Alþýðublaðið - 30.12.1994, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
miMD
20845. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Kosningaár
framundan
Árið sem er að líða hefur um margt verið Alþýðuflokknum -
Jafnaðarmannaflokki íslands - erfitt. Niðurstöður sveitarstjóm-
arkosninganna vom misjafnar eins og gengur. Víða, eins og í
Hafnarfirði, vannst mikilvægur varnarsigur, en annars staðar,
eins og á Akranesi, olli niðurstaðan miklum vonbrigðum. Jó-
hanna Sigurðardóttir, einn helsti forystumaður flokksins um
árabil, bauð sig fram til formanns á flokksþingi sem haldið var
í júní. í kjölfarið sagði hún af sér ráðherraembætti og - þvert of-
an í gefið loforð - sagði sig síðan úr flokknum. Klofningur í
flokknum var staðreynd eina ferðina enn. Guðmundur Ámi
Stefánsson félagsmálaráðherra og flokkurinn í heild átti mjög
undir högg að sækja vegna ásakana um dómgreindarbrest og
spillingu. Sú orrahríð endaði með afsögn Guðmundar Árna,
sem markaði þar með tímamót í íslenskum stjórnmálum. Af-
sögn Guðmundar Áma var án efa rétt ákvörðun þó menn geti
greint á um aðdraganda hennar.
Alþýðuflokkurinn getur því vart litið til baka yfir árið sem er að
líða og fagnað því sem einu af sínum bestu ámm. Staða flokks-
ins í skoðanakönnunum nú um áramótin er slæm, sérstaklega í
Reykjavík. Málefnastaða flokksins er hins vegar góð og árang-
ur í ríkisstjómum síðustu átta árin til fyrirmyndar. Á þessu mun
Alþýðuflokkurinn byggja kosningabaráttu sína. Flokksmenn
geta því litið til nýja ársins með bjartsýni. Góður árangur og
yfirburða málefnastaða munu með vinnu og baráttu yfirgnæfa
óhróður andstæðinganna og skapa Alþýðuflokknum sóknar-
færi. Alþýðuflokkurinn er sókndjarfur umbótaflokkur sem læt-
ur illa að spila vörn af því tagi sem hann hefur verið neyddur til
á síðustu mánuðum. Með samstilltu átaki mun flokkurinn beita
öflugum skyndisóknum á næstu mánuðum og rífa sig úr ófræg-
ingarherkví andstæðinganna. Flokksmenn ættu því að strengja
þess heit um áramótin að bretta upp ermar til sóknar fyrir nú-
tímalega jafnaðarstefnu.
Sterkur Alþýðuflokkur er höfuðnauðsyn fyrir íslensk stjórnmál
og samfélag. Hver á að berjast fyrir umbótum í landbúnaðar-
málum? Hver á að berjast fyrir umbótum á kvótakerfinu og
sameign þjóðarinnar á auðlindinni? Hver á að berjast fyrir opn-
un efnahagslífsins og evrópsku samstarfi? Hver á að halda á
lofti rétti neytenda í landinu? Hver á að verja velferðarkerfið
gegn sjálfvirkri útgjaldaþenslu og sérhagsmunum? Viljum við
fara leið framsóknarmanna allra flokka inn í tuttugustu og
fyrstu öldina, eða viljum við fara leið nútímalegrar jafnaðar-
stefnu? Viljum við sjóðasukk eða heilbrigt atvinnulíf? Hræð-
umst við nýtt alþjóðlegt pólitískt og efnahagslegt umhverfi
okkar? Á komandi kosningaári mun Alþýðuflokkurinn halda
þessum spumingum og fjölmörgum öðmm að landsmönnum.
Sé vel á málum haldið mun svarið ekki verða Alþýðuflokknum
óhagstætt. Það er því fyllsta ástæða til bjartsýni.
Maður
ársins 1994
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri er maður ársins 1994.
Tilurð Reykjavíkurlistans og glæsilegur sigur hans í kosning-
unum síðastliðið vor byggðist að veralegu leyti á persónu Ingi-
bjargar Sólrúnar og þeirri virðingu sem störf hennar í borgar-
stjóm og á Alþingi njóta jafnt hjá samherjum sem andstæðing-
um. Ingibjörg Sólrún er víðsýnn og kreddulaus stjómmálamað-
ur sem læoir ekki þröng flokkssjónarmið ráða för. Þetta ein-
kenni kemur einkar vel í Ijós í umfjöllun hennar um erfiðasta
stjómmálanna nú um stundir, Evrópumálin, og mun án efa nýt-
ast henni ríkulega í starfi sínu sem borgarstjóri í Reykjavík.
„Þessvegna er óþreyjan svo mikil í atferli margra er að stjórnmálum starfa á landsvísu,
þeim Uggur á að sýna „árangur“ strax. Það er einmitt reginmunur á að starfa að sveitar-
stjórnarmálum og að starfa á landsvísu, árangur verðurfljótt sýnilegur og áþreifanlegur
ífyrra tilfellinu en hvort umdeildar ákvarðanir bera tilætlaðan ávöxt við landsstjórnina
kemur fyrst í Ijós löngu síðar. Þá eru oft önnur átakamál uppi og kastljósið beinist að
öðrum aðstœðum og nýjufólki.“
Með heill þjóðar að leiðarljósi
Árið rennur í aldanna skaut og við
erum gjaman að kveðja það í ástvina
eða góðra vina hópi. Ljóminn sem
stafar af blysum og stjömuljósum og
himininn logandi af leiftrandi flug-
eldum inynda umgjörðina, meðan
minningar hrannast fram í hugann.
Góðar, vondar, sárar, áleitnar? Það
er samsetning þessa minningabands
sem ræður hvemig við metum árið
sem er liðið.
Það sem vegur þyngst á þessari
stundum er hagur ástvinanna og
hvaða höndum liðið ár fór um lff
fjölskyldu og vina. Ástvinamissir,
veikindi, áföll og erfiðleikar annars
vegar og bjartir atburðir eins og fæð-
ing barns, ungt fólk að bindast
tryggðarböndum, gott heilsufar og
góður árangur í námi, starfi eða leik
em þættir sem raðast á minninga-
bandið á þessari ljúfsám stundu sem
áramót em. Osjálfrátt metur hugur
manns þetta umliðið ár; „gott ár“ -
„vont ár“. Það óhjákvæmilega er að
árið hverfur í aldanna skaut og nýtt
ár gengur í garð. Nýjar væntingar,
nýjar vonir og trú á að gæfan verði
hliðholl þeim er manni þykir vænt
um fyllir hugann.
/ kastljósinu
Þegar við félagamir í Alþýðu-
flokknum leggjum mat á árið 1994
er hætt við að margir staldri við þá
átakaatburði sem hæst hefur borið
innan vébanda flokksins og að þeir
Rannveig
Guðmundsdóttir
skrifar
ráði mestu unt okkar pólitíska mat á
árinu sem nú er að kveðja.
Störf stjómmálamanna em að því
leyti öðruvísi en flestra annaixa að
þau eru unnin við opinbera flóðlýs-
ingu. Athyglin sem snörp atburðarás
tengd einstaklingum í forystuhlut-
verki fær er gífurleg og kastljósið á
stjórnmálin sjálf beinist oftar að
ágreiningi um ákvarðanatöku en ár-
angri sem leiðir af ákvörðun.
Þessvegna er óþreyjan svo mikil í
atferli margra er að stjórnmálum
starfa á landsvísu, þeim liggur á að
sýna „árangur" strax. Það er einmitt
reginmunur á að starfa að sveitar-
stjómarmálum og að starfa á lands-
vísu, árangur verður Iljótt sýnilegur
og áþreifanlegur í fyrra tilfellinu en
hvort umdeildar ákvarðanir bera til-
ætlaðan ávöxt við landsstjómina
kemur fyrst í Ijós löngu síðar. Þá eru
oft önnur átakamál uppi og kastljós-
ið beinist að öðmm aðstæðum og
nýju fólki. Ekki er mikið unt að fjöl-
miðlar líti yfir farinn veg og kryfji
málin; orsök - afleiðing, ákvörðun -
afrakstur. Það tökumst við sjálf á við
í flokkunum og reynum að ná eyrum
fjöldans með okkar árangur.
Árangur, væntingar
og vonir
Það er mikilvægt núna þegar
framundan er nýtt ár og kosningavor
að við félagamir í Alþýðuflokknum
lítum yfir verkefni liðins árs og kjör-
tímabilsins sem senn er á enda og
metum hvernig verkin voru leyst af
hendi. Hverju höfum við skilað sem
skiptir máli til framtíðar? Höfum við
haldið þannig á málum við stjórnvöl-
inn að við getum tekið bamabömin
okkur við kné og sagt sem svo að þó
þetta hafi verið erfitt tímabil þá hafí
það verið þess virði að leggja hönd á
plóg; verkefnin hafi verið leysl af
hendi með velferð þeirra í huga?
Svarið verður jákvætt að mínu
mati því þó svo við hefðum kosið að
eitt og annað hefði hlotið aðra niður-
stöðu þá höfurn við f heild náð vem-
legunt árangri við landsstjórnina.
Við ntegum ekki láta slæmar
skoðanakannanir eða ómálefnalega
gagnrýni byrgja okkur sýn. Nú þegar
við jafnaðarmenn hefjunr kosninga-
baráttu lítum við um öxl eingöngu til
að taka saman úrvinnslu verkefna
liðinna ára og til að nýta reynsluna af
atburðum undangenginna mánaða til
að snúa málum til betri vegar.
Veganesti jafnaðarmanns, jafnað-
arstefnan, er gott veganesti og við
höfunt saman gengið til starfa með
heill þjóðar að leiðarljósi. Baráttu-
málin munu bera ávöxt sfðar þegar
kastljósið er á öðmm málum og ef til
viii nýju fólki.
Árangur af umbótamálum sem
Alþýðuflokkurinn hefur náð fram á
vettvangi efnahags- og viðskipta-
mála en ekki sfst velferðarmála verð-
ur sýnilegur á komandi missemm, en
það er í kosningabaráttunni sem
frarn undan er sem við félagarnir
tökum höndum saman og vekjum á
þeim athygli. Jafnaðarstefnan er lífs-
skoðun og jafnaðarstefna þýðir sam-
vinna. Við munum snúa vörn í sókn
á komandi vikum og sýna fyrir hvað
Alþýðuflokkurinn og jafnaðarmenn
standa, því við bemm öll í brjósti
nýjar væntingar, nýjar vonir og trú á
framtíðina um þessi áramót.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
Dagatal 30. desember
Atburdir dagsins
1916 Raspútín drepinn: Hann var
geggjaður guðsmaður frá Síberíu
sem hafði sterk tök á rússnesku keis-
arafjölskyldunni. 1922 Nafni Sovét-
rússlands breytt í Sovétríkin. 1988
Tengdasonur Brésnevs sáluga
dæmdur í Moskvu í 12 ára fangelsi
fyrir margvíslega spillingu.
Afmælisbörn dagsins
Bjarni Thorarensen skáld og amt-
maður, 1786. Richard Kipling
enskur rithöfundur. 1865. Sir Carol
Reed breskur kvikmyndaleikstjóri,
mynd hans Oliver! fékk Oskarsverð-
laun, 1906. Bo Diddley bandariskur
blússöngvari, sem meðal annars
hafði talsverð áhrif á Rolling Stones
á sjöunda áratugnum, 1928.
Málsháttur dagsins
Ekki er allt lygi sem djákninn segir.
Annálsbrot dagsins
Þá sást vondur draugandi um Eyja-
fjörð allan mörgum til skelfingar,
uppvakningur haldinn, gjörði stórar
skráveifur, sást fyrst í brullaupi einu
á Grýtubakka, hafði selshaus að of-
an, en hrossafætur að neðan, en með
mannlegum höndum og brjóstum.
Sjávarborgarannáll, 1630.
Dómari dagsins
Sannleikurinn var sá, að í daglegu
lífi var hann mjög ómildur í dómum
sínum um aðra menn - og átti jafnvel
bágt með að hlífa þeim, sem helst
voru vinir hans, ef honum þótti þeir
standa vel til höggs.
Ámi Pálsson um Einar skáld Benediktsson.
Orð dagsins
Ekki er holt að hafa ból
hefðar upp ú jokultindi,
afþví þar er ekkert skjól
uppi fyrirfrosti snjó né vindi.
Bjami Thorarensen.
Skák dagsins
Skák dagsins er af rómantíska skól-
anum, þótt hún hafi verið tefld í Novi
Sad fyrir aðeins tæpum timm árum.
Wedberg, hinn valinkunni sænski
íslandsvinur, hefur hvítt og á leik
gegn Kuczynski. Einsog sjá má vof-
ir mát yfir hvíta kónginum, en Wed-
berg fann bráðskemmtilega leið útúr
ógöngunum og náði að tryggja sér
skiptan hlut. Spun er; Hvað gerir
hvítur?
I. Hc8+! Kb6 Eini leikur svarts:
Drepi hann hrókinn, ieikur hvítur
Bxb7+ og svarta drottningin liggur f
valnum. 2. Hc6+! Ka7 3. Ha6+!
Kb8 4. Ha8+! Kc7 5. Hc8+! Nú er
sama staðan komin upp aftur - og
svarti kóngurinn er búinn að ferðast
heilan hring í kringum hrókinn sinn.
Fremur en leggja í annað ferðalag
sættist Kuczynski ájafntefli.