Vísir - 23.09.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 23.09.1976, Blaðsíða 1
Siódegisblaö fyrir fJöisHyiduna alla /i <--) i Fimmtudagur 23. september 1976 228. tbl. 66. árg. Haukur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður spyr: Var einhverju leynt fyrir saksóknara? ,,Var rikissaksóknari, Þórður Björnsson, (vis- vitandi) leyndur einhverjum staðreyndum um sjónvarpssmyglmálið? ” spyr Haukur Guðmunds- son, rannsóknarlögreglumaður, vegna þeirrar ákvörðunar saksóknarans að fela Sakadómi Reykjavikur meðferð þess. Mikið fjaðrafok hefur orðið útaf þvi að þeir Haukur og Kristján Pétursson, fylgdu þessu máli nokkuð eftir i sinum fritima. Það er ekki i fyrsta skipti sem þeir félagar taka sér ólaunað sumarfri til að geta unnið að einhverju máli. Haukur gerir ýmsar athugasemdir við yfirlýs- ingar sem hafa verið gefnar vegna Seltjarnarness- ferðarinnar og hefur ýmsar spurningar að leggja fyrir saksóknara. Sjá baksiðu. —Ó.T. Þa& er munur að eiga svona skólasystur sem fagnar manni'með faðmlögum þegar skólinn hefst á haustin. Þaö sýnir Uka a& mörgum er þaö fagnaðarefni að byrja að nýju f skólanum eftir sumarfrfið. — Ljósmynd vísis: Jens. Sjómenn ó línubátum á Vestfjörðum: Neita að róa Róðrar á stærri línu- bátum á Vestfjörðum liggja nú niðri þar sem sjómenn hafa ekki viljað láta skrá sig í skipsrúm. Eru sjómenn með þessu að mótmæla skiptapró- sentunni sem þeir telja of lága. Vertiðarlok voru á Vestfjörð- um nú 15. september. Afréðu þá sjómenn á stærri linubátunum að ráða sig ekki aftur. Hins veg- ar róa skuttogarar og smærri bátar áfram. Róðrarstöðvunin nær um alla Vestfirði eins og fyrr segir og munu áhafnir um tiu til fimmtán báta taka þátt i henni. Hóta þeir að halda róðrarstöðv- uninni áfram þar til viðunandi leiðrétting fæst á skiptaprósent- unni að þeirra dómi. Róðrarstöðvunin er ekki framkvæmd i nafni Alþýðu - sambands Vestfjaröa. —eko Kortöflur hœttar að berast úr Þykkvabœnum „Eftir að haustverð var á- kveðið hættu kartöflur að berast úr Þykkvabænum,” sagöi Þorgils Steinþórsson, skrif stofustjóri Grænmetisverslunarinnar, I samtali viö Vfsi I morgun. Þorgils sagði að bændur þar eystra segðust hafa ýmsum öðr- um störfum að sinna og hefðu þeir þvi ekki tima til að sinna kart- öflunum. Taldi hann að vel mætti vera að þar lægi óánægja með verðlagsmálin að baki, en sér vitanlega væri ekki um sölubann að ræöa. Að sögn Þorgils mun þó ekki vera fyrirsjáanlegur neinn skort- ur á kartöflum, þar sem nokkurt magn erlendra kartaflna er enn til hjá Grænmetisversluninni, en búast má við aö nýjar innlendar kartöflur verði ekki á boðstólum næstu daga. — SJ Frjóls- Hyggju- menn og útvarpið okkar — Sjó bls. 10 —~------- KJÖT HAKKAÐ í ÞÁGU LÆKNA- í VÍSINDA ^ —Sjóbls^isj Úrslit í verðlauna- samkeppni Vísis og Ittala — Sjá bls. 2 f y Einar Hákonarson skrifar um sýningu HALL- DÓRS PÉTURS- | SONAR — Sjá bls. 11 - J

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.