Vísir


Vísir - 11.06.1976, Qupperneq 7

Vísir - 11.06.1976, Qupperneq 7
VISIR Föstudagur 11. júní 1976. g Óla fur Hauksson Réttarhaldið yfír málalið- unum eins og á leiksviði FLOÐIN Skarðiö i hinni nýlegu Teton-stiflu I Idaho I Bandarikjunum er risa- stórt, eins og sést á þessari loftmynd. Þegar stifian brast um siðustu helgi, fossaði uppistöðulónið fram, og talið er að um 150 manns hafi farist. Raiinsókn er nú hafin á hugsaniegum orsökum slyssins. Klóróformið olli krabba- meini í tilraunodýrum Bandarísk yfirvöld hafa birt niðurstööur tilrauna með klóróform, en þær leiddu í Ijós, að klóróform leiddi af sér krabbamein í skepnum. — Af þessum niðurstöðum ákváðu stjórnvöld að banna notkun klóróforms í sumum fram- leiðslugreinum, ekki alls fyrir löngu Krabbameinsstofnun Banda- rikjanna segir i skýrslu sinni, að rannsóknirnar hafi leitt i ljós, að músum, sem fengu klóróform i mat sinn, væri hætt við krabba- meini i lifur og nýru- Að fengnum þessum niðurstöð- um var lagt til, að bannað yrði frá og með 8. júli að nota klóróform i kvefmeðul, tannkrem og mat- vælaumbúðir. Hinsvegar vildi matvæla- og lyfjaskrárnefnd Bandarikjanna ekki ganga svo langt að láta afturkalla af mark- aðnum þær klóróformvörur sem þar eru á boðstólnum Það hefur verið undirstrikað, að tilaunirnar hafi ekki sannað, að klóróform gæti valdið krabba- meini i mönnum, þótt það valdi krabbameini i tilraunadýrum. A það er bent, að tilraunadýrin hafi fengið klóróform i miklu stærri mæli en mönnum standi til boða i þeim vörum, sem til sölu eru á markaðnum. Hins vegar er bann- ið rökstutt þannig, að nytsemi klóróforms i þessum vörum sé svo litil, að ekki sé verjandi henn- ar vegna að tefla á neina hættu —- hversu smá sem hún kann að vera. Ný árás úr þriðju átt Ródesíumenn þurfa nú aö verjast árásum úr þremur átt- um. Skæruliðar hafa ráðist inn i landið frá Zambiu, í kjölfar þeirrar yfirlýsingar Kaunda forseta Zambiu að þeim væri heimilt að nota land hans sem stökkbretti inn I Ródesíu. Rikisstjörn Ródesiu skýrði frá þviígæraðlitill skæruliðahópur hefði lagt til atlögu við landa- mæri Zambiu. Talið er að þarna séu um 400 skæruliðar að verki, og að 600 til viðbótar séu á leið þeim til hjálpar. Aðal-skæruhernaður á hendur Ródesia hefur verið við norð- austur og austurlandamærin við Mozambique. Mikið álag hefur verið á her Ródesiu, og atlögur á þriðju vígstöðvunum þyngja enn meira. í bardögum við skæruliða undanfarnar vikur og mánuði segjast Ródesiumenn hafa misst 116 hermenn, en að rúm- lega þúsund skæruliðar hafi týnt lifi. Þrettán hvitir mála- liðar koma fyrir rétt i Luanda i Angóla i dag i einhverjum einkenni- legustu málaferlum nútima réttarsögu. En lif þeirra er undir nið- urstöðunni komið. Inni i réttarsalnum er um aö litast eins og inni á leiksviði i sjónvarpssal, þar sem fimm myndatökuvélar standa með glampandi ljósopum og láta ekkert framhjá sér fara. — Réttarhaldinu verður nefnilega sjónvarpaö bæði I Angóla og á Kúbu. Farið veröur að byltingarlög- um Angólastjórnar, sem sigur- vegararnir mynduöu eftir borg- arastyrjöldina. Aðalver jandinn, Robert Cesner, frá Bandarikjunum er þarna til að annast málsvöm fyrir bandarisku málaliðanna, en hefur tekið aö sér vörn hinna um leið, ,,svo lengi, sem það skaðar ekki skjólstæðinga hans, bandarisku dátanna” eins og hann setti að skilyrði. Hinsvegar hefur Cesner sina lögfræðimenntun miðaða við enskar og ameriskar réttar- venjur, en byltingarlög þeirra i Angóla (að nokkru byggð á portúgölskum lögum) munu vera þeim nokkuð frábrugðin. Dómþingið fer fram á tveim- ur tungumálum, portúgölsku og ensku. En gert er ráð fyrir, að túlkaö veröi jafnhliða yfir á rússnesku, frönsku og spænsku fyrir þá 300 áhorfendur, sem veittur verður aðgangur. Niu málaliöanna eru breskir, tveirbandariskir, einn irskur og einn frá Argentinu. Yfir þeim vofir liflátsdómur fyrir þátt þeirra I borgarastrlðinu i febrú- ar i vetur. — Eins og jafnan i sfikum eftirstriðsréttarhöldum er aðalsök þeirra fólgin i þvi, að hafa barist á vegum þess sigr- aða. Starfsmenn Rauða krossins bera á brott lik sýrlenskra hermanna I borg inni Sidon i Libanon. Hermenn þriggja araba- ríkja komnir til Líbanon Einn og einn herflokkur er nú kominn til Libanon frá Súdan, iábýu og Alsir eftir samþykkt utanrikisráðherra Arababanda- lagsrlkja um að senda friðar- gæslusveitir þangað. Það liggur ekki á ljósu, hvernig þessu liði verði beitt til að ganga milli i átökum sýr- lenskra hermanna og skæruliða palestinuaraba. 1 Kairó i gærkveldi hélt tals- maðurpalestinuaraba því fram, að sýrlenskar hersveitir héldu uppi stórskotahrið á Beirút, og að fjölmennt lið þeirra sækti I átttil flóttamannabúða skammt austan við flugvöll höfuðborgar- innar. Beirútútvarpið sagði i gær- kveldi seint, aö stórskotahrið væri hjá hafnarbænum Sidon i suðurhluta landsins. Margir efast um, að friðar- gæsluliö Arababandalagsins muni fá miklu áorkað til þess að koma á friði fremur en aðrir, sem hafa til litils reynt. Um leið velta mennfyrir sér, hver verða muni viðbrögð nágrannarflris- ins, Israels, er nokkrir þeirra eindregnustu fjandmenn, 'eins og Libya og Alsir, eru með her- lið á næstu grösum við þá. DRAP SKAKKAN SENDIHERRA Króatiskur hermdar- verkamaður skaut sendiherra Uruguay í ógáti, þegar hann ætlaði að myrða sendiherra Júgóslaviu i Asuncion I Paraguay. Lögreglan i Asuncion skýrði frá þvi i gær að Joze Damjanovic, trésmiður frá Króatiu I Júgó- slaviu, hefði drepið sendiherra Uruguay á torgi I miðbæ Asuncion. Sendiherra Júgóslaviu var að fara að afhenda Alfredo Stroessner forseta trúnaðarbréf sitt, og var sendiherra Uruguay staddur þar. Sendih. Uruguay gekk fram- hjá minnismerki þar sem áætlaö varað starfsbróðir hans frá Júgó- slaviu afhenti blómsveig. Viröist svo sem króatiski trésmiðurinn hafi ruglað þessum tveimur mönnum saman, þvl ætlun hans var að drepa þann júgóslavneska að þvi er lögreglan skýrði frá! Damjanovic skaut sendiherra Uruguay til bana, þegar hann gekk framhjá minnismerkinu. Damjanovic kom til Paraguay frá Vestur-Þýskalandi fyrir nokkrum mánuðum, eftir að hafa afplánað þar niu ára fangelsis- dóm fyrir árás á júgóslavneskan klúbb, og árás á ræðismann Júgó- slaviu. Demjanovic kom til Paraguay undir þvi yfirskyni að hann ætlaði að setjast aö þar og vinna sem trésmiður. Hann las i dagblaði um að sendiherra Júgóslaviu ætl- aði að afhenda trúnaöarbréf sitt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.