Vísir - 01.03.1976, Side 1
Storþjofnaður i orinaaviK:
TÓKU MEÐ SÉR
PENINGASKÁPINN
— sjá baksíðufrétt
Launahœkkunin á dag þýðir:
Sex til sjö milljarða
króna kostnaðarauka
fyrir atvinnuvegina
Atvinnureksturinn þarf aö Bjarnasyni, hagfræöingi Vinnu-
greiöa vegna kauphækkunar veitendasambandsins.
þeirrar sem leggst á I dag um 6
til 7 milljaröa króna á heilu ári Brynjólfur sagöi að til viðbót-
samkvæmt upplýsingum sem ar, miðað við kaupgjald greitt i
Vlsir aflaöi sér hjá Brvniólfi dag, þýddi afgangshækkunin á
árinu — miðað við heilt ár — um
4 til 5 milljarða króna álögur á
atvinnureksturinn i landinu.
Ekki liggja fyrir tölur um
hvað hækkunin i heild, sem á sér
stað i fjórum áföngum, muni
þýða miklar álögur fyrir at-
vinnureksturinn. Hér er þvi að-
eins um að ræða tölur um kostn-
aðarauka við hverja áfanga-
hækkun.
— sjá nánar um samningana á bls. 3
Árni Gunn-
arsson
lœtur
af starfi
ritstjóra
frétta
BOLLA, BOLLA
Efaluust hafa margir vaknaö
viö þaö i morgun uð bolluvönd-
urinn dundi á þeim með tilheyr-
andi lestri. Kannski hefur það
verið einhver af þessum
skinandi fallegu vöndum sem
þær Anna María og Hrefna voru
að selja fyrir helgina.
Annars gildir þaö einu
hvernig vöndurinn er, aðalat-
riðið er að hinn árrisuli, sem
nær öðrum I svefni — getur
tryggt sér boliuveitingar siðar á
deginum.
En það er með bolludaginn
eins og aðra tyllidaga að margir
taka úr forskot á sæluna. Að
sögn nokkurra bakara sem við
höföum samband við i morgun
var mikil sala I bollum, bæði á
laugardag og sunnudag.
Úrvalið er fjölbreytt og hægt
er að fá allt upp i átta afbrigði af
bollum á einum stað. Hins vegar
voru miklir erfiðleikar á þvi
fyrir bakarana að ná sér i rjóma
vegna verkfallsins. Það má þvi
búast við að rjómabollurnar,
sem við borðum i dag verði
margar hverjar með þeyti-
kremi en ekki rjóma.
EB/mynd Bragi.
Arni Gunnarsson lætur i dag
af starfi ritstjóra frétta við
dagblaðið Visi. Hann tók viö
þvi starfi i septembermánuði
á siðasta ári og hefur þvi
gegnt ritstjórastarfinu i hálft
ár, þegar hann nú veröur rit-
stjóri og ábvrgöarmaður Al-
þýðublaðsins.
Arni Gunnarsson tók við rit-
stjórastarfi á Visi viö erfiðar
aðstæður eins og menn rekur
eflaust minni til. En Visir hef-
ur á stuttum tima tekið mikl-
um breytingum. Blaðið hefur
verið stækkað og umfram allt
hefur verið lögð áhersla á að
bæta efni og fréttaflutning
blaðsins frá þvi sem áður var.
Árni Gunnarsson á mikinn
þátt i þvi umbótastarfi, sem
unnið hefur verið á ritstjórn
blaðsins siðustu.mánuði.
Ritstjórn Visis og stjórn út-
gáfufélagsins færa Arna
Gunnarssyni bestu þakkir fyr-
ir ánægjulegt og traust sam-
starf og honum fylgja bestu
óskir um velgengni i nýju
starfi.
Stjórn Reykjaprents h.f., út-
gáfufélagi Visis, hefur ráðið
Olaf Ragnarsson, fréttamann
hjá sjónvarpinu, til þess að
taka við ritstjórastarfi Árna
Gunnarssonar. Mun hann
væntanlega taka við þvi starfi
i aprilmánuði næst komandi.
— bP.
Freigáfurnar fyrir-
skipa hífingar
Furðu lostnir þegar
Baldur birtist
— Bretarnir hegða sér nú
mjög undarlega og við kunnum
enga skýringu á þvl, sagði
Gunnar Ólafsson, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni við Visi I
morgun.
— Það hafa ekki verið geröar
neinar ásiglingatilraunir eða
neitt sllkt. Freigáturnar dóla
þetta með varðskipunum og
skipa togurunum að hifa, þegar
þau nálgast. Varðskipin voru i
hópi þrjátiu togara I nótt, og
gerðu klippingatilraunir. Þær
tókust eWii vegna þess að
togararnir hiföu i snatri, sam-
kvæmt fyrirmælum frá freigát-
unum. Og enginn reyndi að
stugga við varðskipunum.
— Þeir voru mjög hissa þegar
þeir sáu Baldur á siglingu i
morgun. Baccante fór alveg
uppað honum og þar voru allir
sjónaukar á lofti. Svo hraðaði
hún sér á braut. Yarmouth er
áreiðanlega verr farin en
Baldur eftir ásiglinguna. Stefni
hennar þverbrotnaði um tvö fet
fyrir neðan akkeri og plöturnar
flettustfrá. Hún er ekki til stór-
ræöanna svona á sig komin.
— ÓT.