Vísir - 05.05.1976, Page 11

Vísir - 05.05.1976, Page 11
11 vísm Miðvikudagur 5. mai 1976 Hljómsveitin Eik sem var stofnuö fyrir um það bil 5 árum hóf vinnu á sinni fyrstu breiskifu á mánudaginn var. Eikin hefur áður gefið út eina tveggja iaga plötu „Hotel Garbage Can” og „Mr. Sadness” sem var hálf vandræðaleg plata. 1 þetta sinn telja þeir sig hafa orðið nóga reynslu til þess að vinna i stúdiói eftir að hafa hjálp- að til á tveimur óútkomnum plötum með Axeli Einarssyni og Arna Sigurðssyni (fyrrum söngv- ara þeirra). Reyndar hafa þeir verið á fleiri plötum, svo sem hjá Arna Johnsen, Einari Vilberg og Paradi'sarplötum, svo nokkuð sé nefnt. Það er stefnan að á plötu þess- ari verði sjö lög. Tvö þeirra laga voru flutt á Sam-komu i Klúbbn- um i vetur. Það eru „instrument- al” lög sem koma til með að taka aðra hliðina. A hinni hliðinni verða svo liklega 3 lög i nokkurs konar „funky” stilog liklega tvær ballöður. Þeir i Eikinni voru ekkert á þvi að biða eftir 24 rása tækjunum þeirra i Hljóðrita.. þeir telja sig geta náð þvi sem þær sækjast eft- ir með þeim tækjum sem fyrir eru. Eikinni hefur bæst liðsauki, Axel Einarsson (fyrrv. Icecross, Tilveru og Sálin). Hann vinnur nú fyrir þá sem umboðsmaður þar sem vandræðaástand skapað- ist er Demant hf. lagði upp laup- ana. Axel er einnig með plötu i vinnslu og á eftir að taka upp tvö lög en þau munu biða Tony Cook, þar sem hann hóf vinnu á plötunni með Axeli i vetur, en eftir siðustu fréttum kom hann aftur um helg- ina. Annars var Cook „upptak- ari” istúdióiAlvin Lee i Englandi (Ten Years After). 1 Eikinni eru nú: Þorsteinn Magnússon (gitar), Haraldur Þorsteinsson (bassagitar), Lárus Grimsson (hljómborð), Ólafur Kolbeinn (trommur) og Sigurður Sigurðsson (raddbönd). Enginn þeirra var i hljómsveitinni er hún hóf æfingar haustið 1971, en • alls hafa um 15 manns verið i henni. — HA. Bjöggi og Maggi Kjartans að sjóða saman hljómsveit? Magnús Kjartansson fyrrum Júdas og Björgvin Halldórsson, fyrrum liðsmaður Change, munu vera i hljómsveitarhugleið- ingum um þessar mundir, þó svo að Björgvin sé ennþá staddur erlendis. Ekki vitum við nánari deili á hljómsveit þessari sem stendur en þó er talið, að þeir ætli sér að verða tilbúnir i slaginn i byrjun júli. Þetta ætti að verða forvitnileg hljómsveit, þar sem margsann- aðerað Björgvin ereinn af okk- ar bestu söngvurum og Maggi hefur löngum verið talinn snjall pianisti og góður lagasmiður. Vonandi er að það rætist úr þessari samsuðu þeirra. —GSL f Umsjón: Gísli Sveinn Loftsson 09 Halldór Andrésson v NY HLJÓM- SYEIT Ný hljómsveit hefur verið stofnuð, af Sveini Magnússyni fyrrum bassaleikara i Caba- ret, og Ómari Óskarssyni, sem siðastvar i örnum og leikur á pianó. Hún mun hafa spilað eitthvað nú þegar uppi á Keflavikurflugvelli. Ekki veit Tónhornið nánari deili á hljómsveitinni eins og er. — GSL. Sóléplata vœntanleg fró Magga Sigmunds Þreifar fyrir sér með stofnun hljómsveitar Magnús Sigmundsson, fyrrum liösmaður og lagasmiður Change, hefur dvalið á tsiandi nokkra undanfarna daga i örstuttri hcim- sókn og mun liklega hafa haldið utan er þetta birtist. Magnús hefur dvalið i London frá þvi siðastliðið haust, nánar tiltekið I Dartford, Kent, við laga- smiðar og upptökur. í bigerð hjá honum núna er stór plata sem að öllum likindum kemur út innan þriggja vikna. Það er hljómplötu- útgáfan Júdas sem gefur plötuna út. Magnús er um þessar mundir að leita fyrir sér með umboðs- skrifstofu I Englandi og jafnvel kemur til greina að hann fái ein- hverja til liðs við sig til að stofna hljómsveit. Tómas Tómasson og Björgvin Halldórsson, tveir aðrir ,,Change”-menn, dvelja einnig i London um þessar mundir. Þeir eru að taka upp ásamt Gunnari Þórðarsyni. Ekki er fullvist um hvaða plötu um er að ræða. En vitað er að Rió trió hafði hugsað sér til hreyfings hvað plötu snert- ir. — GSL Cabaref í 24 rósirnar eftir Spónarferðirnar Hljómsveitin Cabarett fer til Spánar 31. mai næstkomandi og mun spila þar á skemmtistööð- um á vegum ferðaskrifstofunn- ar Sunnu. Þegar heim kemur inunu þeir hella sér beint i plötuupptöku og er vonast til að árangurinn komist á stóra plötu, áður en langt um liður. Upptakan mun fara fram i hinu nýja 24. rása stúdiói þeirra i Hljóðrita i Hafnarfirði. Vænt- anlega verður þarna um fyrstu eða eina fyrstu plötuna að ræða sem verður tekin þar upp eftir breytingarnar. Eitthvað munu heimildir min- ar fyrir fréttinni um uppsögn Ingólfs Sigurðssonar, trommu- ieikara i Cabaret, hafa ruglast, þvi að i ágætu bréfi er ég fékk frá hljómsveitinni i siðustu viku, er þvertekið fyrir að hann sé búinn að segja upp. Sannleik- ann i málinu segja þeir vera þann, að þegar það mál kom upp, að hljómsveitin færi til Spánar, þá kom i ljós að hann yrði á sama tima á kafi i prófum og þess háttar og myndi þvi ekki geta farið til Spánar. Stóð þvi til að fá annan trymbil i hans stað, til þess að leika með hljómsveitinni á Spáni. Nú mun hins vegar hafa ræst svo úr málunum, að Ingólf- ur telur sig komast með. Ég vil ljúka þessu greinar- korni um Cabaret með þvi að birta klausu úr umræddu bréfi, sem mér finnst góð, og sýnir að nokkru leyti viðhorf poppara til þess sem er að gerast i kringum þá i,,bransanum”. Klausan er svona: „Það þykir vist alveg nógu titt um mannaskiptingar i bransanum i dag þó að við séum ekki að skreyta siður dagblað- anna með svoleiðis löguðu lika. Það er kannski komið i tisku að reka og ráða mannskap þegar eitthvað á móti blæs”. _GSL Sigurður Karls hœttir í Pónik Vill stofna hljómsveit með „góðum mönnum" Sigurður Karlsson, fyrrum trommuleikari með Change, er hóf að leika með Pónik og Ein- ari i Sigtúni fyrr i vetur, hefur nú sagt upp starfi sinu þar frá og með fimmtánda þessa mán- aðar. Við starfi hans mun taka Ari Jónsson er siðast lék á trommur með hljómsveitinni Sheriff og þar áður Borgis. Sigurður hafði þann fyrirvara á er hann réðist til Pónik, að hann kynni að vilja hætta um mánaðamótin mal/júni, og það hefur hann gert en ekki mun hann þó sitja auðum höndum fram eftir sumri. Hann hefur i hugaað spila meðgóðum mönn- um i hljómsveit og eru helst til- nefndir þeir Pálmi Gunnarsson sem bassaleikari og Birgir Hrafnsson sem gitaristi. Ekkieraðefa að þar gæti orð- ið um mjög góða nýja hljóm- sveit að ræða. En hver skyldi eiga að sjá um sönginn, fyrir ut- an Pálma? — GSL Barnaplata með Ruth Júdas hf. sendi nýja barnaplötu frá sér rétt fyrir helgina. Hún nefnistSimmsalabimm og er með hinni tiu ára gömlu söngkonu Ruth Reginalds sem sló i gegn með lögunum um Róbert bangsa. Platan er mjög lifleg, með lög- um eftir islenska og eríenda höf- unda. Textarnirem eftir Þorstein Eggertsson. Lög og textar eru i þeim dúr að búast má við að þau heyrist sungin um torg og stræti innan tíðar. Jón ölafsson, einn aðstandenda Júdas hf., tjáði blaðinu að innan tiðar kæmi plata með Sigrúnu Harðardóttur frá fyrirtækinu. Þá er einnig væntanleg plata með Magnúsi Sigmundssyni (Magnús og Jóhann, Change). Jón sagðist hafa tekið upp þá stefnu, að segjasem allraminnst frá plötum áður en þær kæmu á markað. Hann sagði að auk platn- anna með Sigrúnu og Magnúsi væru nokkrar aðrar i vinnslu en ^var ófáanlegur til að upplýsa hvaða listamenn væru þar að verki. „Það kemur i ljós,” sagði Jón. — ÓH. Regmalds WINGS í USA Eins og fram hefur koinib i fréttuin er Paul McCartney á- samt eiginkonu og Wings um þessar mundir á hljómleika- feröalagi um Bandarikin. Þetta er i fyrsta skipti sem Mc- Cartney treður upp þar vestra siðan árið 1966, I Candlestick Stadium með bltlunum. Eins og nærri má geta seldust mibarnir að konsertum þeim, sem fyrirfram var vitað hvar yrðu, upp á svipstundu. Wings höfðu þann háttinn á að þau á- kváðu ekki fyrr en á síðustu stundu. i hvaða húsi þau myndu leika á hverjunt stað. Þetta hafði það i för með sér, að þegar átti að bóka Madison Square Garden i New York, var staður- inn upppantaður af sirkús.... Wings munu samt ekki gefast upp og hafa ákveöiö að enda ferðalag sitt um Ameriku I New York 24.-26. mai, eða I tlma til þess að komast á listahátið ef þeini væri boðið á hana.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.