)
- forseti málstofu um bæjar- og landsmál
Guðmundur Gísli Ingólfsson ('76)
- varaforseti málstofu um bæjar- og landsmál
Hreinn Hreinsson ('68)
- forseti málstofu um menningar- og menntamál
Hreinn Jónsson ('73)
-varaforseti málstofu um menningar-og menntamál