Vísir - 05.01.1976, Qupperneq 6
6
(c^ ) SVEINN EGILSSON HF
FORD HUSINU SKEIFUNNI 17 SIMI 8Í100 REYKJAVlK
, Bílar til sölu
Arg. Tegund Verðiþús.
74 Escort4rad........................ 725
75 AustinMini........................ 630
74 Blazer K5.........................2.200
74 CometCustom.......................1.450
74 Hillman Hunter .................... 820
74 LadaStation ..................... 700
74 Toyota Carina....................1.100
75 Morris Marina l-8Coupe............ 900
74 Austin Mini....................... 550
74 Cortina 1600 L..................... 950
73 Toyota MK II......................1.100
73 Cortina 1600 L..................... 790
73 Land Rover diesel................1.100
74 Mercury Cougar...................1.900
72 Chevrolet Malibu..................1.050
72 Volkswagen Fastb.................. 630
75 Fiat 127 ......................... 730
73 Fiat 127 ......................... 460
71 Saab96............................ 650
72 Escort ........................... 510
71 Pivmouth Satelite................1.050
72 Skoda Pardus.................... 380
73 Transit.......................... 850
68 Peugeot404 ........................ 390
70 Ford Pick-up 250 m/drif á öllum...1.300
70 Dodge Challenger................... 990
66 Bronco............................. 529
Sýnmgarsalurinn
SVEINN EGILSSON HF
FORD-Húsið Skeifunni 17, Rvík
Sími 85100
BÍLAVARAHLUTIR
Notaðir varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
t.d.
Rambler Classic,
Chevrolet Biskvæn, Impala
og Nova árg. ’65.
Vauxhall Victor '70.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatún 10, simi 11597.
Opiö frá kl. 9-6.30, laugardaga kl. 1-3.
UHIJHANN
EFSTUR f
HASTINGS
t sjöttu umferö skákmótsins I
Hastings tefldi Guftmundur
Sigurjónsson viö Ilartston frá
Bretlandi og valdi Sikileyjarvörn
meö svörtu mennina. Skák þeirra
fór i biö. — Hartsfon, Guömundur
og fjórir til viöbótar eru jafnir
meö tvo vinninga, meöan tiundi
maöur er meö 2 1/2 vinning. Þátt-
takendur eru sextán.
Uhlmann frá Austur-Þýska-
landi náði sér i eins vinnings for-
skot i efsta sætinu, þegar hann
var eini maðurinn, sem vann
skák i sjöttu umferðinni. Tefldi
hann við Miles frá Bretlandi,
fyrrum heimsmeistara unglinga,
og hafði svart.
Miles valdi enska byrjun og
saumaði að Uhlmann i upphafi
skákarinnar, en þjóöverjinn náði
siðan gagnsókn. i heiftarlegri
timaþröng tefldi Miles veikt og
horfði fram á mát, þegar hann
■ gaf.
Þrátt fyrir öll jafnteflin i þess-
ari umferð, voru margar skákirn-
ar töluverðar baráttuskákir. Kor-
chnoi var til dæmis kominn með
peð yfir á móti Kaplan, en með
hörkunni tókst Kaplan að lafa á
jafnteflinu.
Næstir Uhlmann eftir sex um-
ferðir eru Bronstein og Korchnoi
með 4 vinninga hvor. Hort,
Kaplan og Taimanov eru með 3
1/2 vinning.
í fimmtu umferðinni tefldi Guð-
mundur við Stean frá Bretlandi,
og kom upp Sikileyjarvörn hjá
Stean sem hafði svart. Þeir
sömdu eftir 16 leiki. — 1 þeirri
umferð kom e,nglendingurinn
ungi, Robert Bellin — eini þátt-
takandinn, sem ekki hefur
meistaratitil af einhverju tagi —
nokkuð á óvart, þegar hann stóð i
heimsmeistaranum fyrrverandi
og náði jafntefli við Bronstein.
1 fjórðu umferð átti Guðmundur
við að glima kappann Korchnoi,
sem tapaði naumlega einviginu
við Karpov um heimsmeistara-
titilinn og er talinn þriðji sterk-
asti skákmaður heimsins i dag.
Tefldi Korchnoi drottningarbragð
og Guðmundur brá fyrir sig
kóngs-indverskri vörn, sem ent-
‘ist honum ekki nema 25 leiki.
FASTIR I SKIÐA-
LYFTU í OFSAROKI
Þrjátiu og nfu manns sátu föst i
kláferju i svissnesku Olpunum i
fyrrinótt og máttu hirast i ferju-
kassanum i niu klukkustundir áð-
ur en þeim varð bjargað.
Ferjan var á leið niður fjalls-
hliðarnar (3,6 km vegalengd),
þegar hún festistog komst hvorki
upp eða niður. Þar hékk hún i
virunum með fólkið innanborðs
(mest erlenda ferðamenn) og
hefði undir venjulegum kringum-
stæðum ekki verið ástæða til að
óttast um það.
En ofsarok var á laugardags-
kvöldið og komst vindhraðinn upp
i 150 km á klukkustund i verstu
rokunum svo að við lá að virarnir
slitnuðu meðan ferjan skókst til
og frá.
26 ára svissneskur björgunar-
maður lét lifið þegar hann ásamt
tveim félögum sinum lenti undir
snjóflóði, á leið upp fjallið til þess
að róa fólkið.
„Mál að þorska-
stríðinu linni",
skrifar „Daily Mirror'* og varar við
því að samningar verði torsóttari ef
þorskastríðið kostar mannslíf
Breska blaðið /,Daily
Mirror" segir í leiðara í
dag að Bretland ætti að
hætta þorskastriðinu við
ísland.
,, Ef einhver lætur líf ið í
þessum togara-varð-
skipa-herskipaárekstrum
mun Bretland ekki njóta
neinnar samúðar," skrif-
ar leiðarahöf undurinn
undir fyrirsögninni ,,Mál
að þorskastriðinu linni".
Blaðið segir að James Callag-
han hljóti að óska með sjálfum
sér að Bretland hefði aldrei lent
i þessari deilu. Mirror segir að
það hafi ekki verið skynsamlegt
af bretum að setja sig upp á
móti 200milna lögsögunni þegar
til breytinganna kom. — Þar er
haft i huga að bretar eigna sér
sjálfir auðlindir langt utan sinn-
ar landhelgi, og að 200 milna
lögsagan nýtur mikils fylgis
meðal þátttakenda á hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
„Það er ekki ýkja skynsam-
legt'að verja offjár til gagnslit-
illar verndar togaranna,” bætir
blaðið við.
„Herra Callaghan, sem er
töluverður mannasættir á sinn
máta, ætti að geta komið i kring
sæmilegri málamiðlun. Og
málamiðlun er auðveldari áður
en blóði verður úthellt,” segir
svo i leiðaralokum.
Húsbyggjendur
Getum afgreitt einangrunarplast á
Stór-Reykjavikursvæðiö meö stuttum
fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
IIAGKVÆMT VERÐ.
GREIÐSLUSKILM ALAR
Borgarplast hf.
Borgarncsi simi: 93-7370
Kvöldsimi 93-7355.
Hárskerasveinn
Óskum eftir að ráða hárskerasvein sem
fyrst.
Kakarastofan Klapparstig
Laugavegi 20b. Simi 12725.
Minípils
dátanna
skulu
víkja
N ý s k i p a ð u r y f i r m a ö u r
kven nadeilda israelshers,
Ilalia Raz offursti, vill ekki
láta undirmenn sina fiika of
miklu af kvenlegum yndis-
þokka sínum. Hún hefur fyrir-
skipaö brcytingar á einkennis-
búningum kvendátanna.
Minipilsin skulu hverfa af
sjónarsviðinu og i staðinn
koma vel hnésiö pils og stigvél
•angt upp á leggi.