Vísir - 21.06.1976, Blaðsíða 2
C f REYKJAVÍK )
v V 1
Finnst þér nógu vel
staðið að rannsókn Geir-
finnsmálsins?
Kristján Agústsson, heildsali: —
Ég held ég vilji ekkert tjá mig um
það mál.
Ragnar Bernbourg, verslunar-
maður: — Ég tel það vafasamt,
án þess þó að ég geti nokkuö um
það fullyrt.
Magnus Magnússon, blaöasölu-
drengur: — Nei, ég tel það ekki.
Guðrún Guðmundsdöttir, vinnur
hjá Heklu h.f.: — Æ, ég tel mig
ekki geta dæmt um þaö.
Kristín Snæfells, umferðaflakk-
ari: — Nei, ég tel það ekki vera.
Auk þess hefur allt of margt verið
falið fyrir augum almennings, og
einnig hefur verið of mikið um
vifilengjur hjá hinu opinbera.
Mánudagur 21. júnf 1976 vísm
„Okkur langaði til
að hœtta, þess
vegna hœttum við'
— Spjallað við hjónin Helgu Bachmann og Helga Skúlason
„Við hættum, bara til þess að
hætta,” sagði Helga Bachmann,
þegar Vlsir leit inn til þeirra
hjóna, Helgu og Heiga Skúla-
sonar, igóða veörinu fyrir helgi.
„Það er svo gaman að gera
það, sem maður vill, það er
sjaldan sem maður getur leyft
sér það. Og það sem við vildum,
var aöhætta,” sagöi Helga enn-
fremur og Helgi tók undir það.
Þau sögðu einnig að það væri
alveg sársaukalaust af hálfu
allra aðila að þau hefðu hætt hjá
Iðnó.
„Við höfum sex mánaða upp-
sagnarfrest og erum þvi ráðin
við leikhúsið til 1. september.
Það er ekki flanað að neinu i
þessum efnum,” sagði Helgi
þegar blaðamaður hélt áfram
að þráspyrja, hvers vegna þau
hefðu hætt hjá Iðnó. „Þess má
jafnframt geta, að við höfum
ekki ráðiö okkur I neina aðra
vinnu, hvað svo sem verða
kann.
Við erum að hefja sumarleyfi
okkar og ætlum að nota þaö til
að vinna i garðinum okkar og
rækta blóm og tré. Við ræktum
hér sjaldséðar jurtir og þær
þrifast ágætlega, enda er hér
skjólgott og hlýtt.”
Þau hjón eru, þrátt fyrir upp-
sagnir sinar, ekki hætt aö leika
á vegum Leikfélagsins, a.m.k.
ekki Helga, Hún fer I ágúst i
leikför með félaginu til Færeyja
með Skjaldhamra og næsta vet-
ur mun hún einnig halda áfram
að leika i þvi, enda var þannig
samið, þegar þau sögðu upp.
Þaö er erfitt að slíta sig úr
þessu, þvi i leikhúsinu eru
margirokkar bestu vina,” sagöi
Helgi.
Blóðrautt sólarlag.
Helgi vinnur I sumar við upp-
töku á kvikmynd eftir Hráfn
Gunnlaugsson og nefnist hún
Blóðrautt sólarlag.
Upphaflega fékk Hrafn styrk
til þess að gera þessa kvikmynd
ásamt sænskum aðilum en svo
tók sjónvarpið verkefnið að sér.
Myndað hefur verið að undaln-
förnu upp við Geitháls og suður i
Höfrium, en i ágúst verður farið
vestur á Strandir, i Djúpuvik,
þar sem mikil byggð reis upp i
sildarævintýri einu sinni.
Myndin fjallar um sumar-
reisu tannlæknis og banka-
manns, en þegar þeir koma i
Djúpuvik og sjá hina hryllilegu
auðn, sem blasir við þeim, þar
sem öll hús standa auð og verk-
smiðjurnar tómar, breytist
ánægja ferðarinnar i martröð.
Skipulag uppeldisins
Hvernig geta hjón leikið bæði
tvö og jafnframt aliö upp þrjú
börn?
„Þaðer mjög auðvelt,” segir
Helgi. „Það vinna allir saman
og þá gengur allt ágætlega. Það
má kalla það skipulag uppeldis-
ins,” segir hann.
„Auk þess höfum við,” bætir
Helga við, „ekkert leikið saman
i vetur, svo annað okkar hefur
alltaf verið heima. Það er þó
heldur ekki ástæðan fyrir þvi að
við hættum hjá Leikfélaginu,”
segir Helga og hlær við.
—RJ