Vísir - 01.03.1976, Síða 14
14
f
Peter Barncs stekkur yfir Mike Mahoney markvörð Ncwcastle eftir að hafa skorað fyrsta mark Manchester City i úrslitaleiknum i ensku
deiidarkeppninni á Wembley leikvanginum á laugardaginn. Leikmenn Newcastie eru i röndótta búningnum, Pat Howard (6), Glen Keeler
(5) og Tommy Graig (11). Liggjandi er Joe Royl (9) Manchester City. Dómarinn Jack Taylor er vel staðsettur og sér greinilega hvað fram
fer.
Sóknarleikurinn var í
fyrirrúmi á Wembley!
Manchester City sigraði New’-
castle United i úrslitaleik enska
deildarbikarsins á Wembley
leikvanginum i London á laug-
ardaginn með tvcimur mörkum
gegn einu — i skemmtilegum
leik —þar sem sóknarleikurinn
var i fyrirrúmi. Sigurmark
Manchester skoraði Dennis
Tueart með hjólhestaspyrnu á
fyrstu minútunum í siöari hálf-
leik.
Baráttan um Englandsmeist-
aratitilinn er enn i algleymingi
og nú eru þrjú lið efst og jöfn I 1.
deild, Liverpool, QPR og Man-
chester United með 43 stig,
Derby er með 42 stig og Leeds er
enn meö í baráttunni, er með 38
stig — en hefur leikið tveim
leikjum minna en hin liðin.
Staða neðstu liðanna er ó-
breytt, en Arsenal tryggði stöðu
sina verulega með óvæntum
sigri I Middlesbrough.
Newcastle með fjóra leik-
menn nýrisna uppúr innflú-
ensku sótti meira fyrstu minút-
urnarileiknumgegn Machester
City, Malcolm MacDonald átti
fyrsta hættulega markskotið, en
markvörður City, Joe Corrigan
varöi i' horn — og Alan Gowling
var nálægt aö skora með skalla.
En á 9. minútu náöi Man-
chester forystunni. Þá tók Ger-
ard Keegan aukaspyrnu, sendi
fyrir mark Newcastle — Joe
Royl skallaði boltann aftur fyrir
sig til Peter Barnes — og hann
skoraðiörugglega af stuttu færi.
Skömmu siöar skapaði Keegan
mikla hættu með hraða sinum,
en fyrirliði Newcastle, Tommy
Graig afstýröi hættunnimeð þvi
að stöva boltann með höndun-
um.
Newcastle jafnaði metin á 34.
minútu, þá fékk MacDonald
sendingu frá Tommy Cassidy út
á hægri vænginn, lék upp og
sendi góðan bolta fyrir markið á
Aian Gowling sem skoraði
Dennis Tueart átti siðan gott
marktækifæri á siöustu minút-
um fyrri hálfleiks, en hann hitti
illa af stuttu færi — boltinn
hrökk i markvörð Newcastle,
Mike Mahony — og út aftur.
Tueart skoraði svo þegar á
fyrstu minútunni i siðari hálf-
leik, litil hætta virtist yfirvof-
andi þegar Asa Hartford skall-
aði boltann til Teart, en skyndi-
lega kastaði hann sér afturábak
og spyrnti boltanum með hjól-
hestaspyrnu i mark Newcastle.
Ekki voru fleiri mörk skoruð
þráttfyrirtækifæriá báða bóga,
Tommy Graig og Mick Burns
voru nálægt að skora fyrir New-
castle og Tommy Booth skallaði
framhjá úr dauðafæri — eftir að
Tueart hafði leikiö laglega á
Irvin Nattrass.
Þetta er i annað sinn sem
Manchester City sigrar i deild-
arbikarkeppninni og hefur að-
eins eitt lið unniö þessa keppni
tvisvar áður. — Tottenham 1971
og 1973. Framkvæmdastjóri
Manchester City er Tony Book.
Hann geröist ekki atvinnumað-
ur fyrr en hann var orðinn þri-
tugur, þá með Manchester og
leiddi liðið m.a. til sigurs i 1.
deildarkeppninni 1968, bikar-
keppninni 1969 og i deildarbik-
arkeppninni 1970.
Liðin voru þannig skipuð:
Manchester City: Joe Corrig-
han, Gerard Keegan, Willie
Donachie, Mick Doyle, Dave
Watson, Alan Oakes, Peter
Barnes, Tommy Booth, Joe
Royl , Asa Hartford, Dennis
Tueart.
Newcastle:Mike Mahoney, Irv-
ing Nattrass, Alan Kennedy,
Stewart Barrowclough, Glen
Keeley, Pat Howard, Mick
Burns, Tom Cassidy, Malcolm
MacDonald, Alan Gowling,
Tommy Graig.
Leikinn dæmdi Jack Taylor
frá Wolverhampton, sá sami og
dæmdi úrslitaleikinn i heims-
meistarakeppninni i Vest-
ur-Þýskalandi. Ahorfendur á
Wembley voru 100 þúsund.
En þá eru það úrslit leikjanna
á laugardaginn:
Deildarbikarinn úrslit:
ManchesterCity-Newcastle 2:1
1. deild.
Birmingham -Norwich 1:1
Burnley-Aston Villa 2:2
Coventry-Leeds 0:1
Derby-Liverpool 1:1
Everton-Wolves 3:0
ManchesterUtd.-WestHam 4:0
Middlesboro-Arsenal 0:1
Sheff.Utd.-QPR 0:0
Tottenham-Leicester 1:1
2. deild
Bolton-Hull 1:0
BristolR.-Blackpool 1:1
Chelsea -Blac kburn 3:1
Luton-Sunderland 2:0
Notth.For.-Oldham 4:3
Orient-Fulham 2:0
Oxford-Plymouth 2:2
Portsmouth-Notts C. 1:3
WBA-Bristol C. frestað
York-Southampton 2:1
Leikmenn Manchester United
voru i miklum ham I siðari hálf-
leik gegn West Ham, ekkert
mark var skorað i fyrri hálfleik,
en á 49. minútu fann Alex For-
syth leiðina framhjá Mevin Day
i marki West Ham — og eftir
það var ekki aftur snúið. Tveim
minútum siðar bætti Gerry Daly
ööru markinu við, David Mc-
Creery skoraði þriðja markiö
eftir góðan undirbúning Stuart
Persons — og fjórða markið
skoraði svo Person tveimur
minútum fyrir leikslok. Ahorf-
endur 57.240.
Charlie George náöi foryst-
unni fyrir Derby gegn Liverpool
með marki úr vitaspyrnu, eftir
að Emilyn Hughes haföi fellt
Arcliie Gemmill innan vitateigs.
Þetta var 22. mark George á
keppnistimabilinu og þar af
hefur hann skorað sex úr vita-
spyrnum.
En þremur minútum fyrir
leikslok tókst Ray Kennedy aö
jafna fyrir Liverpool, hann fékk
þá stungubolta frá Steve Heigh-
way, lék á Roy McFarland og
skoraði framhjá Graham Mose-
ley markverði Derby, sem kom
engum vörnum við. — Áhorf-
endur 32.800.
Með sigri i Sheffield hefði
QPR tekiö forystuna i 1. deild,
en leikmenn liösins voru ekki á
skotskónúm þrátt fyrir mýmörg
marktækifæri. Þeir fengu t.d.
sjö hornspyrnur á sjö minútum I
fyrri hálfleik og hittu stengurn-
ar tvivegis. Don Masson kórón-
aði svo allt, þegar hann lék á
markvörð Sheffield, Jim
Brown, en missti siðan boltann
aftur fyrir þegar tómt markið
blasti við.
Leeds er enn meö i baráttunni
um meistaratitilinn eftir mikinn
heppnissigur i Coventry. Eina
mark leiksins skoraði Frank
Gray i siöari hálfleik. Billy
Bremner og Joe Jordan léku
ekki með Leeds sem var ekki
svipur hjá sjón og verða leik-
menn liðsins að taka sig alvar-
lega á ef þeir ætla ekki að missa
af lestinni. Ahorfendur á High-
field voru 25.563 —
Arsenal vann mikilvægan sig-
ur i Middlesbrough og þokaði
sér þar með burtu af hættu-
svæðinu. Mark Arsenal skoraði
John Radford. Þetta er annar
leikurinn sem Middlesbrough
— Þegar Manchester City sigraði Newcastle í úrslitaleiknum í
ensku deildarbikarkeppninni í œsispennandi leik
tapar á heimavelli á keppnis-
timabilinu. Ahorfendur: 20.000.
Úlfarnir steinlágu I Liverpool
gegn Everton og voru öll mörk
Everton skoruö á fjórum minút-
um i fyrri hálfleik. George Tel-
fer skoraði það fyrsta á 28. min-
útu, Brian Hamilton skoraði
annað markiö og Telfer bætti
svo þvi þriðja við með skalla
sem Phil Parkes i marki Clf-
anna varði — en hélt ekki.
Áhorfendur 21.827.
Ray Graydon náði forystunni
fyrir Aston Villa i leiknum gegn
Burnley með „þrumufleyg”
beint úr aukaspyrnu um miðjan
fyrri hálfleik — og átti allan
heiðurinn af marki Andy Gray
þrem minútum siðar. Bryan
Flynn jafnaöi svo fyrir Burnley
með tveim mörkum — það fyrra
með „þrumufleyg” á siðustu
mínútunni I fyrrihálfleik og svo
strax i upphafi siðari hálfleiks.
Ahorfendur 17.123.
Trevor Francis skoraði fyrir
Birmingham úr vitaspyrnu eftir
að hafa verið felldur innan víta-
teigs I leiknum gegn Norwich,
en Martin Peters jafnaði fyrir
Norwich — skoraði beint úr
aukaspyrnu. Ahorfendur 22.359.
Tottenham náði forystunni i
leiknum gegn Leicester með
marki Martin Chivers i fyrri
hálfleik, en Steve Kember jafn-
aði fyrir Leicester i siðari hálf-
leik.
Bolton hefur nú forustuna i 2.
deild eftir mikilvægan sigur
gegn Hull. Mark Bolton skoraði
Peter Thompson. Sunderland
tapaði dýrmætum stigum i
Luton og var litt sannfærandi.
Moncur skoraði sjálfsmark i
upphafi siöari hálfleiks og Ron
Futcher gulltry ggði sigur Luton
i leiknum skömmu siðar eftir
sendingu frá Husband. Chelsea
vann öruggan sigur gegn Black-
burn á Stamford Bridge — mörk
Chelsea skoruðu Wilkings tvö og
Finnestone. Southampton tap-
aði óvænt i York — Cave náöi
forystunni fyrir York, en
Channon jafnaöi fyrir „Dýrling-
ana”. Sigurmark'York skoraði
svo Hinch úr vitaspyrnu.
Nottingham Forest vann Old-
ham í hörkuleik, Bultin, O’Neil
tvö og Curran úr viti skoruðu
fyrir Forest, en Shaw, Bell og
Hicks skoruöu mörk Oldham.
Flestir voru áhorfendurnir á
leik Bolton og Hull — 21.781, en I
York voru þeir aðeins 3.767.
I 3. deild er Hereford efst með
45 stig og þrjú liö Brighton,
Crystal Palace og Shrewsbury
koma þar á eftir með 39 stig.
Staðan er nú þessi:
1. deild
Liverpool
QPR
Man.Utd.
Derby
Leeds
Middlesb.
Man.City
Everton
West Ham
Ipswich
Leicester
Tottenham
Coventry
Newcastle
Stoke
Arsenal
Aston Villa
Norwich
Birmingh.
Burnley
Wolves
Sheff.Utd.
2. deild
Bolton
Bristol C
Sunderland
NottsC.
Southamp.
WBA
Luton
Oldham
Nott. For.
Fulham
Chelsea
Bristol R
Plymouth
Charlton
Blackpool
Carlisle
Orient
Hull
Blackburn
Oxford
Portsm.
York
32 15 13 4 49:25 43
33 16 11 6 47:25 43
32 17 9 6 51:29 43
32 17 8 7 52:41 42
30 16 6 8 47:31 38
32 12 10 10 35:29 34
30 12 9 9 47:28 33
31 11 11 9 48:53 33
32 13 7 12 40:48 33
30 10 12 8 37:32 32
32 8 15 9 34:42 31
32 814 10 42:50 30
32 10 10 12 34:41 30
29 11 7 11 53:42 29
29 11 7 11 35:36 29
32 11 7 14 35:38 29
32 9 11 12 39:45 29
30 10 812 44:46 28
31 9 517 42:58 23
33 7 9 17 37:52 23
32 7 8 17 34:53 22
32 2 9 21 22:60 13
29 16 8 5 48:27 40
31 15 10 6 46:26 40
30 17 5 8 47:29 39
31 16 7 8 46:29 39
31 16 5 9 54:36 37
30 13 10 7 33:27 36
31 14 7 10 44:36 35
32 12 9 11 47:50 33
31 11 9 11 40:33 31
31 11 9 11 40:36 31
32 11 9 12 41:42 31
31 9 13 9 29:33 31
33 11 8 14 43:44 30
30 12 6 12 45:53 30
31 10 10 11 30:36 30
32 10 10 12 36:45 30
29 10 9 20 26:27 29
32 11 6 15 33:39 28
31 7 12 12 29:38 26
31 5 11 15 29:45 21
32 6 6 20 23:47 18
32 6 5 21 26:57 17
—BB