Vísir - 11.06.1976, Blaðsíða 1
Föstudagur 11. júni 1976. ~ 127. tbl. 66. árg.
Ver er ekki hœft
til gœslustarfa
Milljónaviðgerðir framundan ó varðskipunum
Varðskipin islensku eru öll i
„gæsluhæfu” ásigkom ulagi,
miöað við það ástand sem nú
rikir á miðunum, að Ver undan-
skildu i Vererislipp og verður
það fyrirsjáanlega næstu vik-
urnar.
öll eru skipin eitthvað
skemmd og Tý vantar til dæmis
ennþá bakborðs-skrúfuna. En
varðskipið nær rúmlega sautján
milna ferð á annarri vélinni og
getur þvi eins og hin skipin
haldið uppi eðlilegri löggæslu.
Ekki hefur enn 'verið tekin á-
kvörðun um hvort Baldur og
Ver verða áfram i þjónustu
Gæslunnar eða hvort þau fara
til annarra starfa.
En þótt skipin séu sjófær þarf
auðvitað að gera við þau og það
verður gert smámsaman, við
eitt og eitt skip. Viðgerðar-
kostnaðurinn hleypur sjálfsagt
á tugum milljóna, en trygging-
arnar munu að öllum líkindum
greiða hann.
011 skipin nema Ver og Baldur
erutryggðhjá Samábyrgð. Páll
Sigurðsson, forstjóri, sagði Visi
i morgun að Samábyrgð endur-
tryggðu um 95 prósent þar af
sjötiu prósent erlendis. Sem
frumtryggjendur yrðu þeirað fá
samþykki endurtryggjenda til
að greiða tjón. Ekki væri frá þvi
gengið ennþá, en i siðustu tveim
þorskastríðum hefðu slik tjón
verið greidd.
Tryggingamiðstöðin er með
Baldur og Ver og Gunnar
Felixsson, fulltrúi, svaraði
mjög á sömu leið og Páll.
—ÓT.
„Aldeilis orðnir leiðir á -
svínakássu og baunum"
r
Siglingakappar komnir til landsins eftir fimm daga ferð á skútu frá Irlandi
Myndin var tekin þegar skútan var aö leggjast aö bryggju i Kópavogi. A litlu myndinni sést leiðangurs
stjórinn, Gunnar Hilmarsson. — Ljósm: LÁ
,,Við vorum aldcilis orðnir leið-
ir á baunum og svlna kássu! En
áður en við lögðum af stað keypt-
um við það í heildsölu svo það var
maturinn okkar á leiöinni.”
Þetta sagði Gunnar Hilmarsson
okkur þegar hann, ásamt tveimur
félögum sinum ívari Friðþjófs-
syni og Bjargmundi Grimssyni,
kom i land I Kópavogi eftir að
hafa siglt skútunni Ingu frá Ir-
landi og til Islands. Skútan sem er
23 feta löng reyndist I alla staði
vel.
,,Þó ég hafi siglt viða á skútum
hef ég aldrei lagt I ferð betur bú-
inn” sagði Gunnar. „Við höfðum
allan nauðsynlegan tækjakost og
þar að auki þægindi svo sem mið-
stöð og sjálfstýringu.
Við sigldum frá Norður-lrlandi,
þar sem friður og spektin rikir,
um sund og skipaskurði i Skot-
landi og þaðan heim.”
20 metra öldur
Skútan Inga er smlðuð I Irlandi
og var siglingin til Islands svo að
segja hennar jómfrúferð.
„Við lentum einu sinni I ofsa-
veðri”, sagði Ivar Friðþjófsson,
en hann er eigandi bátsins. „Ég
hef aldrei séð annað eins. Ég
áætla að öldurnar hafi verið allt
að 20 metra háar og báturinu fór
lóðrétt upp og niður þær. Veðrið
olli þvi að við urðum að liggja sjö
eða átta tima i vari við Surtsey.”
Frá Surtsey var siðan haldið til
Vestmannaeyja og þaðan rakleitt
til Kópavogs, en þangað komu'
þeir i gærkvöldi. — EKG
Blóðið flaut þegar
Ali afgreiddi tvo
glímumenn í gœr
BAK
nams-
svipur
a Hafn-
arfirði
Ný saga um
Alla í dag
IKeppniitimabilinu er lokiö
110 Alla Brodle, Milford er I
keppniiferð I Póllandi —og á I
erfiðleikum I fyrita leiknum
Myndasögurnar I Visi eru geysivinsælar, enda eru þær við hæfi
alira aldursfiokka og fólks meö mismur.aíidi skoðanir og áhuga-
mái.
Við viljum vekja athygii þeirra, sem fylgjast meö sögunni um
iþróttakappann Alla, að þar hefst nýtt ævintýri I dag, og hann er
á blaðsiðu fjögur ásamt Kruiia. Svo eru aö sjálfsögðu sjö sögur á
15. síöunni eins og venjulega, Tarzan, Rip Kirby, Hrollur, Andrés
önd, Móri, Freddi og þau Lisa og Láki.
Ekki má svo gleyma þeim Bellu og Sigga sixpensara sem allt-
af eru á sinum stað i dagbókinni á blaðsiðu 16.
Plakat af
Palla fylgir
á morgun
Eins og fram kemur á les-
endasiðunni i dag sakna
margir Palla úr sjónvarpinu
eftir að hann fór i sveitina.
Visir ætlar að bæta úr þessu og
lætur fylgja stóra veggmynd
af sjónvarpsstjörnunni meö
blaðinu á morgun.
Og svo kemur lika ókeypis
heigarblað á morgun meö
. VIsi.
MAÐUR í 30 DAGA GÆSLUVARÐHALD í KÓPAVOGI
Ungur maöur hefur
verið úrskurðaður í allt
að 30 daga gæsluvarðhald
i Kópavogi. Mun hér vera
um síbrotamann að ræða.
sem lögreglan hefur
margoft þurft að hafa af-
skipti af.
Ástæðan fyrir því að
hann var hnepptur í
gæsluvarðhald mun vera
sú/ að hann var með stór-
ar f járupphæðir á sér, og
gat hvorki gert grein fyr-
ir því hvar hann hafði
fengið féð, né heldur hvar
hann hafði alið manninn
siðustu daga.
Mörg innbrot hafa ver-
ið framin í Kópavogi að
undanförnu, og talið að
maðurinn eigi þar ein-
hvern hlut að máli.
—AH