Vísir - 05.05.1976, Síða 8

Vísir - 05.05.1976, Síða 8
8 m Miðvikudagur 5. mai 1976 vism VÍSIR Útgefandi: Iteykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Kitstjórar: l>orsteinn Pálsson, ábm. Ólafur Kagnarsson Kitstjórnarfulltnii: Bragi Guðmundsson Fréttastj. erl. frétta: Guðmundur Pétursson Blaðamcnn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Emilia Baldursdóttir, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Sigurveig Jóns- dóttir, Valgarður Sigurðsson, Þrúður G. Haraldsdóttir. iþróttir: Bjöm Blöndal, Kjartan L. Pálsson. Útlitsteiknun: Arnór Ragnarsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: James H. Pope, Loftur Ásgeirsson. Aglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiðsla: II verfisgötu 44. Simi 86611 Kitstjórn: Siðumúla 14. Simi86611.7 linur Askriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprcnt hf. Pólitiskt afl Að undanförnu hafa spunnist talsverðar umræður um pólitiskt afl launþegasamtakanna. Þungamiðj- an i ræðu Björns Jónssonar á fyrsta mai var þannig krafa um aukin pólitisk áhrif verkalýðshreyfingar- innar. Einfaldar kröfur um þetta efni hafa i vaxandi mæli verið settar fram upp á siðkastið. Mjög skortir þóá að formælendur hugmynda um aukið pólitiskt afl verkalýðshreyfingarinnar hafi skýrt út hvað fyr- ir þeim vaki i raun og veru. Hér eru a.m.k. tveir kostir fyrir hendi. í fyrsta lagi getur verið um það að ræða, að menn vilji móta starf launþegafélaganna á pólitiskum grunni ein- vörðungu. í annan stað má lita svo á, að með þess- um hugmyndum séu einstakir forystumenn i verka- lýðshreyfingunni að óska eftir annarri ríkisstjórn. Þau almennu orð, sem fallið hafa, gefa ekki til kynna að mörkuð hafi verið ákveðin stefna um þetta efni. En umræður um pólitisk hlutverk verkalýðs- hreyfingarinnar eru góðra gjalda verðar, enda ræð- ur hún orðið æði miklu um framvindu efnahags- mála. Pólitísk ábyrgð aðila vinnumarkaðarins er hins vegar engin. Launþegafélögin hafa á siðari árum beint starfi sinu i æ rikari mæli inn á faglegar brautir. En reip- tog stjórnmálaaflanna hefur meira færst undir yfir- borðið. Engum vafa er undirorpið að þessir breyttu hættir hafa styrkt launþegasamtökin til mikilla muna. Hér er um að ræða sæmilega samhentan hags- munahóp og mjög áhrifamikinn. Stjórnmálaöflin hafa i mörg undanfarin ár verið heldur á undan- haldi gagnvart hagsmunahópunum og þá ekki sist samtökum launþega. Aukin pólitisk hjaðningavig innan launþegafélaganna myndu þvi að öllum lik- indum heldur draga úr áhrifavaldi þeirra. En um leið og áhrifavald hagsmunahópanna minnkar er ekki óliklegt að pólitiska valdið eflist. Fæstum blandast hugur um að brýn þörf er á að efla pólitiska valdið gagnvart hagsmunahópunum. Hitt er e.t.v. meira álitamál, hvort það á að gerast með þessum hætti. Ef forystumenn verkalýðsfélaganna eru hins veg- ar aðeins að óska eftir aðild að rikisstjórn með hug- myndum sinum um að efla pólitískt afl launþega er á það að lita að sjaldnast hefur það haft áhrif á stjórnarfarið, hvort á ráðherrastólum hafa setið fulltrúar einstakra hagsmunahópa. Siðasta rikis- stjórn er t.a.m. til vitnis um það. Það eru einfald- lega önnur pólitisk atriði sem ráða góðu eða slæmu stjórnarfari. Breytt afstaða Visir hefur margsinnis bent á, hvernig talsmenn Framsóknarflokksins hafa búið til hverja sam- særiskenninguna á fætur annarri i sambandi við uppljóstranir um þau erfiðu fésýslumál, sem flokk- urinn hefur lent í. í forystugrein litla Árvakursblaðsins i gær er tek- ið undir þessi sjónarmið Visis. Hér er um að ræða málgagn þess arms Sjálfstæðisflokksins, sem lagt hefur mesta rækt við framsóknarstefnuna af yfir- lýsingum að dæma. Þessi nýja afstaða litla Árvak- ursblaðsins er þvi allrar athygli verð. í Noregi hafa blöðin verið mjög vinveitt ís- lendingum i skrifum sinum um þorskastrið- ið. Segja má að Dag- blaðið i Osló hafi á viss- an hátt haft forystuna i þessum skrifum eins og grein Arne Skouens, sem birtist hér i blað- inu i þýðingu 17. mars s.l., ber með sér. Hattersley — íslendingar skilja ekki „diplómatiu” hans. SKÝRIR MÁLSTAÐ OKKAR ÍSLENDINGA í ÞORSKASTRÍÐINU í NORSKU DAGBLAÐI Frydenlund, utanrikisráðherra norðmanna, er hliðhollur is- lendingum i landhelgisdeilunni. Stefán Þorsteinsson hefur á þessu ári ritað þrjár stuttar greinar i Dagblaðið norska um þorskastriðið og at- burði og hugleiðingar manna á Islandi því viðvikjandi. Niðurlag greinar Stefáns er blaðið birti 7. april s.l. hljóðar svo i isl. þýð- ingu: „Það er almenn skoðun fölks á tslandi að þorskastriðið að þessu sinni eigi einkum rætur að rekja til þess að breska stj. hafi slegið á ranga nótu i upp- hafi samningaviðræðna. Hún fól nefnilega mr. Hattersley nokkr- um að hefja samninga á tslandi, kannski eina bretanum sem átti að vera heima hjá sér þá dag- ana. tslendingar vildu þá mjög gjarnan semja við breta, eins og þeir höfðu gert tvisvar áður og einsog þeir þá sömdu við aðrar þjóðir, þar sem vinátta og skilningur einkenndi allar samningsgerðir. Þessi Hatters- ley virtist hins vegar lita á sig sem einskonar fulltrúa hins forna, breska heimsveldis og is- lendingar hreint og beint skildu ekki „diplómatiska” framkomu þessa manns. Afleiðingarnar urðu hörku ósamkomulag og árekstrarnir sem sigldu i kjöl- farið. Islensku sjómennirnir á hin- um fjóru örsmáu varðskipum eru i stöðugri lifshættu að störf- um sinum á fiskimiðunum, þar sem striðið geisar. Þegar þetta erritað,eru þarna 27enskir tog- arar að einskonar „þvingunar- veiðum” undir vernd flota ér telur 11 (ellefu) freigátur og að- stoðarskip úr breska flotanum, og án afláts koma ný skip til að leysa þau af hólmi sem fyrir eru. Þá eru daglega i förum breskar herflugvélar við njósnastörf við strendur Is- lands, breska flotanum til trausts og halds. Engu að siður bið ég ykkur að trúa mér er ég flyt ykkur þá staðreynd að skipshafnirnar þ.e.a.s. sjómennirnir á islensku varðskipunum, vorkenna bresku togarasjómönnunum er miðað er við það öngþveiti og gálaust tilgangsleysi, sem þetta þorska- strið felur i sér frá breta hálfu, hættulegt, ástæðulaust og ógeð- fellt. íslendingar gera sér ljósa grein fyrir afstöðu og aðstöðu NATÓ-samtakanna. Samþykkt- ir Norðurlandaráðs hér að lút- andi munu marka spor i sögu lands vors. Og norsku þjóðinni, sem svo einhuga hefur tekið af- stöðu með okkur i þessu striði, sendum við kæra kveðju yfir hafið.” Geta má þess að utanrikis- málaráðherra norðmanna, Knut Frydenlund, hefur reynst islendingum einkar hliðhollur i landhelgisdeilunni við breta og bera ummæli hans þess glöggt vitni. — Skömmu eftir að grein þessi birtist i Noregi kom Roy Hattersley, þá orðinn varautan- rikisráðherra Bretlands, þang- að til viðræðna við Frydenlund. Fregnir hermdu að bretinn hefði þá viljað að þeir leituðu i sameiningu að grundvelli fyrir nýjum viðræðum til að leysa fiskveiðideilu islendinga og breta. t Noregi er talið að Knut Frydenlund hafi ekki sýnt bretanum neina sérstaka stima- mýkt er hann kynnti honum við- horf norðmanna til deilunnar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.