Vísir - 11.06.1976, Side 3

Vísir - 11.06.1976, Side 3
Föstudagur 11. júnl 1976. 3 NORRÆNIR MÚSIKDAGAR — mesta tónlistarhótíð sem haldin hefur verið hér Norrænir músikdagar veröa haldnir i Reykjavlk dagana 18. til 24. júni, og eru þeir ein umfangsmesta tónlistarhátlö sem haldin hefur veriö á Islandi. Norræna tónskáldaráöiö stendur fyrir músikdögunum, en þaö er samband tónskálda- félaganna á noröurlöndum. Þaö var stofnaö skömmu eftir strlö og var Jón Leifs einn helsti hvatamaður aö stofnun þess. Hlutverk Tónskáldaráösins er að stuöla að aukinni samvinnu og kynningu milli norrænna tón- skálda og vinna aö réttindamál- um þeirra. Norrænir múslkdagar eru einn helsti þáttur norrænnar menningarsamvinnu. Fyrsta norræna tónlistarhátlðin var haldin I Kaupmannahöfn árið 1888. Hátiöin sem nú stendur fyrir dyrum er hin 24. I rööinni og sú þriöja, sem haldin er I Reykjavik. Tæplega fimm hundruð tónlistarmenn koma fram Á Norrænum múslkdögum veröa nú haldnir ellefu tónleikar á sex stööum i Reykjavik, en einir tónleikar veröa að Bifröst I Borgarfiröi. Hátt á fimmta hundrað tónlistarmanna, bæöi áhuga- og atvinnufólk mun koma fram á hátiöinni, og alls verða flutt 59 tónverk. Höfundar þeirra eru á ýmsum aldri, korn- ung tónskáld ásamt eldri höfundum og þekktari. Það nýmæli var tekið upp á seinustu Norrænu músikdögum fyrir tveimur árum, að Norræni menningarsjóðurinn pantaöi ný verk er frumflutt skyldu á hátiðinni. Nú hefur veriðhaldið áfram sömu stefnu, og fimm tónskáld hafa skrifað verk sérstaklega til frumflutn- ings á Norrænu músikdögunum. Fjalla verkin um „músik fyrir áhugafólk”. Annað nýmæli var upp tekið á þessum sömu músikdögum, en það var að bjóöa einu landi utan Norður- landa að taka þátt i hátiðinni. Ætlunin var með þessu að stuðla að auknum kynnum og sam- skiptum tónlistarmanna. Kanadamennirnir leika islenskt vérk Að þessu sinni munu kanada- menn taka þátt I Norrænum músikdögum. Hingað kemur hópur tónlistarmanna frá Torontó, sem kallar sig New Music Ensamble, undir forystu Norrænir músikdagar verða haldnir i Reykjavik dagana 18. til 24. júni. Þetta verður i þriðja sinn að músikdagarnir eru haldnir á lslandi. flautusnillingsins Roberts Aitkin. Hann hefur oft haldið hér tónleika og einnig hefur hann leikið verk eftir islensk tónskáld. Þar á meðal er flautu- konsert Atla Heimis Sveins- sonar, sem færði honum tón- skáldaverðlaun Norðurlanda- ráðs á þessu ári. New Music Ensamble heldur tvenna tón- leika að Kjarvalsstööum dag- ana 20. og 21. júni. Munu kanadamennirnir leika norræn og kanadisk verk, þ.á.m. nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörns- son. Snillingar á sinu sviði Sinfóniuhljómsveit Islands mun halda tvenna tónleika undir stjórn Karsten Andersens og Páls P. Pálssonar. Með henni koma fram fimm einleikarar, allt mjög þekktir snillingar á sinu sviði. Eru þaö básúnuleikarinn Christer Torgé frá Sviþjóð, flautuleikarinn Gunilla von Baht, söngkonan Ilona Maros, harmonikkuleik- arinn Mogens Ellegard og okkar frábæri fiðluleikari Einar G. Sveinbjörnsson, konsertmeist- ari i Málmey. Auk Sinfóniuhljómsveitar- innar koma fram Kammersveit Reykjavikur og Nemenda- hljómsveit Tónlistarskólans. Alls munu sjö islenskir kórar koma fram á hátiðinni. —AHO New Music Ensamble, kanadisku tónlistarmennirnir frá Torontó, sem taka þátt I Norrænu músikdögunum að þessu sinni. Tonhormð a ton leikum Rolling Stones í París i Glasgow VÍSII& MYNDSJÁ Visir fylgdist meo sjóstangaveiðimóti við Vestmannaeyjar FYLGIR BLAÐINU ÓKEYPIS á morgun Viðtal við Sigurð Sigurðsson — um íþróttir og fleira LIST TIL LÆKN- INGA Þúsund Zetorar Myndin er frá afhendingu þúsundustu X Zetor dráttavélarinnar. Arni Gestsson afhendir Tómasi Gislasyni lyklana að véiinni að við- stöddum fulltrúum frá verksmiðjunum. Fyrir stuttu var seld þúsund- asta dráttavélin af tegundinni Zetor, sem tstékk hefur uinboð fyrir. Það var Tómas Gislason, bóndi I Undirfelli II sem keypti þá vél og afhenti Árni Gestsson forstjóri tstékks honum véiina að viðstöddum fuiltrúum úr dráttavélaverksmiðjunum i Tékkóslóvakiu. Istékk er rekið i nánum tengslum við Globus h.f. enda eigendur beggja fyrirtækja þeir sömu. Tilgangur Istékks er fyrst og fremst sá að annast inn- flutning vara frá Tékkóslóvak- iu, sem hagkvæmt er að flytja hingað til lands. Meðal þessa eru þessar dráttavélar, en þær eru mjög ódýrar miöað við önnur jarðvinnslutæki. Innflutningur á Zetor drátta- vélum hófst 1969 og er hluti Zetor af heildarinnflutningi félagsins nú 33% en var mestur 1973, 39%. R.J. Ólafsfirðingar fá vegi og boltavöll Fyrsti þáttur i tiu ára áætlun um varanlega gatnagerö i Ólafsfirði hófst fyrir skömmu. Aætlaö er aö verja 219 milljón- um króna til að steypa eða mal- bika allar götur i bænum á næstu tiu árum. 1 sumar verður unnið fyrir 31,4 milljónir. I sambandi við þessar fram- kvæmdir og aðrar hefur verið ráðinn verkfræðingur frá Reykjavik, Gunnar St. Ólafs- son. Knattspyrnugarpar I ólafs- firði geta glaðst um mánaðar- mótin júni-júli, en þá á að taka i notkun knattspyrnuvöll sem byrjað var á i fyrra. Þetta er malarvöllur 105x65 metra stór. Það var varla seinna vænna að ráðast i þessar framkvæmd- ir, þvi ólafsfirðingar hafa búið við mjög léleg skilyrði til knatt- spyrnuiðkunar undanfarin ár. —ÓT/GJ og JF Ólafsfirði

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.