Vísir - 24.09.1976, Blaðsíða 11

Vísir - 24.09.1976, Blaðsíða 11
VISIR Föstudagur 24. september 1976 11 Leiðtogi stærstu þjóðar heims, formaður fjölmennasta kommúnistaflokks heims, Maó Tse Tung er látinn. Efalaust hefur enginn þjóðar- leiðtogi eða byltingarleiðtogi verið syrgður af jafnmörgum milljónum við dauða sinn og Maó formaður. Þó svo að vitað hafi verið að Maó hafi verið alvarlega sjúkur um nokkurn tima þá er lát hans samt alvarlegt áfall fyrir kín- versku þjóðina og alla heims- hreyfingu þeirra byltingarsinna sem fylgdu leiðsögn hans. Áríðandi fréttatil- kynning Maó Tse Tung lést rétt eftir miðnætti 9. september. Samt er það ekki fyrr en liðlega kl. 2 að Peking tima sem tilkynnt er að kl. 4 yrði útvarpað áriðandi fréttatilkynningu um gervallt kinaveldi i öllum útvarps- stöðvum. Þá þegar mátti geta til um innihald fréttatilkynn- ingarinnar. Engum stökk bros á vör og allir bjuggu sig undir hið versta. Einstaka felldu tár þannig að augljóst var aö sumir höfðu þegar frétt af dauða leiö- toga sins. Rétt fyrir fjögur var öllum erlendum nemendum við Pekingháskóla, rúmlega tvö hundruð manns, safnað saman i matsal okkar til að hlusta á til- kynninguna. 1 salnum rikti dauöaþögn. Þegar þulurinn byrjaði að tala, lýsti yfir þjóðarsorg og þvi að leiðtogi klnversku þjóðarinnar, félagi Maó Tse Tung væri látinn þá fáruðust margir nemend- anna. Við sátum þarna i nærri eins klukkustund og hlustuðum á fréttatilkynninguna aftur og aftur. Það var eins og við vildum ekki trúa þessu þó svo aö allir hafi i raun og veru átt von á fráfalli formannsins hvenær sem væri. Er hér var komið stóð einn af leiðandi mönnum Pek- borgar má sumstaðar sjá raðir fólks sem gengur hægt með kransa i farabroddi. Annars er frekar fátt fólk á ferli og i heild finnst mér kinverjar bera sig nokkuðvel. Grátbólgin augu eru að visu ekki óalgeng sjón og allir eru sorgmæddir á svip, en athafnalif höfuðborgarinnar heldur samt áfram að miklu leyti ótruflað, búðir eru opnar og fólk stundar vinnu sina. I gærkveldi sá ég þar sem var sjónvarpað frá Hinum Mikla Sal Alþýðunnar er leiðtogar þjóðar- innar gengu framhjá liki Maós til að votta honum virðingu sina. Einnig var sýnt þegar fulltrúar þjóðernisminnihluta og nem- endur við Þjóðernisminnihluta háskólann i Peking gengu framhjá liki Maós, flestir flóðu i tárum. Og kinverjarnir sem horfðu á útsendinguna brustu nær undantekningarlaust i grát. 1 morgun 13. september, fengum við leyfi til að fara til Hins Mikla Salar Alþýðunnar og ganga framhjá liki formanns Maós Tse Tungs. Að sjálfsögðu fórum við öll. Frá Pekingháskóla til Torgs Hins Himneska Friðar og Hins Mikla Salar Alþýðunnar er um það bil hálftima akstur. Allan þann tima mælti enginn orð frá vörum, né heldur á bakaleið- inni. Er við gengum fram hjá liki Maós Tse Tungs formanns þar sem hann lá i glerkistu áttu margir erfitt með að halda aftur af tárunum sem vildu brjótast fram og eins þegar við tókum i hendurnar á þeim leiðtogum landsins sem stóðu þar hjá. Enginn okkar mun nokkru sinni gleyma þessari stundu. Maó hverfur ekki úr kinversku stjórnmála- lifi. Ég býst við að kinverjar haldi áfram að syrgja leiðtoga sinn með svipuðum hætti, a.m.k. til Erfítt dð nugso sér Kína ón Maós ingháskóla á fætur og tilkynnti okkur lágri röddu að við gætum snúið til herbergja okkar en það yrði önnur tilkynning upp úr kl. 6. Allir uppteknir við að gera kransa Það var vart að menn mæltu orð af vörum næstu klukku- stundimar. Rúmlega kl. 6 var tilkynnt að þjóðarsorg skyldi rikja i Kinaveldi til 18. september. Ennfremur skyldu samyrkjubú, verksmiðjur, skólar og aðrar stofnanir sjá um að undirbúa minningarathöfn sjálfar. Þá var einnig nánar tekið fram um fyrirkomulag minningarathafna i höfuðborg- inni og sagt að það væri ekki farið fram á að erlendir þjóö- höfðingjar kæmu tii aö veröa viðstaddir útförina. Strax þetta sama kvöld var tekið til við að útbúa blóm- sveiga. Má segja að á vissan hátt hafi fólk fengið útrás fyrir sorg sina. Allir voru uppteknir við að gera kransa. Jafnvel erlendir nemendur hér tóku sig einnig til. Fyrstir byrjuðu viet- nömsku nemendurnir sem virtust taka fráfall Maós for- manns ákaflega nærri sér. Siðan byrjuðum við hver þjóðin á fætur annarri. Viö, norður- landabúar slógum saman i að gera einn krans enda erum við ekki nema 7 alls hér sem stendur. Og áfram daginn eftir Samtals útbjuggju erlendir nemendur i Pekingháskóla u.þ.b. tiu stóra blómsveiga. Voru þeir minnstu um mann- hæðaháir, enda kepptust allir við að hafa sina kransa sem stærsta og veglegasta til aö sina með þvi virðingu sina fyrir hinum látna formanni. Var unnið að kransagerðinni fram á rauða nótt og átti það jafnt við um alla en annars eru kinverjar kvöldsvæfir með afbrigöum. C Ragnar Baldursson skrifar frá Peking Það var eins og enginn gæti farið að sofa þetta kvöld. Morguninn eftir var samt vaknað eldsnemma og haldið áfram við kransagerðina og þeir sem enn höfðu ekki byrjað lögðu nú einnig hönd á plóginn. Að kveldi þess 10. september héldum við hljóð og niðurlút i hóp með blómsveigana inn i há- tiðarsal Pekingháskóla. Þá hafði verið stöðugur straumur fólks með kransa þangað allan daginn. Eru þeir sjálfsagt i þús- undum kransarnir sem hafa verið gerðir i Pekingháskóla einum saman. Þann 11. september var stöðugur straumur fólks inn i þennan sorgarsal til að veita fé- laga Maó Tse Tung sina siðustu kveðju. Við gerðum einnig hið sama, héldum þangað i einum hóp og stóðum nokkra stund þögul fyrir framan mynd af Maó formanni. Sumir grétu. Athafnalifið heldur áfram 1 gær, þann 12. september var enn stöðugur straumur þúsunda manna inn i þennan sal i Pekingháskóla sem er aðeins einn af óteljandi sorgarsölum i Pekingborg einni saman. Enda- lausar raðir fólks með sorgar- bönd á vinstri handlegg. Ef hjólað er um götur Peking- þess átjánda sept. og liklega lengur. Það er ekki auðvelt fyrir fjölmennustu þjóð veraldar að segja skilið við þann leiðtoga sem leiddi hana undan hlekkjum iénsveldis, heims- valdastefnu og hungursneyðar. Hér reynir enginn að geta upp á neinum eftirmanni Maós for- manns enda eru flestir gömlu byltingarleiðtoganna ýmist fallnir i valinn eða heilsuveilir vegna elli. Er i raun óliklegt að mokkur taki beinlinis við hlut- verki Maós i kinversku þjóðfé- lagi á næstunni og jafnvel næstu árin. Það verður vissulega að segjast að það er erfitt að hugsa sér Kina án félaga Maós Tse Tungs i forsæti. En Maó kemur i raun og veru ekki til meö að hverfa úr kinversku stjórn- málalifi á næstunni, það er öruggt. Vigorð kinverja i dag eru meðal annars: „Hugsun Maós Tse Tungs er ódauðleg” og „Hin mikla menningarbylt- ing öreiganna er ódauðleg”. Múgurinn þyrpist aö svo þúsundum skiptir til aö votta hinum látna Ieiötoga sínum virðingu sina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.