Vísir - 01.03.1976, Side 20
-*>r g) Þin—r_____________________________________________-pommi_______________________________________-JOS 020 mmnozþ ncrrom T3—xi___________________________Z>nj>h
20
Mánudagur 1, inars 1976
vísm
Þetta var semsé attökusveitin.Bogmenn,|
hrópaöi Rambul, veriö viðbúnir.
Spáin gildir f. Þriöjudag 2. mars
W
Hrúturinn
21. mars—20. aprfl:
Leggðu ekki út i neina tvteýnu,
þvi að stjörnurnar eru þér ekki
hagstæðar. Ef þú ferð i leikhúsið i
kvöld, reyndu þá að koma auga á
persónulegan boðskap i leiknum.
Nautiö
21. apríl—21. mai:
Þú munt sigrast á gömlum ávana
og lif þitt færast i eðlilegra horf.
Finndu þér áhugamál, sem reynir
á imyndunaraflið. Eitthvað lif
mun færast i ástamálin.
m
Tviburarnir
22. mai—21. júni:
Vinna verður bug á einhverjum
misskilningi, eða vináttubönd
kunna að vera i hættu. Ef þú vilt
ekki verða af góðu tækifæri,
skaltu ekki vera pennalatur.
Krabbinn
21. júni—23. júlí:
Ætlir þú i ferðalag, leggðu þá
snemma af stað, þvi að tafir eru
fyrirsjáanlegar. Forðastu þá,
sem fara i taugarnar á þér, ann-
ars skapast þrýstingur.
Nt
l.jóniö
24. júll—23. ágúst:
Fjármál þin verða stöðugri ogþú
munt komast að raun um, að þú
hefur efni á einhverju, sem þú
taldir þig ekki hafa. Láttu nú
enga fljótfærni eftir þér.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Þiggðu vingjarnlegar ábendingar
i kvöld. Láttu fjölskyldumálin
sitja á hakanum, þar til þér gefst
betra tóm til að hugsa. Ef til vill
hefur einhver annar á réttu að
standa, þrátt fyrir allt.
Vogin
24. sept.—23. okt.:
Settu sig i spor eldri manneskju,
og reyndu að sjá sjálfan þig út frá
hennar sjónarmiði. Strax og þú
byrjar á tómstundagamni þinu,
ætti allur dapurleiki að hverfa
eins og dögg fyrir sólu.
Drekinn
24. okt.—22. nóv.:
Nú er timi til samvinnu. Einhver
er einmana, og vill taka þátt i
félagslifi þinu. Fáðu hann með,
það mun borga sig.
Kogmaöurinn
23. nóv.—21. des.:
Láttu ekki blanda þér i deilur um
mikilvæg málefni i dag, þvi
að sumir eru uppstökkir. Þér
berst óvænt gjöf, en vafi leikur á
um gefandann.
&
Steingeitin
22. des.—20. jan.:
Nú er stundin runnin upp, og þú
verður að taka mikilvæga
ákvörðun um líf .þitt. Gefðu þér
tóm til að hugsa málin i ró og næði
i kvöld. Ráðleggingar annarra
kunna ekki alltaf að koma að
gagni.
Vatnsberinn
21. jan.— 1». febr.:
Hvað félagslifið varðar, er best
að hafa sig ekkert i frammi, eða
ný skyldustörf kynnu að hlaðast á
þig. Þér berst væntanlega bréf
með góðum fréttum.
Fiskarnir
_________ 20. febr.—20. mars:
Einhver þér nærkominn mun að
öllum likindum biðja þig um f jár-
hagsaðstoð, þ.e. slá þig um lán.
Þú hefur verið að reyna að afla
þér stuðings við nýtt viðfangsefni,
en óvist er um, hvort þú færð