Vísir - 23.09.1976, Page 13
12
c
Fimmtudagur 23. september 1976 VISIR
VISIR Fimmtudagur 23. september
1976
Umsjón: Björn Blöndal og Gylfi Kristjánsson
13
J
Markaregn
í Helsinki
hjá finnum
Finnar voru heldur betur á skotskónum I
leik sinum við Luxemborg i forkeppni heims-
meistarakeppninnar sem fram fdr i Helsinki
i gærkvöldi. Finnarnir sigruðu með 7 mörk-
um gegn einu, og hafa við sigurinn skotist
upp i efsta sætið i riölinum, þótt lítið sé að
marka stöðuna ennþá. T.d. hafa italir
enn ekki leikið en finnar eru komnir meö tvo
leiki.
Staðan i hálflcik á ieiknum i gær var orðin
3:0 en strax I upphafi siðari hálfleiks
skoraði Gilbert Zender fyrir Luxemborg, rétt
eftir að hann hafði komið inn sem varamað-
ur.
Siðan tóku finnarnir viö aftur og bættu f jór-
um mörkum við áður en leiknum lauk.
Mörk finnana i gær skoruðu þeir Eas
Heiskanen 2, Rissanen 2, Aki Heiskanen,
Heikkenin og Maekynen allir eitt mark.
Staðan i riðli 2 er nú þessi:
Finnland
Engiand
Luxcmborg
ttalia
2 1 0 I 8:5 2
1 1 0 0 4:1 2
1 0 0 1 1:7 0
0 0 0 0 0:0 0
— gk-
Loksins
töpuðu
danirnir
ttalir léku „upphitunarleik” fyrir heims-
meistarakeppnina igærkvöidii Kaupmanna-
höfn og sigruðu dani 1:0.
Danirnir byrjuðu vcl i leiknum og fengu
m.a. þrjár hornspyrnur, en þegar Italir skor-
uðu mark sitt á 17. minútu leiksins fór dæmið
að snúast við. l>að var Paoiini Pulici sem
skoraði markið, óverjandi fyrir Bennó Lar-
scn i markinu. Þetta var fyrsti ósigur dana á
þessu ári.
Bæði þessi lið eru i forkeppni heimsmeist-
arakeppninnar. ttalia er i riðli með Englandi,
Finnlandi og Luxemborg, og á að leika sinn
fyra leik 16. okt. i Luxemborg.
Danir eru i riðli með Portúgal, Póllandi og
Kýpur sem þeir hafa þegar sigrað 5:1.
Norðmenn unnu kærkominn sigur f gær-
kvöldi þegar þeir unnu svia á heimavelli 3:2
eftir aö staðan hafði veriö 2:0 fyrir Noreg I
hálfleik. Virðist sem norðmenn séu talsvert
að rétta við eftir slakan árangur framan af
árinu.
Evrópumeistararnir frá Tékkóslóvakiu
héldu til Búkarest i gær og léku þar vináttu-
leik við Rúmeniu.
Marian Masny sem lék hér á dögunum með
Slovan Bratislava skoraöi fyrsta markið
fyrir tékka á 23. ntinútu, en aðeins 8 minútum
siðar jafnaði Dudu fyrir heimamenn. Og
fleiri urðu mörkin ekki.
A-Þýskaland og Ungverjaland gerðu jafn-
tefli 1:1 í A-Beriín I gærkvöldi. Riediger skor-
aði fyrir þjóðverja á 20. minútu, en Fazekas
jafnaði fyrir ungverja 7 mínútum siðar.
Enn einn vináttuleikurinn fór fram I Vinar-
borg. Þar léku lið Austurrikis og Sviss, og
fóru leikar svo aö heimaliöið sigraöi 3:1. öll
mörkin voru skoruð i siðari hálfleik.
gk—•
Sigurður boðaði
forföll
Jón Þ. Magnússon haföi samband við Visi
vegna greinar um að Siguröur Hannesson
dómari á leik Fram og Þróttar heföi ekki
mætt til leiksins og ekki boöað forföll. Vildi
Jón koma þvi á framfæri að Siguröur heföi
boðað forföll, sökin varöandi það að ekki
mætti dómari, væri hjá sér.
Valsmenn verða
sterkir í vetur
— hafa fengið tvo leikmenn frá í fyrra og Helgi Jóhannsson
hefur tekið við þjálfun liðsins
Helgi Jóhannsson, hinn gamal-
reyndi körfuknattleiksþjálfari,
sem hér fyrr á árum þjálfaði lið
ÍR og landsliðið ár eftir ár hefur
nú tekið fram skóna á ný og mun
þjálfa 1. deildarlið Vals í vetur.
Þetta er mikill fengur fyrir
Valsliðið, og ekki er að efa að
IR
Valur —
í kvöld
Reykjavikurmótinu i hand-
knattleik veröur haldið áfram i
kvöld I Laugardalshöll og þá fara
fram tveir leikir i mfl. karla.
Fyrri leikurinn hefst (vonandi)
kl. 20— og er það leikur Ármanns
og Leiknis. Að honum loknum
leika siðan Valur og ÍR. Fróðlegt
verður að sjá hvort valsmönnum
tekst eitthvað að rétta úr kútnum,
en sem kunnugt er töpuðu þeir
tveim fyrstu leikjum sinum í mót-
inu, fyrir Vikingi og Ármanni.
lRúngar hafa á hinn bóginn leikið
einn leik og unnu ármenninga
nokkuð auðveldlega.
Helgi á aö geta náð langt með
það.
Ekki er nóg með það að vals-
menn hafa nú fengið mjög góðan
þjálfara, heldur hefur þeim einn-
ig bæst góður liðsauki frá fyrra
ári. Má þar til nefna að Jóhannes
Magnússon, margreyndur lands-
liðsmaður, sem ekki gat leikiö
með liðinu i fyrra er nú byrjaður
aftur, og þá hefur snæfellsnes-
maðurinn sterki, Kristján
Ágústsson, sem var stigahæsti Is-
lenski leikmaðurinn i 1. deildinni I
fyrra, gengið yfir i Val. Fyrir eru
i liðinu leikmenn eins og Þórir
Magnússon, Torfi Magnússon,
Rikharður Hrafnkelsson. Allir
eru þeir landsliðsmenn.
Það er þvi óhætt að bóka að
valsmenn verða sterkir I vetur og
örugglega verða þeir i fremstu
röð.
011 1. deildarliðin i Reykjavik
verða þvi með nýja þjálfara i vet-
ur. tR meö Þorstein Hallgrims-
son i stað Einars ólafssonar,
Fram meö Anton Bjarnason i stað
Kristins Jörundssonar, Ármann
með Birgi Orn Birgis I stað Ingv-
ars Sigurbjörnssonar, tS með
Einar ólafsson i stað Gunnars
Gunnarssonar, KR með Einar
Gunnar er
bjartsýnn
,,Þó að okkur hafi ekki gengið
vel i fyrsta leiknum, þá er ég
mjög bjartsýnn á árangur
Göppingen i vetur”, sagði Gunnar
Einarsson i viðtali við Visi.
,,Við höfum fengið 9 nýja leik-
menn siðan i fyrra, suma þeirra
þeirra mjög sterka, svo það er
ekki hægt annað en vera bjart-
sýnn. Við stefnum að sjálfsögðu
að þvi að verða meðal 6 efstu lið-
anna i suðureildinni þvi 6 efstu liö
úr hvorri deild komast I hina
sameiginlegu Bundesligu sem
verður stofnuð i vor.
Ég bý fyrir utan Göppingen I
þorpi sem heitir Ebersbach. Það
er tiltölulega stutt frá þar sem ég
er i skóla.”
Keppninni i suðureildinni lýkur
þann 26. mars, en fyrsti leikurinn
sem Göppingen lék var um sið-
ustu helgi gegn Huttenberg.
—gk
Bollason í stað Kolbeins Pálsson-
ar og Valur með Helga Jóhanns-
son i stað Guðmundar Þorsteins-
sonar. Verður fróðlegt að sjá
hvaða áhrif þessi þjálfaraskipti
koma til með að hafa á liðin.
Hin tvöliðin eru Breiðablik, þar
sem Guttormur Ólafsson heldur
áfram um stjórnvölinn og UMFN
þar sem annað hvort verður er-
lendur þjálfari eða Hilmar Haf-
steinsson sem þjálfaði liðið i
fyrra.
gk—.
Slœmt
tap hjá
Standard
Félagar Asgeirs Sigurvinsson-
ar i Standard Lieges biðúslæman
ósigur á útivelli i gærkvöldi gegn
AS Ostende. Standard tapaði 1:5
sem er nokkuð óvænt, en Asgeir
lék ekki með vegna meiðsla.
Charleroi, lið Guðgeirs Leifs-
sonar, tapaði einnig á útivelli.
Liðið lék við FC Liegeois sem
sigraði með tveim mörkum gegn
einu.
Af öðrum úrslitum má nefna
1:1 jafntefli Anderlecht og Molen-
beek og sigur Bruges yfir Malin-
ois 2 mörk gegn engu.
— gk-
Keppa um
7,5 milljónir
Sænski tennisleikarinn Björn
Borg og Italinn Adriano Panatta
munu mætast I heljarmiklu ein-
vigi I Sviþjóð 9. október. Upphæð-
in sem kapparnir keppa um er
hvorki meira eöa minna en 7,5
milljónir islenskra króna, svo aö
til nokkurs er að vinna. Borg er
Wimbledon-meistari, en italinn er
bæöi Italskur og franskur meist-
ari. gk—.
Það gengur ekki vel hjá leikmönnum Tottenham þessa dagana. 1 gær tapaöi liöiö 2:3 fyrir 3. deildar liö-
inu Wrexham i deildarbikarnum, og þaö þótt liöiö væri á heimavelli. Þessi mynd er tekin úr leik Totten-
ham og Middlesborough i 1. deildinni, en honum lauk 0:0.
Óvœnt tap Spurs
og West Bromwich
Voru slegin út af liðum úr 3. deild í enska
deildarbikarnum í gœrkvöldi
Tvö liö úr 1. deild voru slegin út
af liðum úr 3. deild i enska deild-
arbikarnum I gærkvöldi — bæöi á
heimavelli. Tottenham tapaöi á
White Hart Lane fyrir Wrexham
og West Bromwich Albion tapaöi
á sinum heimavelli — The Haw-
thorns.fyrir Brighton. 1 þeim leik
var einn af leikmönnum West
Brom, Willie Johnston visaö af
leikvelli fyrir aö reyna aö sparka
i dómarann, Derek Lloyd.
Hetja Wrexham á White Hart
Lane var Micky Thomas sem
skoraði tvivegis i fyrri hálfleik —
og strax á fyrstu minútunni i sið-
ari hálfleik bætti Bill Ashcrit
þriðja markinu við. Þá fyrst tóku
leikmenn Tottenham við sér og
tókst aö minnka muninn með
mörkum Glen Hoddle og Ian
Moores, en heldur ekki meir — og
þar með sannaði Wrexham aö það
var engin tilviljun aö liðið sló Lei-
cester út i siöustu umferð.
Ekki gekk betur hjá WBA á The
Hawthorns — og þar skoraði Pet-
er Ward bæði mörk Brighton.
En þá eru það úrslitin i þriðju
umferð deildarbikarkeppninnar i
gærkvöldi:
Derby—NottsC 1:1
Fulham—Bolton 2:2
Man. Utd,—Sunderland 2:2
Newcastle—Stoke 3:0
Torquay—Swansea 1:2
Tottenham—Wrexham 2:3
WBA—Brighton 0:2
Newcastle átti ekki i erfiðleik-
um með Stoke á St. James Park I
Newcastle — og staðan i hálfleik
var 2:0, með mörkum Nattrass og
Craig úr vitaspyrnu og þegar átta
minútur voru til leiksloka bætti
Burns við þriðja markinu.
Leikur Mancester United og
Sunderland byrjaði meö tveim
sjálfsmörkum, fyrst sendi
Gordon Hill boltann I eigið mark
og siðan Slaw hjá Sunderland,
Stuart Person náði siðan foryst-
unnifyrir United, en Tony Towers
jafnaði fyrir Sunderland.
Derby átti i miklu basli við 2.
deildar liö Notts County á
Basebal Ground i Derby —
O’Brian náði forystunni fyrir
Notts County, en Charlie George
jafnaði fyrir Derby úr vita-
spyrnu.
George Best kom enn við sögu i
gærkvöldi — og hann skoraði
strax á fyrstu minútunni I leikn-
um gegn Bolton.
—BB
Loksins sigur
hjá Celtic!
— Jóhannes Eðvaldsson lék ekki með liðinu
var varamaður
Celtic sigraöi Albion Rovers á
útivelli I skosku deildarbikar-
keppninni i gærkvöldi. Jóhannes
Eövaldsson lék ekki meö liöinu,
var varamaöur i leiknum. Mark
Celtic skoraöi-Tommy Callag-
han I siöari hálfleik.
Úrslitin i leikjunum I deildar-
bikarnum i gærkvöldi uröu
þessi:
Aberdeen—Stirling
AlbionR.—Celtic
1:0
0:1
Hearts—Falkirk 4:1
Rangers—Clydbank 3:3
Það kom mjög á óvart að
Rangers skyldu aðeins ná
jafntefli við Clydbank sem leik-
ur i 1. deild, sérstaklega þar
sem leikið var á heimavelli
Rangers — Ibrox. Mörk Rang-
ers voru skoruð af Derek John-
stone, Hamilton og Parlane.
—BB
Athugasemd frá Knattspyrnuráði Akraness:
FERGUSON
VAR EKKI
REKINN HEIM
t tilcfni ummæla Mike Fergu-
son I viötali viö VIsi 21. sept.
viljum viö taka fram eftirfar-
andi:
1. Vegna ruddalegra ummæla
MF um Gunnar Sigurðsson, for-
mann knattspyrnuráðs, er rétt
að það komi fram að algjör
samstaða hefur verið innan
ráðsins um öll meiri háttar mál
i sumar.
2. Það er ekki rétt að MF hafi
verið rekinn. Sannleikurinn er
sá, að daginn eftir úrslitaleikinn
við Val tilkynnti hann okkur að
hann myndi fara heim til Eng-
lands mánudaginn 20. sept. og
koma siðan i okkar hóp í London
þegar við færum til Tyrklands
um næstu helgi.
Við tjáðum honum að hann
yrði að æfa liðið næstu viku, en
eftir ósigurinn gegn Trabzon-
spor sagði hann að leikmenn
væru svo andlega þreyttir eftir
tvo ósigra i röð, að þeir yrðu að
fá algjöra hvild vikuna áður en
farið yröi til Tyrklands.
Þessu vildum við ekki una og
á sameiginlegum fundi knatt-
spyrnuráðs og leikmanna 1A
liðsins var einróma samþykkt
að tilkynna MF að hann yrði að
standa við gerðan samning um
að vera með liðinu þar til
keppnistimabilinu lyki, aö öðr-
um kosti litum við svo á að hann
segði starfi sinu lausu.
Þegar MF heyrði þessa niður-
stöðu fundarins sagðist hann
fara samt og með þaö kvaddi
hann og fór.
3. Fyrst MF óskar eftir blaöa-
skrifum um störf sin fyrir IA er
rétt að það komi fram, að flest
þau atriði sem hann samdi um
hefur hann vanrækt og hefur
knattspyrnuráð staðið i stööugu
striði við hann út af þvi i allt
sumar.
4. Fullyrðing MF um að for-
ráðamenn liðsins hafi keypt fyr-
irhann farseðla til Englands og
heim aftur fyrir bikarúrslita-
leikinn er ósönn.
Eftir bikarleikinn gegn FH,
þar sem IA tryggði sér rétt til að
spila úrslitaleikinn i bikar-
keppninni, bað MF um 3ja daga
fri til að skreppa til Englands.
Var það samþykkt, en heim
kom hann svo ekki fyrr en á 11.
degi.
MF pantaði sjálfur farseðla
hjá umboðsmanni úrvals á
Akranesi og ákvað timasetning-
ar, sem ekki reyndust vera i
samræmi við leyfi knattspyrnu-
ráðs um timalengd utanferðar.
Akranesi, 22. sept. 1976
Knattspyrnuráö Akraness
Viö undirritaöir leikmenn 1A
iiösins lýsum furöu okkar á
ummælum Mike Ferguson I
dagblaðinu VIsi 21. sept. og lýs-
um yfir fullu trausti á Knatt-
spyrnuráö Akraness og for-
mann þess, Gunnar Sigurösson.
Þröstur Stefánsson
Jón Gunnlaugsson
Andrés Gunnlaugsson
Andrés Ólafsson
Björn Lárusson
Hörður ó. Helgason
Sigþór ómarsson
Arni Sveinsson
Tcitur B. Þóröarson
Karl Þórðarson
Pétur Pétursson
Jóhannes Guöjónsson
Guöjón Þóröarson
Siguröur Halldórsson
Jón Áskclsson
Eitt siöasta verk Ferguson áöur en alltfór f háaloft var aö stjórna liöi sinu I úrslitaleik bikarkeppninnar.
Hér sést hann heilsa þeim GislaHalIdórssyni, forseta ÍSÍ, og formanni KSl, EUert B. Schram fyrir leik-
inn. Ljósm. Einar.
GRUNNSKOLI I.S.I.
Þjálfaranámskeiö A-stigs veröur haldið í Reykjavík í október og
nóvember. Hefst það 5. október og lýkur í byrjun desember. Bókleg og
verkleg kennsla i íþróttum.
Þátttakendur öðlast rétt til þátttöku f B-stigs námskeiðum sérsamband-
anna.
Upplýsingar veittar á skrifstofu I.B.R.
Forstöðu námskeiðsins annast Jóhannes Sæmundsson.
Þetta er liö Göppingen eins og þaö kemur til meö aö veröa skipað f vetur. Gunnar Einarsson er annar frá hægri f fremri röö
Iþróttabandalag Reykjavíkur