Alþýðublaðið - 19.02.1993, Page 13
Föstudagur 19. febrúar 1993
13
Nýr forstöðumaður Sundlaugar Kópavogs,
sundkappinn og þjálfarinn Guðmundur Þ. Harðarson,
var valinn úr hópi 43 umsœkjenda um stöðuna
SUNDLAUGIN ER HANS
EÐLILEGA UMHVERFI
Hann Guðmundur Þ. Harðar-
son hefur alla tíð kunnað best við
sig á sundlaugarbakkanum, eða
úti í lauginni, það er hans rétta
umhverfi. Allt frá því hann var
níu ára gamall hefur sundið átt
hug hans allan. I dag er Guð-
mundur 47 ára og tók hann ný-
lega við starfi Sundlaugarstjóra
hinnar glæsilegu sundlaugar
Kópavogsbúa.
í bók með 50 bestu
sundlaugum heims
„Mér líst sérstaklega vel á sund-
laugina, hún er bæði fallegt og gott
mannvirki, sem víða hefur vakið at-
hygli. Þá þykir mér verkefnið afskap-
lega spennandi. Hér eiga eftir að
verða enn frekari framfarir og strax
með vorinu má búast við veigamikl-
urn og mikilvægum framkvæmdum
hjá okkur“, sagði Guðmundur í rabbi
við Alþýðublaðið í gær. Guðmundur
sagði okkur að vatnsrennibraut sund-
laugarinnar þætti afspymu góð. Við
hana er sérstök og afmörkuð af-
rennslislaug til að taka við þeirn sem
koma á fleygiferð. Þama má ná meiri
hraða en í öðmm slíkum rennibraut-
um hér á landi.
Guðmundur segir að áhugi á Sund-
laug Kópavogs nái í rauninni langt út
fyrir landsteinana, því á dögunum
haft honurn verið sýnd nýútkomin,
frönsk arkitektabók með 50 athyglis-
verðustu sundlaugunt veraldar.
Þeirra á meðal var Sundlaug Kópa-
vogs. Kristján Magnússon, ljós-
myndari, var fenginn til að taka
myndir í bókina og varði hann tveim-
ur dögum til að ná sem bestum
myndum.
Það er því ljóst, svo fitjað sé upp á
svolítilli pólitík, að núverandi meiri-
hluti í bæjannálum Kópavogs, fékk
skemmtilegan „arf' frá fyrri meiri-
hluta, þar sem er hin nýja Sundlaug
Kópavogs. Hún var á lokastigi, þegar
nýr meirihluti tók við vorið 1990.
Varla ntikið meira eftir en að klippa á
borðann!
í og við sundlaugina í 37 ár
En nánar uni Guðmund Þ. Harðar-
son.
Hann er Austurbæingur í húð og
hár og var nágranni Sundhallarinnar
gömlu, sem sagt er að Jónas frá
Hriflu hafi látið sinn uppáhaldsarki-
tekt, Guðjón Samúelsson, teikna, en
síðan „gefið“ Reykvíkingum. í þess-
ari einu alvörusundlaug höfuðborg-
arinnar lærðu flestir Reykvíkingar að
synda í gamla daga.
Guðntundur Þ. Harðarson var
hörkukeppnismaður með Sundfélag-
inu Ægi. Hann vakti mikla athygli
þegar hann „gerðist svo djarfur" að
hirða íslandsmet í 200 metra skrið-
sundi af sjálfum Guðmundi Gísla-
syni, sundkóngi landsins um langt
árabil. Þá átti Guðmundur Þ. íslands-
metið í 1500 metra skriðsundi.
Eftir að keppnisferli lians lauk, og
reyndar meðan á honum stóð, tók við
aldarfjórðungslangur ferill sem
sundþjálfari. Guðmundur lauk námi
Þessar fallegu Kópavogshnátur brugðu á leik í Kópavogslauginni í
fyrradag, enda brá svo við þann daginn, að veðrið var með skikkan-
legasta móti. Það má hinsvegar fijóta með að sundlaugarferð í for-
áttuveðri þarf hreint ekki að vera leiðinleg. Sundlaugaiðkun er ekki
eins háð veðri og margir álíta.
sem íþróttakennari frá Laugarvatni
óvenju ungur, aðeins 19 ára gamall.
Síðan tók við nám við íþróttaháskóla
í Alabama í Bandaríkjunum, - og
skiljanlega var sundið sérgrein Guð-
mundar.
Það er garnan að geta þess hér að
þrjú af fjórun bömum Guðmundar og
konu hans, þau Ragnar, Þórunn
Kristín og Hörður, hafa öll fetað í fót-
spor föður síns, og verið valin í sund-
landslið Islands. Yngsta bamið, dótt-
ir, er aðeins 10 ára, og aldrei að vita
hvað hún á eftir að gera.
43 sóttu um stöðu
sundlaugarstjóra
Um áramótin tók Guðmundur við
starfi framkvæmdastjóra Sundlaugar
Kópavogs. Hann var í hópi 43 um-
sækjenda, þannig að starfið hefur
þótt eftirsóknarvert. Guðmundur
segir að næsti áfangi í byggingu
laugarinnar sé búningsaðstaða fyrir
almenning, en auk þess koma nýir
heitir pottar og útisturtur.
Það hlýtur að vera kappsmál fyrir
Guðmund, gamlan keppnismann og
þjálfara rnargra efnilegustu sund-
manna okkar um langt tímabil, að fá
til sín stór sundmót í Kópavogslaug.
Minnast menn þá á þá grátbroslegu
umræðu að flytja íslandsmótið í
sundi til Skotlands!!
Guðmundur segir að sundafreks-
menn okkar séu þessa stundina í
nokkurri lægð og hafi verið það í
nokkur ár. Hann sagði að án efa
mundi verða breyting á áður en langt
um liði, það væri alkunna að íþrótta-
árangur færi mjög í sveiflum. Kópa-
vogsbúar hafa átt nokkra ágæta af-
reksmenn í sundi, en okkur rennur
grun í að með Guðmund Þ. við
stjómvöl Sundlaugar Kópavogs, eigi
GUÐMUNDUR Þ. HARÐAR-
SON, - stjórnar glæsilegri holl-
ustumiðstöð, sem vakið hefur at-
hygli langt út fyrir landsteinana
og er í bók með 50 fallegustu
sundlaugum heims. Hér er Guð-
mundur á sundlaugarbakkan-
um, sínu eðlilega umhverfi. Arki-
tekt Sundlaugar Kópavogs var
Högna Sigurðardóttir í París. -
A-myndir E.Ól.
framtíðar meistarar sundsins í Kópa-
vogi. hauk í homi.
Vandamálin leyst
í heitu pottunum
Guðmundur segir að vissulega hafi
hann áhuga á að meiriháttar sundmót
okkar verði háð í Kópavogslaug, og
að ekkert sé því til foráttu. 1 fyrra hafi
Islandsmótið einnritt farið fram í
lauginni í ótrúlega hlýju og sólbjörtu
veðri.
„Þessi árstími er sá daufasti í
rekstrinum hjá okkur“, segði Guð-
mundur, „en þegar fer að vora fjölgar
gestunum svo urn munar og á sólar-
dögum er allt yfirfullt, það era
skemmtilegustu dagamir í sund-
laugarekstrinum".
Þrátt fyrir allan hryssinginn í veðr-
inu mæta fastakúnnar laugarinnar,
margir hverjir daglega, og em nánast
orðnir háðir því að komast í laugina
og heitu pottana. I pottunum er margt
skrafað og þjóðfélagsmálin eru dag-
lega leyst þar með sóma og sann. Þá
er gufubað laugarinnar vinsælt, sem
og sólarlampar, sem konumar hrífast
mest af. Nuddari starfar allan daginn
við laugina og er þjónusta hans vel
metin af gestum.
Við Sundlaug Kópavogs starfa um
20 manns.
Vatnagarðar vinsælir
en vantar hér
Að lokum spyrjum við Guðmund
um hina vinsælu „vatnagarða", Aqua
Parks, eins og þeir eru kallaðir í ná-
lægum menningarlöndum. Guð-
mundur segir að sér lítist vel á slíka
skemmtigarða með úrvali renni-
brauta, leiktækja af ýmsu tagi, gos-
bmnna og jafnvel vatnsdiskóteka.
Þama sé mikið líf og fjör.
„En það á við hér eins og víða er-
lendis, að slíkt mannvirki yrði að
vera yfirbyggt, en þó þannig að það
megi opna á sólskinsdögum. Auk
þess er kostnaðurinn gífurlega hár.
Eg gæti vel ímyndað mér að í fram-
tíðinni verði slíkt verkefni unnið sem
sameiginlegt verkefni nokkurra
sveitarfélaga og slíkum garði þá val-
inn staður mjög miðsvæðis á höfuð-
borgarsvæðinu.
Og hvað er miðsvæðis á höfuð-
borgarsvæðinu? Það er reyndar
svæðið við hina nýju Reykjanesbraut
í Smárahvamms- og Fífu-
hvammslöndum. Þar er ætlunin að
rísi framtíðar miðbær alls höfuðborg-
arsvæðisins, og í Fífuhvammlandi
mun rísa eitt af öflugustu íbúðahverf-
um landsins.