Vísir - 01.03.1976, Side 6
VtRKFÖUUM AÐ
IINNA Á SPÁNI
Verkfallaaldan á Spáni virðist
nú i rénum eftir aö landið hefur
veriö meira og minna iamaö af
verkföllum siðan i janúar.
Forystumenn i verkalýðsmál-
um i Barcelona sögðu i gær að
vörubilstjórar og bygginga-
verkamenn þar i borg væru til-
búnir til að mæta aftur til vinnu.
Hins vegar virðast verkföll
vörubilstjóra annars staðar i
landinu ætla að halda áfram.
Viða er farið að gæta vöru-
skorts. Rikisstjórnin lét herinn i
fyrsta sinn i gær blanda sér i
deilurnar með þvi að aka
hreinsiefnum fyrir vatn til
bæjarins Badajoz.
Verkfall vörubilstjóra hefur
nú staðið i sjö daga. Þeir krefj-
ast lækkaðra vegatolla, og ódýr-
ara eldsneytis.
Um 80 þúsur\d bygginga-
verkamenn halda til vinnu i
dag. Þeir samþykktu að hefja
aftur vinnu eftir að hafa að
nokkru fengið kröfum fram-
gengt um hækkað kaup og stytt-
an vinnutima.
Var olíunjósnari
fyrir rússa í 30 ár
Virtur olíuverkf ræðing-
ur sem fannst skotinn til
bana i Dallas í Texas i gær,
er sagður hafa verið njósn-
ari fyrir sovétmenn í sam-
tals 30 ár.
Verkfræðingurinn, Norman
John Rees að nafni, var 69 ára
gamall. Lögreglan i Dallas telur
að hann hafi framið sjálfsmorð.
Dagblaðið Times-Herald sagði að
Rees hafi viðurkennt i viðtölum
nýlega að hann hafi tekið við
þúsundum dollara frá Sovétrikj-
unum siðan 1942. 1 staðinn hafi
hann látið i té upplýsingar um
oliuvinnslutækni bandarikja-
manna. Rees vann fyrir Mobil Oil
i 20 ár.
Times-Herald segir að Rees
hafi fengið 5 þúsund dollara árs-
laun frá sovétmönnum þegar
hann samþykkti árið 1971 að
vinna sem gagnnjósnari fyrir
FBI.
Bandariska alrikislögreglan
FBI viðurkenndi að hún hefði vit-
að af samböndum Rees við út-
lenda embættismenn og hefði
nokkrum sinnum yfirheyrt hann
þess vegna.
Times-Herald segir að i viðtöl-
um hafi Rees sagst hafa verið
hlynntur málstað rússa i seinni
heimsstyrjöldinni og þá tekið að
láta þeim i té upplýsingar.
Það mikilvægasta sem hann
hafi skýrt frá hafi veriö ný tækni
um hvernig mátti nýta hráoliu
betur. En Rees sagðist hin siðari
ár hafa farið að sjá eftir þessu
öllu saman, en einhvern veginn
hafi verið ómögulegt að sleppa.
Umdeilt listaverk
120 múrsteinar á tveimur hæöum mynda þetta
listaverk sem er til sýnis ; Tate sýningarsalnum i
London. Nokkra gremju hefur vakió. aö talíð er aö
..listaverkið” hafi verið keypt fyrir dálagle ;a upp-
hæö frá Webster listasafninu i New York. Ungur
maöur skvetti máiningu á gripinn fyrir nokkrum
dögum, og var lagt I mikinn kostnaö viö aö hreinsa
múrsteinana.
Þegar vcrkiö var fyrst sett á sýningu átti þaö aö
kosta nokkur þúsund dollara, en enginn kaupandi
fékkst.
Wakasa, stjórnarforseti japanska flugfélagsins All Nippon, hneigir
sig af japanskri kurteisi fyrir fjárveitingarnefnd þingsins eftir
að hafa flutt henni skýrslu um tengsl fyrirtækisins viö Lockheed
Yfírheyrslur í Japan
um Lockheed-mútur
Fyrrum forstjóri japanska
flugfélagsins All Nippon Air-
ways sagði við yfirheyrslur
þingnefndar i gær aö hann hefði
verið búinn að gera drög að
samningi um kaup á DC-10 þot-
um frá McDonnell Douglas,
áður en flugfélag hans ákvaö að
skipta um og kaupa Tristar þot-
ur frá Lockhecd.
Forstjórinn, Tetsuo Ohba, er
eitt mikilvægra vitna sem
kemur fyrir japönsku þing-
nefndina sem rannsakar
ásakanir um mútur Lockheed
flugvélaverksmiðjanna. Hann
var forstjóri All Nippon þar til
1970. Hann sagðist hafa sagt
forseta stjórnar félagsins af
samningnum, þegar hann lét af
störfum. Forsetinn sagði hins
vegar við yfirheyrslur fyrir
hálfum mánuði að hann hefði
ekki vitað um neina samninga
við McDonnell-Douglas.
Um tíu þús-manns komu saman til útifundar i Hibiyagarðinum
I Tokyo fyrir nokkru til að láta i ljós hneykslun sina á Lockhecd-
mútumálinu.
BÚIST VIÐ UM-
BROTUM í HEARST
RÉTTARHÖLDUM
Búist er við ýmsum viðburð-
um við réttarhöldin yfir Patty
Hearst sem hefjast að nýju i
dag. Ákærandinn hefur gefið i
skyn að hann hafi leynivitni, en
verjandinn hefur undirbúið
ýmislegt til aö klekkja á sál-
fræðingum þeim sem ákærand-
inn hefur kallað fyrir.
Verjandinn, F. Lee Bailey,
leggur mikla áherslu á að Patty
hafi verið heilaþvegin, en
ákærandinn fær i dag þrjá sál-
fræðinga til að tjá sig um það
atriði.
Lögreglan rak verslun með stolna muni
Rúmlega 150 þjófar,
ræningjar og svikahrapp-
ar voru handsamaöir í
Washington í gær eftir aö
lögreglan haföi i fimm
mánuði samfleytt spunn-
iö utan um þá köngulóar-
vef sinn. — Til þess notaði
hún falska vöruskemmu
og þóttist versla meö stol-
ið góss.
A þessum fimm mánaða tima
komu þjófar með stolið góss til
vöruskemmunnar fyrir verð-
mæti um 2,4 milljónir dollara. —
Kenndi þar margra grasa, eins
og hjartalungavéla sem horfiö
höfðu úr sjúkrahúsi.
Um 500 lögregluþjónar
brugöu sér i ýmis gervi og þótt-
ust vinna við vöruhúsið sem átti
að heita rekið af mafiunni.
Þessi umsvif urðu til þess aö
lögreglan hefur nú handtöku-
skipuná 183einstaklinga, og þar
á meðal er einn lögfræöingur
hjá dómsmálaráöuneytinu sem
gefið er aö sök að þiggja mútur.
Saksóknari Washington segir
að einn hinna grunuöu hafi sótt
um starf sem leigumorðingi hjá
vöruhúsinu....skriflega meira
aö segja.
Botninn i vöruhúsarekstur
þennan sló lögreglan með þvi að
bjóða sextiu ,,tryggustu við-
skiptavinunum” til veislu i
vöruhúsinu. Jafnharöan og
gestirnir komu inn um aðal-
dyrnar voru þeir leiddir út i lög-
reglubifreið bakdyramegin.
New York-lögreglan lék
svipað bragð i fyrra og setti á
svið verslun með stolna muni.
Eins og nú var henni lokað meö
smásamsæti.