Alþýðublaðið - 19.02.1993, Side 12
12
Föstudagur 19. febrúar 1993
Helga í sína daglega starfi að ala upp ungviði Kópavogs.
Utveggir í umhverfi
stórviðra og veðrunar
Merktu við
dagana
11.-14.
mars 1993
12.30
1 3.00
13.10
1 3.35
14.00
14.25
14.50
15.10
15.15
15.40
19.00
12.00
1 3.00
13.25
13.50
14.15
14.40
15.00
16.00
16.25
16.50
1 7.15
17.30
1 7.40
- ráðstefna og sýning að Holiday Inn
11. -14. mars 1993
Dagskrá ráöstefnunnar
Fyrri dagur ráðstefnu - fimmtudagur
Skráning
Setning Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
Útveggir í núverandi byggingum, Bjöm Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur
Staðsteyptir veggir, Guðmundur Pálmi Kristinsson, verkfræðingur
Forsteyptir veggir og múrsteinsveggir, Níels Indríðason, verkfræðingur
Léttir útveggir, Ólafur Sigurðsson, arkitekt
Fyrirspumir
Vörukynning og sýning
Vömsýning opnuð, Steindór Guðmundsson, verkfræðingur
Kaffiveitingar
Vömkynning í ráðstefnusal, nokkur fyrirtæki kynna þær vömr
sem þau hafa að bjóða í ráðstefnusal - stendur til 17.00
Vömsýningu lokað
Síðari dagur ráðstefnu-föstudagur
Vömsýning opnuð
Hvað ræður gerð útveggja? Helgi Hjálmarsson, arkitekt
Steinhús þurfa regnkápu, Jónas Kristjánsson, ritstjóri
Viðgerðir á steyptum útveggjum, Ríkarður Kristjánsson, verkfræðingur
Rekstur útveggja, Rögnvaldur Gíslason, verkfræðingur
Fyrirspumir
Kaftiveitingar
Viðhorl' neytenda, Jóhanncs Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Ábyrgð hönnuða, verktaka og efnissala, Othar Örn Petersen hrl
Hver verður þróun útveggja? Vífill Oddsson, verkfræðingur.
Fyrirspumir
Ráðstefnu slitið, Steindór Guðmundsson, ráðstefnustjóri
Ráðstefnugestum boðið til móttöku og veitinga á sýningarsvæði
Vörusýning verður opin til kl. 19.00 á föstudegi og einnig frá
kl. 12.00 -19.00 bæði laugardaginn 13. mars og sunnudaginn 14. mars.
Á Útveggjum í stórviðmm og íslenskri veðrun munu helstu sérfræðingar flytja erindi og fjöldi
fyrirtækja kynna vöm sýna og þjónustu.
Hefur hönnun útveggja á Isiandi á undanfömum ámm verið í samræmi við þær þarfir sem uppfylla
þarf? Hver verður þróun næstu ára? Hvað er til ráða varðandi úrbætur?
Þátttökugjald á ráðstefnunni er kr. 9.500 með ráðstefnugögnum. Skráning þátttakenda er hjá
Þing hf. í símum 91-628535 og 91-626100 fax 91-626905.
Maður reynir
að færa málin
til betri veöar
■ seöir Hetóa E. Jónsdóííir bæjarfullírúi Albýðuflokksins í Kópavoöi
en sesir að annars sé iífið fillif fekið fil skoðana minnihlufans
Helga E. Jónsdóttir fóstra hefur setið
í bæjarstjóm Kópavogs frá árinu 1990
fyrir hönd Alþýðuflokksins. Alþýðu-
blaðið átti stutt spjall við Helgu um
málefni Kópavogsbæjar. Hún sagðist
hafa áhyggjur af fjármálum bæjarins
og það væri útséð með að þrátt fyrir
mikla áherslu meirihlutans á gatnagerð
myndu þeir ekki getað staðið við það
kosningaloforð að koma malbiki á allar
eldri götur bæjarins. Alþýðublaðið
innti Helgu eftir því hvemig það væri
að sitja í stjórn bæjarfélagsins.
„Eftir síðustu kosningar lentum við í
Alþýðuflokknum hér í minnihluta og
það verður að segjast eins og er að
maður er áhrifalítill. Það breytir þó
engu um það að maður reynir að færa
mál til betri vegar eins og hægt er. Við
í Alþýðuflokknum höfum hér reynslu-
mikinn oddvita, þar sem Guðmundur
Oddsson er, og hans reynsla hefur
reynst okkur í minnihlutanum afar dýr-
mæt. Það er hins vegar ekki hægt að
tala um að það sé neitt samstarf á milli
meirihluta og minnihluta bæjarstjóm-
ar.“
- Nú hafa hrannast upp skuldir hjá
Kópavogsbœ frá því aö Sjálfstœðis-
flokkurinn komst til valda með fulltingi
Framsóknarfulltrúans. Setur það mark
sitt á stjórn bœjarins?
„Hún er ekki sjáanleg svona dags
daglega þessi erfiða fjárhagsstaða. Þeir
í meirihlutanum bera sig mannalega og
halda áfrarn að eyða og útþenslan er
gífurleg. Eg hef vissulega áhyggjur af
því. Það hefur verið tekið allt of stórt
land undir fyrir byggingasvæði og á ég
þar sérstaklega við Amameslandið.
Það hefur að vísu gengið ágætlega að
koma út lóðum þar en það á eftir að
byggja þær og selja íbúðimar sem þar
eiga að rísa. Eg hef heyrt að í þeim efn-
um sé mjög þungt fyrir fæti.
Svipaða sögu er að segja um lóðim-
ar í Digraneshlíðum. Þær ganga illa út
enda eru þær mjög dýrar og stundum
kallaðar Beverly Hills.
Framkvæmdir hér hafa verið miklar
ef tekið er mið af fjárhagsstöðu bæjar-
ins. Þessar framkvæmdir liggja fyrst og
fremst í gatnagerð og ekki er útséð með
hvenær þær fara að skila bæjarfélaginu
einhverjum arði.“
- Nú situr þú í húsnæðisnefnd. Hver
er staða húsnœðimála í Kópavogi?
„Mér líst nú fyrir það fyrsta ekkert
mjög vel á þær vaxtahækkanir sem fýr-
irhugaðar eru í félagslega húsnæðis-
kerfmu en geri mér engu að síður grein
fyrir þörfinni á þeim. Eins og ástand
mála er nú hefði mér þótt eðlilegra að
taka þetta skref í áföngum í stað þess
að gera þetta svona á einu bretti.
Við erum núna að byggja einar 40
tbúðir og þegar þær verða tilbúnar þá
verða félagslegar fbúðir í Kópavogi
orðnar samtals 417 af um það bil 6.000
íbúðum sem í bænum em. Þannig er
það ekki ýkja stór hluti af öllum mark-
aðnum sem er félagslegt íbúðarhús-
næði. Eg held að miðað við þörfina
mætti tvöfalda þá tölu. Eins og staðan
er núna bíða 126 virkar umsóknir af-
greiðslu og við getum aðeins leyst úr
60 af þeim.“
Hvernig ganga æskulýðs- og
íþróttamálin í Kópavogi?
„Eg er nú sjálf virk í Breiðabliki og
er umsjónarmaður í 3. flokki kvenna í
knattspymu. Það er nijög ánægjuiegt
starf en innan íþróttahreyfingarinnar
fer fram mikið uppeldis- og æskulýðs-
starf. Við búum að því að hér eru öflug
félög sem láta æskulýðs- og fþrótta-
málin til sín taka. Við það ber að styðja.
Það er núna verið að skrifa undir
samstarfssamning rétt eina ferðina
milli Breiðabliks og bæjarins. Eins og
kunnugt er var HM-höllin slegin af og
það er verið að bæta úr því núna með
því að gera samning við Breiðablik. í
honum er samið um byggingu íþrótta-
húss í Kópavogsdal á félagssvæði
Breiðabliks við Fífuhvamminn."
Hvað um menningar- ogfélagsmál?
„Listasafnið á að opna í sumar eða
haust. Það er komin mynd á húsið og
það litur prýðilega út og vonir standa til
um að það komi til með að lyfta menn-
ingarlífinu hér í Kópavogi.
Annars má segja meirihlutanum til
hróss að hann hefur ekki þorað að
bregða út frá þeirri stefnumótun í fé-
lagsmálum sem Alþýðuflokkurinn hef-
ur markað á umliðnum árum í Kópa-
vogi. Það er helst að nú megi merkja
samdrátt í öldrunarmálum en meiri-
hlutinn hefur t.d. haldið áfram upp-
byggingu leikskóia. Það mikla starf
sem Alþýðuflokkurinn hefur byggt
upp hér í bæ á sviði félagsmála verður
ekki brotið niðurá fjórum árum“, sagði
Helga E. Jónsdóttir fóstra og bæjarfull-
trúi að lokum í spjallinu við Alþýðu-
blaðið.
(e^iigte)
löjuþjálfi
Meöferöarheimiliö SOGNI í Ölfusi, óskar efiir aö ráöa iðjuþjálfa í
hlutastarf. Meðferðarheimilið er stofnun fyrir 7 vistmenn sem
dæmdir hafa verið í gæslu á viöeigandi stofnun, og miðar starf-
semin aö því að veita þeim bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á
hverju sinni.Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu sendar framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Suðurlands, Selfossi,
fyrir 15. mars 1993. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst.
Iðjuþjálfi - hjúkrunarfræðingur
Tveir hjúkrunarfræðingar óskast til starfa að meðferðarheimilinu
SOGNI.
Sérfræðimenntun í geðhjúkrun æskileg.
Upplýsingar um starfið gefur Elín Óskarsdóttir hjúkrunarforstjóri í
síma 98—34853 á dagvinnutíma.
Stjórnin
Framkvæmdadeiíd Innkaupastofnunar ríkisins