Alþýðublaðið - 19.02.1993, Blaðsíða 14
Föstudagur 19. febrúar 1993
Kaupir snyrtivörudeild Bylgjunnar
Úr Austur-
stræti
í Hamra-
borgina
„Ég kem úr pínulftilli skonsu í gamla Isafoldarhúsinu við Austurstræti, þar sem
ég rak Isadóru, í þetta stóra og glæsilega húsnæði. Það liggur við að maður fái víð-
áttubrjálæði, þú veist“, sagði Sóley Stefánsdóttir og hló við, þegar blaðamaður Al-
þýðublaðsins hitti hana að máli í gær í snyrtivöruversluninni Bylgjunni í Hamra-
borg. Sóley keypti þessa vinsælu verslun, einu snyrtivörubúð næststærsta kaup-
staðar landins, í byrjun mánaðarins.
Bylgjan er rúmgóð og glæsileg
verslun, sem Heiða Ármannsdóttir á
heiðurinn af að hafa komið á fót og
rekið af dugnaði um árabil. Heiða hef-
ur líka selt hárgreiðslustofu sína til
Guðrúnar Johansen, sem tekur til starfa
allra næstu daga.
„Ég mun reka verslunina með svip-
uðu sniði og verið hefur, enda hefur
það form orðið vinsælt meðal bæjarbúa
og fjölda annarra sem hingað hafa
sótf‘, sagði Sóley.
í Bylgjunni er óvanalega breið og
góð lína af snyrtivörum, ekki bara
kvenna, heldur líka fyrir karlpeninginn.
,JEg er satt best að segja yfir mig feg-
in að vera komin í Kópavoginn til að
versla, það er nú mín heimabyggð og
þar líður mér alltaf best“, sagði Sóley í
stuttu rabbi við blaðið.
I Hamraborg er miðbær Kópavogs,
verslana- og þjónustuhverfi með 50-60
verslanir, skrifstofur og þjónustufyrir-
tæki af ýmsu tagi. Kaupmenn í Kópa-
vogi hafa kvartað nokkuð yfir að
heimamenn fari í aðra bæi að gera inn-
kaupin. Hinsvegar segja þeir að al-
gengt sé að Breiðholtsbúar renni gegn-
um Kópavog og Hamraborg á heim-
leiðinni og geri þar ýmis innkaup.
Verslanir í Hamraborg eru langflestar
gamalgrónar og hugsa ekki til hreyf-
ings.
Utboð
Breiðholtsbraut, Elliðavatnsvegur - Jaðarsel
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu um
2ja km kafla á Breiöholtsbraut milli Elliöavatnsvegar
og Jaðarsels.
Helstu magntölur: Fylling og burðarlög 78.000 m3,
skering í laus jarðlög 57.000 m3, skering í berg
VEGAGERÐIN 13.000 m3, malbik 23.000 m2, umferöareyjar 1.700
m2 og steinsteypa 170 m3. Verki skal lokið 10. sep-
tember 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og meö
22. febrúar nk.
Skila skal tilboöum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 8.
mars 1993.
Vegamálastjóri
undir mynd// Sóley Stefánsdóttir, til vinstri á myndinni, ásamt Heiðu Ármannsdóttur, sem stofnaði snyrtivörudeild Bylgj-
unnar á sínum tíma, en hefur nú selt Sóleyju reksturinn. -A-mynd E.ÓI.
✓
Maríus Arthursson, Fiskbúðinni Alfhólsvegi 32
Maríus Arthursson hefur nú
stundað fisksölu að Álfhólsvegi 32 í
23 ár. Hann segir að nokkuð mikil
breyting hafi átt sér stað í fisksölu á
þessum tíma. Hins vegar er það
alltaf þó nokkuð stór hópur sem vill
kaupa sinn fisk hjá fisksalanum,
ferskan og nýjan, og velja sér sinn
fisk sjálfur. jrað sætti sig nefnilega
ekki allir við að kaupa fisk sem
pakkavöru í stórmörkuðum.
Maríus segir að fiskmarkaðimir hafa
breytt talsvert miklu fyrir fisksala. Nú
geti þeir gengið að fiski á uppboðum
markaðanna en áður þurfti oft að hend-
ast langar leiðir til að ná í góðan ftsk.
Hann segir að með því hafi fiskverð
eitthvað hækkað en hann kaupi líka að-
eins það besta sem á mörkuðunum er
hverju sinni. í vetur hafi til dæmis oft
verið skortur á fiski og því verðið í
hærri kantinum.
Maríus kemur frá Akranesi en flutti
til höfuðborgarinnar árið 1968 og rúm-
lega 10 árum síðar flutti hann í Kópa-
voginn. Fljótlega eftir að hann kom
suður keypti hann fiskbúðina við Álf-
hólsveg en þar hefur nú verið rekin
ftskbúð í 35-40 ár.
Þeim fer fækkandi litlu búðunum
sem starfað hafa svo lengi en Kópa-
vogsbúar hafa getið gengið að fisksal-
anum sínum vísum við Álfhólsveginn
allan þennan tíma.
MARÍUS, - fisksalinn sem ævinlega er að finna á sínum stað. A- mynd E.Ól.
AÐGERÐIR GEGN ATVINNULEYSI !
OPINN FUNDUR
HAFNARFJÖRÐUR
Samband ungra jafnaðarmanna boðar til opins fundar næstkomandi laugardag (20.
febrúar) klukkan 14:00.
Fundurinn verður
haldinn í Alþýðuhúsinu
við Strandgötu
í Hafnarfirði.
ALLIR •
VELKOMNIR
Framsögumenn:
Fundarstjóri:
Guðmundur Ami
Stefánsson -
bæjarstjóri í
Hafnarfirði
Bjamfreður
Ármannsson -
formaður samtaka um
skynsamlega nýtingu
fiskveiðilögsögu
Magnús Árni
Magnússon - varafor-
maður Sambands
ungra jafnaðarmanna
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna
Aöalfundur
í Rósinni fimmtudagskvöldið 25. febrúar nk. kl. 20.30 -
23.30 í Rósinni félagsmiðstöðu jafnaðarmanna, Hverfis-
götu 8-10
Þann 25. febrúar nk. kl. 20.30 verður aðalfundur félags-
ins. Á fundinum verða lagðir fram reikningar félagsins og
skýrsla um starf sl. starfsárs. Síðan verður kosin ný
stjórn.
Að loknum aðalfundarstörfum munum við fá Össur
Skarphéðinsson þingflokksformann til að ræða við okk-
ur um ástand og horfur í stjórnarsamstarfinu, fá okkur
kaffi og vonandi eiga ánægjulega stund saman.
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna