Vísir - 01.03.1976, Síða 4
4
Mánudagur 1. mars 1976 vism
ÓÍBÚÐARHÆFT
- ÞÓ LEIGT ÚT
Húsið lítur svo sem ekki ósnoturlega út af gömlu húsi
að vera. Stæði það á öðrum stað og eilítið lappað upp á
það mætti vel hugsa sér að búa í því enn um hríð.
Miðað við núverandi aðstæður er það óíbúðarhæft.
Ljósmynd JIM.
— Þaö lagaðist nú mikið, þeg-
ar vegurinn var fluttur yfir,
sagði Katrin. Umferöin er ekki
eins ærandi að hafa hana baka
til, þótt hún sé látlaus allan
sólarhringinn.
Hún sagðist hafa gert leigu-
samning til tveggja ára við
eiganda hússins og ætla aö sitja
út samningstimann, sem
rennur út um mánaðamótin
september^-otkóber i haust.
— Ég er vön að standa við
mina samninga, sagði Katrin.
Hélt að kviknað væri í
— Eigandi þessa hluta vildi
ekki selja fyrir það verö, sem
honum var boðið af borginni,
þegar hinn varð keyptur út,
sagði Katrin. Ég held að honum
hafi verið boðið fimm hundruð
þúsund fyrir húsið. Hann græðir
lika meira á þvi að leigja það
svona út.
Hún sagðist leigja út hæðina
fyrir tuttugu þúsund á mánuði
auk rafmagns og hita en annar
leigjandi væri i risibúðinni.
Bróðir eigandans hefði svo
verkstæði i kjallaranum.
Þegar austurendinn var rifinn
skemmdist hitalögnin að sögn
Katrinar. Oliukynding er i hús-
inu og hitað er upp með blásara.
Hefur kerfið verið i megnasta
ólagi siðan þá. Hitinn hefur ver-
ið af mjög skornum skammti og
kostnaðarsamt að kynda. Ekki
hefur henni tekist að fá þetta
lagfært hjá eiganda.
Það sem er alvarlegra ei að
mengunin i húsinu er svo mikil
að til verulegra óþæginda er
stundum.
— Ég vaknaði eitt sinn upp við
það, að loftið var orðið svo
þungt i ibúðinni, sagði Katrin,
að ég hélt að kviknað væri i. Ég
hringdi i lögregluna og bróður
eigandans, en hann sér um hús-
ið, þvi eigandinn býr i Kali-
forniu, og tilkynnti þeim að ég
heldi að kviknað væri i húsinu.
Svo var þó ekki, heldur var
kolsýringurinn svona mikill.
Sagðist Katrinu svo frá að
bróðirinn hefði brugðist þannig
við, að finna að þvi að hún hafði
samband við lögregluna, þvi
þetta væri ekkert mál. Blásara-
kerfið hefði aðeins litilsháttar
bilað. Meira var ekki gert i þvi
máli.
Mengunin yfir
heilbrigðismörkum
Katrin sagði okkur þvi næst
frá þvi að kona, sem leigði út
risið til skamms tima hefði
veikst og talið að menguninni
væri um að kenna. Sagði hún að
konan hefði fengið menn frá
heilbrigðiseftirlitinu til að mæla
mengunina. Hvað kom út úr
þeirri mælingu vissi hún ekki
nákvæmlega en hélt að hún
hefði veriðyfir mörkunum. Mun
læknirinn hafa ráðlagt konunni
að flytja.
— Ég ætla ekki að vera hérna
deginum lengur en út samnings-
timann, sagði Katrin. Ætli ég
reyni ekki að fá mér leigt ein-
hvers staðar annars staðar.
Bætti hún þvi við að hún vonaði
að þaö yrði ekki erfiðleikum
bundið þótt hún væri orðin
svona gömul, bráðum áttræð
sagði hún.
Gat á löggjöfinni
Visir reyndi að afla sér upp-
lýsinga um það hjá aðstoðar-
borgarlækni, sem með málið
fer, en hann var svo mjög upp-
tekinn við eftirlit vegna verk-
fallsins og þvi verður það að
biða oetri tima.
Kæmi það i ljós að bann væri á
húsinu, það væri lýst óibúðar-
hæft af heilbrigðiseftirlitinu, þá
leyfir löggjöfin ekki að eiganda
sé bannað að búa i húsinu. Jafn-
vel má það ganga kaupum og
sölum, ekkert sem bannar það.
Annað er brot á eignarréttar-
ákvæði stjórnarskrárinnar.
Leigjandi sem þegar er kom-
inn i húsið, má búa þar áfram
samningstimabilið en þó má
ekki framlengja það þegar hann
er farinn út.
— VS.
Glögglega má hér sjá hversu nærri húsið stendur Breiðholtsbrautinni. Helmingur
þessvarenda rifinn svo hægt væri að leggja brautina.
Hvernig þætti þér lesandi góður aðbúa þarna? Ljósmynd JIM.
brautorði samtali við Visi, þeg-
ar við litum inn hjá henni einn
daginn. Húsið sem hún býr i
stendur fast við Breiðholts-
brautina og á samkvæmt skipu-
lagi að hverfa. Reyndar er
helmingurinn þegar farinn,
austurhlutinn var rifinn i fyrra
þegar brautin var flutt norður
fyrir húsið og i núverandi mynd.
— Hérna getur ekki bú-
ið nema taugasterkt fólk
og útilokað að hafa börn í
húsinu. Það er ekki nóg
með að hávaðinn af um-
ferðinni sé gífurlegur
heldur er húsið svo gisið
og hitablásarinn í ólagi og
dregur svo mikið inn, að
þótt ég ryksjúgi allt að
kvöldi þá er allt orðið loð-
ið að morgni. Það er ekki
hægt að segja að húsið sé
leigufært.
Þannig fórust Katrinu Krist-
jánsdóttur, Heiði við Breiöholts-
Sálfrœðingar að lögum
,,Rétt til þess að
kalla sig sálfræðinga
hér á landi hafa þeir
einir sem til þessa hafa
fengið leyfi mennta-
málaráðherra”, segir i
frumvarpi til laga um
sálfræðinga sem
nýlega er búið að
leggja fram á Alþingi.
Astæður þess að frumvarp til
laga um sálfræðinga var lagt
fram eru skýrðar i greinar-
gerðinni:
Segir að starfi sálfræðinga
fylgi mikil ábyrgð og geti þeir
haft mikil áhrif á lif manna.
Ennfremur að þrátt fyrir að
þeir hafi verið ráðnir til starfa
einkum fyrir menntastofnanir
og heilbrigðisþjónustu hafi ekki
verið sett lög um starfsemi
þeirra og þvi hafi starfsheitið
sálfræðingur ekki notið neinnar
lögverndar. Þá hafi verið sett
lög um félagsráðgjöf en segja
megi að félagsráðgjöf og sál-
fræðingsþörf séu mjög tengd.
Sálfræðingar verða
gæta tungu sinnar
Ein greinin i lögunum um
sálfræðinga fjallar um að
sálfræðingi sé skylt að gæta
þagmælsku um atriði sem hann
fær vitneskju um i starfi sinu.
Þagnarskylda nái einnig til
samstarfsmanna sálfræðings
þar á meðal fræðimanna sem fá
aðgang að gögnum i visinda-
legum tilgangi.
Og svo fast er kveðið á um
þagnarskyldu, að þó sál-
fræðingur láti af störfum verður
hann aö vera áfram þögull sem
gröfin um atriði þau sem hann
fær vitneskju um i starfi sinu.
Hvar geta menn
lært til sálfræðings?
1 lögunum er það skilgreint
hvar menn geta lært sálarfræði
til þess að fá leyfi til að nota
starfsheitið sálfræðingur.
Leyfi má aðeins veita mönn-
um til aö kalla sig sálfræðinga,
sem lokið hafa kandidatsprófi
eða öðru hliðstæðu prófi i sálar-
fræði eða sálfræðilegri upp-
eldisfræði sem aðalgrein við há-
skóla á Norðurlöndum eða sam-
bærilegu prófi við aðra háskóla,
hvort tveggja að fenginni um-
sögn Sálfræðingafélags tslands.
Þá segir i lögunum: „Heimilt
er að veita þeim takmarkað eða
timabundið leyfi samkvæmt 1.
grein sem hafa aðra háskóla-
menntun en hafa við sjálfstæðar
sálfræðilegar eða uppeldis-
fræðilegar rannsóknir eða hag-
nýt störf sýnt að þekking þeirra
er sambærileg við þá sem nefnd
er i fyrstu málsgrein enda liggja
fyrir meömæli Sálfræðinga-
félags tslands.”
Sálfræðingar spretta
upp
t greinargerð með lögunum
kemur fram að nú stunda 100
manns nám i sálfræði við Há-
skóla tslands i fjórum árgöng-
um, sem þýða um 25 á ári.
Að auki stunda nokkrir tugir
islenskra stúdenta sálfræðinám
við erlenda háskóla. t greinar-
gerðinni segir og að gera megi
ráð fyrir að um það bil
helmingur þeirra sál-
fræðistúdenta sem nú nema við
Háskóla tslands fari til náms til
útlanda.
—EKG