Vísir - 23.09.1976, Page 10
10
Fimmtudagur 23. september 1976 VISIR
VÍSIR
tjtgcfandi: Rcykjaprcnt lif.
Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjórar: Dorstcinn Pálsson, ábm.
Ólafur Itagnarsson
Ritstjórnarfúlltrúi: Bragi Guðmundsson
F'réttastj. erl. frétta: Guðmundur Pétursson
Blaðamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir,
Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálssort, Óiafur
Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns-
dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir.
tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
Ltlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Símar 116B0 8BC11
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi86611.7 linur
Askriftargjald 1006 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Frjálshyggjuþingmenn
og útvarpið
Lögfræðingur Ríkisútvarpssins hefur komist að
þeirri niðurstöðu, að útvarpsráð hafi ekki lögform-
lega heimild til þess að veita leyfi fyrir frjálsum út-
varpsstöðvum í landinu. útséð virðist því um, að
breytingar verði á í þessu efni, nema Alþingi sam-
þykki sérstök heimildarlög í þessu skyni.
Umsóknir þær, sem legið hafa fyrir útvarpsráði um
frjálsan útvarpsrekstur, hafa að vonum vakið upp
talsverðar umræður um þetta mál. Engum vafa er
undirorpið, að krafan um afnám ríkiseinokunar á út-
varpsfjölmiðlun hefur fengið hljómgrunn meöal
fólksins.
Flestum er Ijóst, að þaðgetur ekki staðist til lengdar
i lýðræðisríki, að stjórnmálaflokkarnir einoki í gegn-
um ríkisvaldið svo þýðingarmikinn fjölmiðil sem út-
varpiðer. Það mætti eins setja dagblöð undir ríkisein-
okun, ef sú röksemdafærsla á að gilda gegn frjálsum
útvarpsrekstri, að hér sé um svo kostnaðarsamt fyrir-
tæki að ræða, að frjálsræði myndi leiða til óviðunandi
mismununar.
Þegar það liggur nú fyrir, að útvarpsráð telst ekki
hafa heimild til að veita undanþágur frá einkarétti
Ríkisútvarpsins, er nauðsynlegt, að Alþingi geri
breytingar á útvarpslögunum, er miði að auknu
frjálsræði í þessum efnum. Alþingi þarf að taka málið
tii meðferðar þegar í byrjun þinghalds í næsta mán-
uði, ef vel á að vera.
Stjórnmálaf lokkarnir hafa alla tíð verið hræddir við
frjálsa f jölmiðlun, en misjafnlega þó. Þeir hafa f raun
réttri haftalla fjölmiðlun í landinu á sínum höndum til
skamms tíma. Það er fyrst á siðari árum, að einstök
blöð hafa losnað undan boðvaldi flokkanna. Sumum
blöðum ráða þeir enn, svo og Ríkisútvarpinu.
Sjálfstæði Ríkisútvarpsins getur aldrei verið meira
en flokkspólitíska samtryggingin leyfir hverju sinni.
Þannig er kerfið. Þessa fjötra þarf að brjóta af út-
varpsf jölmiðluninni í landinu. Það verður hins vegar
ekki gert, nema leyfður verði rekstur frjálsra út-
varpsstöðva.
Það liggur í augum uppi, hversu takmörkuð og lág-
kúruieg blaðafjölmiðlunin væri, ef flokkarnir réðu
henni enn að öllu leyti. Jafn augljóst er, að nýr f jör-
kippur myndi færast í útvarpsf jölmiðlunina, ef losað
yrði um f jötra rfkiseinokunarinnar og hinnar flokks-
pólitfsku samtryggingar.
Með heldur klaufalegum hætti hefur verið reynt að
draga kjaradeilu starfsmanna Ríkisútvarpsins inn í
umræður um frjálsa f jölmiðlun. Flestum er þó Ijóst,
aðþetta eru allsendis óskyld mál. Annars vegarer um
að ræða hreina kjaradeilu og hins vegar spurninguna
um rétt borgaranna til að hagnýta sér þá fjöl-
miðlunarmöguleika, sem fyrir hendi eru.
Frjálshyggjumenn á Alþingi þurfa nú að fylgja máli
þessu fram með breytingum á útvarpslögunum. For-
mælendur flokksræðisins munu ugglaust reyna að
setja fótinn fyrir dyrnar, þegar reynt verður að opna
þær í f rjálsræðisátt. Það er bæði gömul saga og ný.
Að vissu leyti getur þetta mál því orðið prófsteinn á
Alþingi. Álitamálið er það, hvort nægjanlega margir
frjálshyggjumenn sitji á þingi til þess að koma fram
breytingum, er draga úr flokksræðinu.
Seðlabankinn hœkkar
vanskilavexti ó
almennum útlónum
Reglur um vaxtareikninga
hlaupareikninga samrœmdar
„Þessi hækkun vanskilavaxta
er gerð tii þess aO breikka bil
milli venjulegra útlánsvaxta og
vanskilavaxta, en með tilkomu
vaxtaaukalána, sem eru með
22,5% vöxtum var munurinn
ekki nema 1,5% á ári milli van-
skilavaxta og vaxtaaukaláns-
'vaxta,” sagði Davið Ólafsson,
Seðlabankastjóri i viðtali við
Visi.
„Með þessari hækkun á van-
skilavöxtum eykst þessi munur
á ársvöxtum hinsvegar um
7,5%.”
Vanskilavextir
hækka um 1/2%.
Bankastjórn Seðlabankans
hefur i samráði við bankaráð
tekið ákvörðun um þessa hækk-
un vanskilavaxta ásamt nokkr-
um öðrum breytingum á reglum
um vexti við innlánsstofnanir.
Vanskilavextir hækka um 1/2%,
úr 2% i 2,5% á mánuði eða brot
úr mánuði. Vanskilavextir
hækkuðu ekki i vor, þegar út-
lánsvextir voru hækkaöir, en
þeir voru siðast hækkaðir i júli
1974úr 1,5% i 2%. bessari hækk-
un er ætlað að auka aðhald i út-
lánamálum og vinna gegn
greiösluvanskilum hjá innláns-
stofnunum.
Breyttar reglur um
vexti hlaupareikninga
1 öðru lagi er nú bætt i vaxta-
reglurnar skilgreiningu á þvi,
hvenær heimilt sé að reikna
vanskilavexti af skuldum á
hlaupareikningum og sambæri-
legum viðskiptareikningum.
Segir orðrétt i bréfi til innláns-
stofnana um þessi efni:
„Vanskilavextir af skuldum á
hlaupareikningum eða sam-
bærilegum viðskiptareikning-
um skulu einungis reiknaðar I
eftirgreindum tilvikum:
1) Veitt heimild til yfirdráttar
rennur út, án þess að reiknings-
skuld sé gerð upp, enda sé lokaö
fyrir frekari skuldfærslur á
reikninginn og gjaldfallinn
skuld sæti venjulegri inn-
heimtuaðferð vanskilaskulda.
2) Reikningi lokað og tékka-
eyðublöð innkölluö.
Taka vanskilavaxta sam-
kvæmt tölulið 1) er þó ekki
heimil, ef yfirdráttarheimild er
endurnýjuð að einhverju leyti
innan mánaðar frá þvi að van-
skil hófust.”
Varðandi vanskilavaxtatöku
af hlaupareikningum, sagði
Davið Ólafsson að þessar breyt-
ingar hefðu verið all-lengi í und-
irbúningi og stæðu ekki i beinu
sambandi við þau tékkamál,
sem rannsökuð eru i dag.
bessi breyting er nánari skil-
greining á þvi, hvenær heimilt
sé að taka vanskilavexti af
hlaupareikningi, en slik skil-
greining hefur ekki verið áður i
vaxtatilkynningum. betta sé
gert svo reglur um þessi efni
verðiótviræðar, en mismunandi
reglur hafa gilt um þetta i inn-
lánsstofnunum.
I þriðja lagi er nú kveðið á um
hámark nafnvaxta af þeim
skuldabréfum með eftirá
greiddum vöxtum, sem eru með
gjalddaga oftar en I sex mánaða
fresti. Davið sagði að þetta væri
gert, svo vaxtaupphæðir yrðu
ekki hærri á skuldabréfum, sem
greitt er af oftar en á sex mán-
aða fresti, heldur en á skulda-
bréfum sem greidd væru á sex
mánaða fresti.
Breytingar á vanskilavöxtum
taka ekki gildi fyrr en 20.
nóvember vegna tæknilegs und-
irbúnings hjá innlánsstofnun-
um, en aö öðru leyti taka breyt-
ingarnar gildi 1. október. —RJ