Vísir - 11.06.1976, Page 10
(
V
Föstudagur 11. júní 1976. vism
)
Flugma&urinn gerir viB flugvélina i eyöimörkinni og hlustar á litla prinsinn segja frá feröalögum sinum
um geiminn.
Á laugardagskvöld veröur
frumsýnd i Þjóöleikhúsinu
brúðuleiksýningin „Litli prins-
inn" eftir Antoine de Saint-
Esupéry á vegum Marinónettu-
leikhússins frá Stokkhólmi.
bað er sænski brúöuleikhús-
maðurinn Michael Meschke
sem samið hefur og leikstýrir
þessu sérstæöa atriöi Listahá-
tiðar, en leikið er á islensku.
Hérerum óvenjulega samvinnu
erlendra og innlendra leikhús-
manna að ræða. t för með
Mechke er fimm manna hópur
frá Mariónettuleikhúsinu og
stjórna þeir leikbrúðum i sýn-
ingunni, en islenskir leikarar
flytja textann.
Ein persónan, flugmaðurinn,
er leikinn af leikara sýnilegum
á sviöinu og fer Sigmundur örn
Arngrimsson með þaö hlutverk.
Sagan um Litla prinsinn er
viöfræg og þekktasta saga höf-
undar. Bókin hefur komið út á
islensku i þýðingu Þórarins
Björnssonár, skólameistara.
Þar segir frá flugmanni sem
nauðlendir i Shara-eyðimörk-
inni og rekst þar á litla prinsinn,
litinn drenghnokka, sem styttir
honum stundir og segir frá
heimkynnum sinum úti i geimn-
um og ferðalagi sinu milli hinna
ýmsu hnatta himinhvolfsins.
býðingu leikgerðarinnar
gerðu Briet Héöinsdóttir og Sig-
uröur Pálsson. Tónlist er eftir
Karl-Erik Welin. Þessi sýning
Mariónettuleikhúsins á Litla
prinsinum hefur vakið mikla at-
hygli og orðið viðfræg, enda far-
ið viða.
önnur sýning á Litla prinsin-
um er á sunnudag kl. 3.
LEIKHÚS
Þjóðleikhúsið.
Litla sviðið. Siswe bansi ár död,
önnur sýning.
Laugardagur. Litla sviðið:
Sizwe bansi ar död”, gestaleik-
ur frá Lilla Teatern i Helsing-
fors.kl. 4. Kl. 8. Frumsýning á
brúðuleiknum „Litli prinsinn”.
Sunnudagur. Litli prinsinn önn-
ur sýning kl. 15. Gisela May
austur-þýska Brechtsöngkonán
kemur fram ásamt fimm
manna hljómsveit kl. 20.
Iðnó.
Föstudagur. Sagan af dátanum.
Laugardagur. Skjaldhamrar
Jónasar Arnasonar.
Sunnudagur.Sagan af dátanum.
Leikfélag Akureyrar
Kristnihald undir Jökli sýnt i
kvöld að Arnesi og laugardags-
kvöld að Borg, Grimsnesi.
SÝNINGAR
Listasafn íslands
Sýning á verkum Hundertwass-
er er opin daglega frá kl. 2-10.
Valhúsaskóli/ Seltjarnar-
nesi.
Myndlistaklúbbur Seltjarnar-
ness stendur fyrir sýningu á 166
verkum 16 félaga klúbbsins.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 5-10 og um helgar frá kl. 2-10.
Kjarvalsstaðir
Austursalur: Sýning á 40
gouach myndum eftir franska
málarann Gérard Scneider.
Vestursalur: Islensk grafik frá
upphafi.
Á göngum hússins: Sýningin
„Skýjaborgir og loftkastalar”.
BÖLLIN
Hótel Saga
Súlnasalur. Hljómsveit Ragn-
ars Bjarnasonar og Þuriður
skemmta föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Sunnudagur: Kvöldverður og
dansleikur i tilefni Sjómanna-
dagsins.
Hótel Borg.
Hljómsveit Hauks Mortens
skemmtir um helgina.
Klúbburinn.
Föstudagur. Venus og Lena.
Laugardagur. Venus og Lena.
Sunnudagur. Fress og breska
hljómsveitin Rudolf og söng-
konan Linda Taylor.
Tónabær
Dinamit leikur föstudag.
Eik leikur laugardagskvöld.
Röðull
Stuðlatrió leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
Alfa Beta leikur sunnudags-
kvöld.
Tjarnarbúð.
Fress leikur laugardagskvöld.
Exsperiment sunnudagskvöld.
Lindarbær.
Gömlu dansarnir. Hljómsveit
Rúts Kr. Hannessonar og Jakob
Jónsson skemmta.'
Skiphóll.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar skemmtir.
Eden, Hveragerði.
Sýning á verkum finnsku lista-
konunnar Elinar Sandström.
Gimli, Stokkseyri
Elfar Þórðarson frá Sjólyst opn-
ar á morgun sýningu á 48 oliu-
og akrylmyndum.
Norræna húsið
Sýningin Islensk nytjalist.
Bogasalur
Sýning á myndum, handritum
og skjölum Dunganons, sem
hann arfleiddi islenska rikið að
við andlát sitt.
Sigtún.
Pónik og Einar skemmta föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Drekar leika fyrir gömlu döns-
unum sunnudagskvöld.
Glæsibær.
Asar leika um helgina.
Leikhúskjallarinn.
Skuggar skemmta.
Sesar.
Diskótek.
óðal.
Diskótek.
Ungó Keflavík
Eik, og breska hljómsveitin
Rudolf skemmta föstudags-
kvöld.
Félagsheimilið
Stykkishólmi
Galdrakarlar skemmta föstu-
dagskvöld.
Festi
Paradis og Dinamit leika laug-
ardagskvöld.
Árnes.
Haukar skemmta laugardags-
kvöld.
Bolungarvík.
Ýr og Rudolf skemmta laugar-
dagskvöld.
Sigluf jörður
Galdrakarlar skemmta sunnu-
dagskvöld.
„Vinnur hratt til þess
að höndla augnabliks-
tilfinninguna"
Að Kjarvalsstöðum stendur
nú yfir sýning á fjörutiu gouach-
myndum listmálarans Gérard
Schneider, en hún er hingað
komin fyrir tilstilli sendiherra
Frakklands og franska mennta-
málaráðuneytisins. Við opnum
sýningarinnar lagði sendiherr-
ann áherslu á aö hún væri fram-
lag frakka til aö minnast þess,
hve margir íslendingar hefðu
farið til náms í Paris.
Gérard Schneider fæddist i
Sviss árið 1896 og þvi orðinn átt-
ræöur. Hann nam myndlist i
Paris en aö námi loknu sneri
hann aftur til heimalands sins.
Þar fann hann ekki þann hljóm-
grunn fyrir list sina sem hann
þarfnaðist og fluttist aftur til
Parisar eftir fjögur ár. t Paris
tók hann þátt i liststarfsemi
þess hóps málara i Montmartre
hverfinu, sem nefndur hefur
veriö „École de Paris”.
„Leitar eftir svipaðri
stemmningu og i tónlist."
„Schneider hefur veriö þó
nokkuð frægur i Paris frá þvi
eftir heimsstyrjöldina siðari”
sagði Aðalsteinn Ingólfsson,
listmálari i samtali við Visi, en
hann sá um uppsetningu sýn-
ingarinnar. „Hann vinnur sér-
staklega hratt til þess aö honaia
augnablikstilf inninguna og
fleygir gjarnan myndum ef hug-
myndir hans heppnast ekki.
Hann er á höttum eftir svipaðri
stemmningu og i tónlist.
1 sýningarskrá segir
Aðalsteinn um Schneider: ,,t
verkum sinum notar Schneider
gjarnan breiðan pentskúf og
málar hratt og ákveðið á sterk-
litan bakgrunn. t verkum hans
eftir 1950 bar mikið á kol-
svörtum litflekkjum sem undir-
strikuðu hinar skæru litræmur
málarans en undanfarin ár
hefur Schneider látið litinn
sjálfan og hreyfingu hans á
myndfletinum tala i æ rikara
mæli”.
Sýningin stendur til 16. júni og
er opin frá kl. 14.00 til 22.00 dag-
lega.
— aho.
Eitt af verkum listmálarans Gérard Schneider á sýningunni aö
Kjarvalsstöðum.