Vísir - 01.03.1976, Blaðsíða 2

Vísir - 01.03.1976, Blaðsíða 2
Hvaö finnst þér um al- mennu kjarasamningana? Halldór Bjarnason, matsvcinn: — Er þetta ekki alltaf sama skrúf- an? Kaupið er skrúfað upp á við og verðlagið er skrúfað upp á við. Þetta virðist engan endi taka. Það virðist lögmál að um leið og kaup hækkar, hækkar vöruverð. og ég býst við að sjálfsögðu við þvi sama núna. Steinunn ólafsdóttir, fulltrúi: — Ég er svolitið hrædd við gengis- fellingu og verðbólgu sem afleið- ingu þessara samninga. Mér finn- ast hækkanirnar alls ekki of háar, en kannski hefði verið rétt að fara aðrar leiðir til að ná fram sömu kjarabótum, án þess að eiga á hættu að bær færu út i verðlagið. Sigfús Sigurðsson, húsasmiður: — Ég held þetta séu samningar sem stöðvi og vinni upp þá kjara- rýrnun sem verið hefur siðastliðið ár. Þetta eru ekki verðbólgu- samningar. Ef svo væri, þá eru allir samningar verðbólgusamn- ingar. Ingibergur Hraundal, kokkur: — Ég tel þetta of litlar launahækk- anir. Það sér hver heilvita maður að þetta er ekkert kaup sem þeir lægstlaunuðu hafa. En ég held að samningarnir auki verðbólguna, og trúlega verður gengisfelling. Það hefði mátt ná kjarabótum á ýmsan annan hátt sem ekki væri eins verðbólguhvetjandi, eins og t.d. með skattabreytingum. Marta Bjarnadóttir, húsmóðir: — Mér finnast þetta ágætir samn- ingar. Launþegar eiga þessar hækkanir fyllilega skilið. En sjálfsagt kemur svo að verðhækk- unum og vafalaust gengisfell- Markús Jónsson: — Eru svona samningar ekki alltaf verðbólgu- samningar? Þetta eru kjarabæt- ur í bili, en aldrei að vita hvað þær endast. edrú"?!! Nei, það var vinið. En skiptir það máli? Vitan- lega! Hvað á fóik að drekka með matnum — vatn eða gos? Nei, þá er eins hægt aö leggj- ast undir kranann heima. Hvað hef ég að gera á veitingahús „edrú”? Standa þar eins og illa gerður hlutur? Ef ég skyldi nú hitta einhvern, sem ég þekkti, hvað ætti ég þá réttir fylltu hugann. Dagurinn runninn upp. En með einu pennastriki er myndin afmáð — þú getur ekki farið út i kvöld. Þeir tóku það frá okkur. — Vonbrigði, reiði — Hvað gerum við þá? Helgin eyðilögð. Hvað var tekið burtu? Var það maturinn, sem ilmað hafði i vitundinni? að gera? Það held ég að yrði hlátur. Dansa? — Nei, ég kann ekki að dansa, ekki þegar ég er „edrú”. Fólkið myndi glápa á mig og segja sin á milli: — Sérðu þennan, hann er „edrú”! Nei, ég afpanta. Hvernig er hægt að ætlast til að fullorðið fólk skemmti sér „edrú”? Halldór Arnason skrifar: Tilefni þessara skrifa er undirfyrirsögn i Morgunblað- inu sl. sunnudag. Þar stendur: — 400 manns afpöntuðu mat á Hótel Sögu. Mér varð hugsað til fórnar- lambanna. Fólk hafði beðið alla vikuna fullt eftirvænting- ar eftir stundinni. Nú átti að fara út að borða. Gómsætir SIGURBJÖRN OG MAGNÚS KÆRÐIR í „KLÚBBMÁLINU" Opinbert mál hefur verið höfðað í ,,Kiúbb- málinu" svokallaða. Rikissaksóknari hefur höfðað mál á hendur Sigurbirni Eiríkssyni veitingamanni og Magn- úsi Leópoldssyni fram- kvæmdastjóra fyrir brot á lögum um söluskatt, lögum um tekjuskatt og eignarskatt og bókhalds- lögum, við rekstur veit- ingahúsanna Glaumbæj- ar og Lækjarteigs 2 i Reykjavík. prumrannsókn þessa máls var i höndum Kristjáns Pétursson- ar, deildarstjóra hjá Tollgæsl- unni á Keflavikurflugvelli, en siðan tók Sakadómur Reykja- vikur við. Það er aðallega rann- sókn þessa máls sem Kristján hefur gagnrýnt að undanförnu hvað hafi gengið seint. Rann- sókn hófst i október 1972, og mestallan timann siðan hefur Sakadómur og rfkisskattstjóri séð um rannsókn. Að sögn Hall- varðar Einvarössonar, vara- rikissaksóknara, hófst aðal- rannsókn málsins hjá þvi emb- ætti ekki fyrr en i október sið- astliðnum. Siðustu gögn i rann- sókninni bárust frá rikisskatt- stjóra daginn áður en ákæru- skjalið var gefið út. Ekki í gæslu vegna þessa máls Þeir Sigurbjörn Eiriksson og Magnús Leópoldsson eru nú i gæsluvaröhaldi i fangelsinu i Siðumúla. Hallvarður Ein- varðsson, vararikissaksóknari, sagði að gæsluvarðhaldsvist þeirra stæði ekki i neinu sam- bandi við málshöfðun þá sem hér hefur verið skýrt frá. Aður hefur komið fram, að Magnús er i yfirheyrslum vegna rannsóknar hvarfs Geirfinns Einarssonar. Ekki hefur verið skýrt frá hvers vegna Sigur- björn situr inni. Skutu undan tugum mill- jóna Þeim Sigurbirni og Magnúsi er gefið að sök að hafa á tima- bilinu 1. janúar 1970 til október 1972 dregið undan söluskatti aö upphæð tæpar 3.5 milljónir. Sigurbirni er gefið að sök að hafa vanrækt að skila launa- framtölum vegna starfslauna i veitingahúsunum Glaumbæ og Lækjarteig 2. Sú upphæð nemur tæplega 30 milljónum króna og dreifist á skattárin ’70 og ’71. Ennfremur er honum gefið að sök að hafa vanrækt skattfram- töl þessi tvö ár, og þannig kom- ist undan að greiöa tekjuskatt kr. 3,2 milljónir, og útsvör eina og hálfa milljón. Loks er honum gefin aö sök stórfelld vanræksla og óreiðusemi i bókhaldi. Harðra refsinga krafist Saksóknari gerir þær dóm- kröfur á hendur þeim Sigur- birni og Magnúsi að þeir verði dæmdir til refsingar, sviptir leyfum til vinveitinga og veit- ingasölu og til greiðslu alls sak- arkostnaðar. Sakadómur Reykjavikur dæmir i málinu. Ef fallist verður á kröfur saksóknara mega hvorki Sigurbjörn né Magnús eiga þátt i, rekstri Klúbbsins — á yfirborðinu a.m.k. Ekki erú þó likur á þvi að Klúbbnum verði lokað, þvi endalaust má búa til hlutafélög til að sjá um reksturinn. Gagnrýni Kristjáns Kristján Pétursson deildar- stjóri hefur gagnrýnt i Visi m.a., að rannsókn á fjárreiðum Klúbbsins skyldi ekki ná nema tvö ár aftur i timann. Telur Kristján ærna ástæðu til að rannsaka fjárreiðurnar fimm til sex ár aftur i timann. En svo hefur ekki verið gert, og ákæra sú sem nú hefur verið gefin út miðast við þau timamörk sem rannsóknin hafði, þ.e. aftur til 1. jan. 1970. 100 milljónirá núgildandi verðlagi Samtals hljóða tölur i ákæru- skjalinu upp á tæpar 38 milljónir króna. En ef reiknað er til nú- gildandi verðlags nálgast þessi upphæö að vera 100 milljónir króna. Þess ber þó að gæta að um 30 af þessum 38 milljónum eru laun sem SigurbjÖrn hefur trassað að gefa upp. Ef tekjurn- ar sem hann notaði til að greiða þessi laun með komu á annað borð fram i bókhaldi, er það hans skaði að hafa ekki gefið þær upp. —ÓH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.