Vísir - 14.06.1976, Page 7
og Ófðfur
Haukssort
Reynt að rœna
fíugskeyti frá
bandaríkjaher
Fimm menn reyndu að ræna
flugskeyti frá bandariska hernum
i gær, með þvi að stöðva flutn-
ingabil sem yar með skeytið á leið
til viðgerðar.
Eldflaugin, sem er af gerðinni
Minuteman, getur flutt kjarn-
orkusprengjur. Engin slik var
tengd við þetta skeyti.
Bilstjóri flutningabilsins segir
að þegar hann ók á þjóðvegi við
Los Angeles i Kaliforniu, hafi
sendiferðabill reynt að þröngva
sér til að stöðva. Hann sagði að
M-16riffli hefði verið beint að sér,
og hrópað að hann ætti að stöðva.
Bilarnir vingsuðu eftir veginum
dágóða stund, áður en lögreglu-
þjónn sem tók eftir undarlegu
aksturslaginu ók upp að til að
kanna málið. Sendiferöabillinn ók
þá á brott.
SÝRLAND LOFAR AÐ
VIRÐA VOPNAHLÍÐ
Hafez Al Assad, sýr-
landsforseti, hefur full-
vissað Mahmoud Riad,
framkvæmdastjóra
Arababandalagsins um
að hann muni gera allt,
sem i hans valdi stendur
til að ályktun bandalags-
ins um frið í Libanon nái
fram að ganga.
Utanrikisráðherrar banda-
lagsrikjanna ályktuðu á fundi i
Kairó að skora á striðsaðila i
Libanon að gera vopnahlé, og
samþykktu að senda sameigin-
legt friðargæslulið til landsins.
Mahmoud Riad sótti heim
sýrlandsforseta um helgina og
átti viö hann langt samtal um
viðhorf hinna arabarikjanna til
ófriðarins i Libanon. — Hann
sagði fréttamönnum eftir á, að
sýrlandsforseti hefði tekið máli
hans mjög vel og styddi ályktun
bandalagsins.
Beirút-útvarpið skýrði frá
þvi, að þegar væri byrjað að
hrinda i framkvæmd tillögum
Jalloud majórs um, hverjir
skyldu hafa eftirlit með vopna-
hléinu og á hvaða svæðum.
Þannig eiga sýrlendingar að
gæta fjallaskarðsins, sem
vegurinn milli Beirút og
Damaskus liggur um. Libanskir
liösforingjar verða þó i varð-
stöðvunum til umsjónar.
Hinsvegar segir önnur
útvarpsstöð, hlynnt vinstri
mönnum, að skæruliðar
palestinuaraba og vinstrimenn
hafi barist við sýrlenska her-
menn i suðausturhluta landsins
og i fjöllunum. Þvi er haldið
fram, að herþotur Sýrlands hafi
haldið uppi sprengjuárásum á
stöðvar vinstrimanna viö
Faraya.
Drepinn við
rannsókn á
Mafíunni
Blaðamaðurinn Don
Bolles, sem vann að
rannsóknum á Mafi-
unni, lést i sjúkrahúsi i
gær. Sprengja sprakk i
bil hans fyrir nokkrum
dögum, og særði hann
alvarlega.
Bolles, sem var 47 ára gamall,
var blaðamaður við Arizona
Republic dagblaðið I Fönix i
Arizona.
Bolles skildi eftir skilaboð
þegar hann fór út 2. júni sl., og
sagðist vera á leið til fundar við
mann að nafni John Adamson,
sem ætlaði að gefa upplýsingar
um fulltúradeildarþingmann-
inn Sam Steiger.
Blaðamaðurinn fór til hótels i
Fönix, hitti engan en var kall-
aður i simann. Þegar hann ók
frá hótelinu aftur, sprakk
sprengja undir bilstjórasætinu.
Sjúkraliðar sem fluttu Bolles
á sjúkrahúsið, sögðu að hann
hefði muldrað að hann væri að
skrifa grein um Mafiuna. Hann
nefndi einnig nöfnin Adamson
og Emprise.
Emprise er fyrirtæki I Buffalo
i New York, sem átti eitt sinn
helminginn i öllum hundaveð-
hlaupabrautum i Arizona. John
Adamson er vörubilstjóri sem
hafði samskipti við veðhlaupa-
brautirnar.
Þingmaðurinn Sam Steiger
sagðist ekki vita hvers vegna
nafn hans hefði verið nefnt i
þessu máli. Hann sagðist þó
gruna að það hefði verið gert til
að auðveldara væri að fá Bolles
til hótelsins. Steiger er for-
maður þingnefndar sem fjallar
um skipulagða glæpi.
Fyrir utan dómshúsið I Luanda, beðið eftir þvi að réttarhöldin hefjist yfir málaliðunum þrettán. Biðtim-
anum verja þeir til þess að láta blökkudreng bursta skóna fyrir þá.
Mafíuferíll málaliða
dreginn inn í réttarhaldið
öðrum bandariska
málaliðanum, sem
stefnt er fyrir rétt i
Luanda i Angóla (auk
tólf annarra), hefur
verið lýst i bók sem
fyrrum aðstoðarmanni
mafiuforingja i New
Jersey.
Þykir líklegt, að saksóknarinn
muni draga það atriði fram I
réttarhöldunum og bera fyrir
sig höfund bókarinnar, Raul
Valdes Vivo, sem átti langt við-
tal við málaliðann, Gustavo
Grillo.
Vivo á sæti i miðstjórn
kúbanska kommúnistaflokks-
ins.
t bók hans er sagt, að Grillo
(27 ára) hafi starfað fyrir
mafiuforingja I New Jersey, en
sá stýrði þar spilavttum.
Niu málaliöanna eru breskir,
en öllum þrettán er gefið aö sök
að hafa brotið gegn friði „i
striði, sem beindist að þvi að
uppræta sjálfstæði Angóla og
hneppa þjóðina i þrælafjötra”,
svo að vitnað sé i ákæruskjalið.
Málaliðarnir voru teknir til
fanga meðan á borgarastyrj-
öldinni stóð.
Útdrœttir
birtir úr
kynlífsbók
Elisabeth
Ray
(Jtdrættir hafa veri'ð birtir úr
bók Elisabeth Ray, um hvernig
hún hafi haft áhrif á pólitiskar
ákvarðanir þingmanna i
Washington með þvi að sofa hjá
þeim. Elisabeth Ray heldur þvi
fram að hún hafi þegið laun af
almannafé með því að starfa
hjá þingmanninum Wayne Hays
við það eitt að vcita honum biiðu
sina.
Bók Ray, sem heitir „The
Washinton Fringe Benefit”, er
skáldsaga, sem ungfrúin segir
aö sé byggð á sönnum at-
burðum. 1 bókinni skýrir Ray
frá mörgum atvikum þar, sem
hún beitti likama sinum til að fá
stjórnmálamenn til að breyta
um skoðanir á ákveðnum mál-
um.
Hún segir að hún hafi brátt
orðið fræg i Washington fyrir
greiðasemi sina. Nokkur dæmi
eru nefnd um það. 1 eitt sinn
segist hún hafa dansað nektar-
dans fyrir frægan lögfræðing i
Watergate málinu. I annað sinn
hafi ljósmyndari Hvita hússins
veriö að taka nektarmyndir af
henni, þegar hann þurfti að
flýta sér til að fara að taka
myndir af forsetafjölskyldunni.
Ray segir I bók sinni að skrif-
stofuna sem hún vann á I
Washington hafi mátt kalla
„kynlitsráðuneytiö”. Hún segist
hafa hvatt samstarfskonur sin-
ar til að veita samskonar
greiða.
Elisabeth Ray er nú á ferð i
Lundúnum, til að auglýsa upp
bók sina. Hún sagði á blaða-
mannafundi þar að hún óttaðist
um lif sitt eftir þessar uppljóstr-
anir.
Hröpuðu
fimm i
fjallgöngu
Fimm franskir fjallgöngu-
menn, allir bundnir saman á
einni línu, hröpuðu til bana i
gær, þegar þeir voru að klifra i
fjallinu Corridor (3.400 m) i
Frakklandi.
Sjötti maðurinn Alain
Sangiard komst af, þegar
björgunarmenn fundu hann
ilia meiddan og fluttu á
sjúkrahús. Sanglard gat enga
grein gert sér fyrir þvi, hvað
hent hafði, eða hvernig það
hafði borið að.