Vísir - 06.03.1976, Blaðsíða 5

Vísir - 06.03.1976, Blaðsíða 5
vism Laugardagur G. marz 1976. EINOKUN EÐA FRELSI Örlítil von Uppstokkun sú sem varð í is- lenzkum blaðaheimi þegar ný rit- stjórn settist i stólana 'á Visi ög Dagblaðið hóf göngu sina, hefur efalaust orðið til að opna augu margra fyrir nauðsyn frjálsra fjölmiðla. Þær raddir heyrðust viða, þegar uppstokkunin varð, að nú yrði Visir loks bundinn á klafa flokksjötunnar, og búið væri með frjálsa, islenzka blaða- mennsku. En reyndin hefur orðið önnur. Undir djarfri og hressi- legri stjórn Þorsteins Pálssonar hefur Visir komizt nær þvi en nokkur annar islenzkur fjölmiðill að geta borið orðið Frjáls með réttu. En islenzkir fjölmiðlar eiga þó enn langt i land, til að geta þjónað þvi hlutverki sem lýðræðið ætlast til: að veita aðhald og upplýsa. Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni, að þótt tugir Watergatehneyksla kæmu upp á yfirborðið i islenzku þjóðfélagi og þar riðu bisperrtir Nixonar af óliklegustu tegundum, gætu is- lenzkir fjölmiðlar ekki velt bófun- um af baki. íslenzkir fjölmiðlar eru enn á steinaldarstigi boriö saman við bandariska blaða- mennsku. Allur hugsunarháttur á þessu sviði er svo heimóttarlegur, að kraftaverk má teljast að dag- blöðin séu ekki rikisrekin og full- komlega einokuð, eins og útvarp og sjónvarp. Sú stefna sem hinn nýi ritstjóri á Visi hefur mótað upp á siðkastið hefur hins vegar vakið nýjar von- ir. Ég ætla að vitna hér i nokkra leiðara Þorsteins Pálssonar, þar (Umsjón: ^ ^ ^Hrafn^Gunnlaugsson^ sem hann tekur fyrstur islenzkra leiðarahöfunda af skarið og kem- ur fram með tillögur og kröfur um að afnumin verði rikiseinokun útvarps og sjónvarps á tslandi. Mér er ekki grunlaust um, að framtiðin eigi eftir að lita til baka og leita upp þessi skrif, sem fyrsta visi að markvissri baráttu fyrir afnámi rikiseinokunar hugs- unar og orðs á tslandi. Frjálst útvarp Þann 20. des. 1975 birtist i Visi leiðari sem bar nafnið: Frjáls út- varpsrekstur. Þar segir m.a.: „Málsvarar rikiseinokunarinn- ar hafa alla jafnan haldið þvi fram, að útvarpsrekstur væri svo dýr, að ógerlegt væri að gefa hann frjálsan af þeim sökum. Með þvi móti væri verið að gefa fjársterkum aðilum of mikil for- réttindi. Hugsanlegt er, að þetta hafi verið gild rök á sinum tima. En það er þá löngu liðin saga. Nú má setja á fót útvarpsstöð með litlum tilkostnaði. Það er á færi hvers sem er að standa fyrir slikum rekstri, bæði einstaklinga og félaga. Reksturskostnaðurinn gæti verið brotabrot af útgáfu- kostnaði dagblaðs. Tjáningarfrelsið er einn af hornsteinum lýðræðisskipulags- ins. Þjóðfélagið þarf einnig að viðurkenna rétt manna til þess að koma á framfæri sjónarmiðum sinum, hugverkum eða öðru efni. Einn þáttur i þvi er að gefa út- varpsrekstur frjálsan innan þeirra marka, sem tæknilegar aðstæður leyfa.” Hér bendir leiðarahöfundur á þá staðreynd, sem allir sem eitt- hvað hafa fengizt við fjölmiðlun vita, að rekstur frjálsra útvarps- stöðva, er i dag miklu minna og einfaldara mál, en t.d. útgáfa timarits, hvað þá heldur dag- blaðs. Höfundur slær siðan botn i leiðarann með þessum orðum: „Stundum hefur verið á það minnst að létta einokuninni af i áföngum með þvi að heimila i fyrstu landshlutaútvörp. Slikar hugmyndir eru góðra gjalda verðar. t raun réttri er þó óþarfi að vera með slikt hálfkák. Við eigum óhikað að stiga skrefið til fulls og gefa útvarpsrekstur á Is- landi frjálsan.” Undir þessi orð geta allir frjáls- hyggjumenn á tslandi tekið, hvar i flokki sem þeir standa. Áfram skal barizt Þann 16. febrúar skrifar Visir aftur leiðara þar sem fjallað er um frjálst útvarp og nú er tónninn enn ákveðnari: „Sennilega má bæði rekja það til sofandaháttar og þröngsýni, að stjórnmálamenn hafa ekki enn leyft frjálsan útvarpsrekstur innan þeirra marka, sem tækni- legir möguleikar leyfa. Frjáls- hýggjumenn i stjórnmálum virð- ast einfaldlega ekki hafa gefið nýjungum á þessu sviði nægjan- lega gaum. Þröngsýnir stjórnmálamenn hafa yfirleitt borið fram þá mót- báru gegn frjálsum útvarps- rekstri, að hann myndi leiða til óhæfilegrar mismununar i þjóð- félaginu. Þvi hefur verið haldið fram, að hér væri um svo um- fangsmikinn rekstur að ræða, að einvörðungu mjög fjársterkir aðilar gætu komið sliku fyrirtæki á fót. Þetta er á miklum misskilningi byggt. Það þurfa ekki allar út- varpsstöðvar að vera á borð við rikisútvarpið. Segja má, að það sé á færi hvers dugandi skóla- nemanda að starfrækja litla út- varpsstöð. Eins og nú háttar eru þetta þvi engin rök. Útvarp er ein af þeim leiðum, sem fólk hefur til þess að koma hugmyndum sinum og skoðunum á framfæri af hvaða tagi sem er. Með rikiseinokun á útvarpi er i raun réttri verið að takmarka möguleika manna til frjálsrar fjölmiðlunar. Sums staðar viðgengst rikis- eða flokkseinokun á blaðaútgáfu. Sá háttur samræmist ekki hug- myndum um frjálsa skoðana- myndun og i raun réttri gildir slikt hið sama um útvarpsrekst- ur.” Þessi orð Þorsteins Pálssonar ættu að vera hvatning öllum þeim sem vilja auka frelsi á þessu landi. Ungt fólk á íslandi á að stefna að þvi, að rödd eins og þessi berist inn á Alþingi Islendinga og að þessi rödd beri frjálst útvarp fram til sigurs. Að sniða stakk Ég slæ botn i þessa flugu með þvi að taka hér enn eitt dæmi um þann nýja anda sem býr i skrifum Þorsteins Pálssonar. 1 eftirfarandi orðum bendir hann á hryggilega staðrevnd. Staðreynd sem kallar á nýja menn. Ekki þá sem tala og tala, en þora aldrei að gera neitt sem skiptir sköpum, heldur menn sem eru reiðubúnir að leiða hugsjónir fram til sigurs: „Vinstri stjórnin fylgdi á sinum tima takmarkalausri rikisum- svifastefnu. Núverandi rikis- stjórn hefur i öllum aðalatriðum fetað i sömu spor. Minniháttar til- raunir hafa þó verið gerðar til þess að draga úr rikisumsvifum, en þær hafa i raun réttri litinn árangur borið. Þannig virðist einu gilda, hvort við völd situr vinstri rikisstjórn eða stjórn, þar sem frjálshyggju- sjónarmið ætti að gæta i veru- legum mæli. Rikisums vifa- stefnan heldur áfram. Það er þvi kominn timi til að menn hugleiði i fullri alvöru, hvert við stefnum.” Ég sagði hér að ofan að þessi orð væru hryggileg staðreynd. Já, það er svo sannarlega hryggilegt hve slappir þeir menn eru, sem sitja i rikisstjórn i dag og kalla sig frjálshyggjumenn. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 57., 58. og 59. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á hluta i Njálsgötu 112, þingl. eign Kjartans Iialldórssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eign- inni sjálfri miðvikudag 10. mars 1976 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 64., 65. og 66. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á hluta i Alftamýri 20, þingl. eign Valgerðar Kristjánsdótt- ur, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands og Skúla J. Pálmasonar hrl. á eigninni sjálfri, þriðjudag 9. mars 1976 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á Borgargerði :t, þingl. cign Karólinu B. Sveinbjörnsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri, þriðjudag 9. mars 1976 kl. 15.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Húsbyggjendur Finanoriinarnlast \ \f*> Llllullgl Uliai pluoli Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-Reykjavikursvæðið með stuttum ýrirvara. Afhending á byggingarstað. >TX \ IIAGKVÆMT VERD. GREIDSLUSKILM ALAR Borgarplast hf. > ** Borgaruesi simi: 93-7370 Kvöldsimi 93-7355. Einnig getið þér haft samband við söluaðila okkar i Iteykjavik: IÐNVAL Bolholti 4. Siinar 83155— 83354. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 57., 58. og 59. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á Hraðfr.vstihúsinu v/Kirkjusand. þingl. eign Kirkjusands h.f. fer fram eftir kröfu Gjaidheimtunnar i Reykjavik og Tryggingast. rikisins á eigninni sjálfri, þriðjudag 9. niars 1976 kl. 10.50. Borgarfógetaembættið i Reykjavik.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.