Vísir - 24.09.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 24.09.1976, Blaðsíða 24
 VlSIR Föstudagur 24. september 1976 Bílþjófar á ferð Þrir piltar undir 16 ára aldri gerðust heldur stórtækir i bilaþjófnað- inum i nótt sem leið. Stálu þeir þá þrem bil- um viðs vegar um bæ- inn, og skemmdu þá meira og minna auk þess sem þeir skemmdu aðra bila sem þeb* óku utan i á þessu ferðalagi sinu. Fyrsta bilnum munu piltarnir hafa stolið i Kópavogi i gær- kvöldi. Oku þeir honum niöur i bæ en ökuferð þeirra endaði við Smáragötu, þar sem þeir óku á annan bil og ljósastaur. Þaðan hlupu þeir á brott og héldu vestur i bæ, þar sem þeir náðu sér i annað farartæki. Héldu þeir á þvi i ökuferð um bæinn eða þar til þeir fundu þriðja bilinn, sem þeim leist mun betur á, Var hann snarlega tekinn traustataki, en ökuferðinni lauk inn i Sogamýri, þar sem þeir óku á annan bil og hlupu siðan á brott. Lögreglan hafði hendur i hári tveggja piltanna, og kom i ljós að þeir höfðu einnig verið teknir um siðustu helgi fyrir að stela bil. Voru þeir þá fluttir á upptöku- heimiiið i Kópavogi, en fengu að fara þaðan i gærkvöldi, og tóku þá strax upp þráðinn þar sem frá var horfið þegar lögreglan hafði hendur i hári þeirra fyrir nokkr- um dögum. —^lp Verkfall bor- manna leyst Verkfall það, sem staðið hafði i eina viku hjá starfsmönnum við minni borana hjá jarðborunum rikisins, leystist á fundi i gær- kveldi. Að sögn borgils Jónassoriár, fulltrúa hjá Orkustofnun, voru gerðir svipaðir samningar við starfsmenn minni boranna og veriðhafa í gildi við stærstu bora, sem i notkut. eruhjá jarðboruiium ríkisins. Ekki sagði hann þó, að launin hjá þeim, sem verið hefði i verkfalli, hefðu hækkað til jafns við laun þeirra, sem vinna við stóru borana, en hækkunin væri þö nokkuð í þá áttina. Munu þvi væntanlega i dag hefjast að nýju viða um land boranir vegna hitaveitufram- kvæmda, sem legið hafa niðri undanfarna daga. 500 kindur drópust í Svartó í Húnavatnssýslu Dauðar kindur fundust fyrir neðan bæinn Hvamm, sem er einum sex kilómetrum neðar en slysstaðurinn. Ljósmyndir Unnar Agnars- son. Blönduósi. ÞtGAR STÍFLAN BRASJ ÞtYTTI ÁIN Á UNDAN SíR HUNDRUDUM DAUÐRA KINDA „Við sáum fyrstu dauðu kind- ina i ánni niður við bæinn Hvamm, sem er einum sex kiló- metrum neðar en þar sem féð fór i ána,” sagði Unnar Agnars- son meinatæknir á sjúkrahúsinu á Blönduósi, sem var meðal þeirra sem komu að Svartá eftir að um 5(10 fjár hafði drukknað þar i gærmorgun. „Það var óhugnanleg aðkoma þarna,” bætti Unnar við. „Dautt fé niður með árbökkunum og á eyrunum i ánni, og menn að bisa við að draga hræin á land. Þeg- ar við vorum að fara var talan komin upp i 426 kindur, en trú- lega á hún eftir að hækka þvi eftir er að kanna ána fyrir neð- an Hvamm.” Það var snemma i gærmorg- un sem féð rann í ána. Hafi það verið i nátthaga um nóttina, og var beðið eftir þvi að reka það inn i Stafnsrétt, þar sem réttað var i gær. Girðingin sem féð var geymt i lét sig á einum stað, og komust nokkrar kindur þar út. Við það myndaðist mikill troðningur og æddi féð á girðinguna, sem lét undan á stórum kafla. Tók féð á rás upp i brekkur, en talið er að á milli 6000 og 7000 fjár hafi sloppið þarna út úr nátthagan- um. Bændur og smalamenn kom- ust i veg fyrir féð og ráku það til baka. Eftir þvi sem talið er munu þeir hafa rekið það hratt og með miklum hávaða og misst stjórn á þvi. Féð fór út i ána og i hólma sem er i henni miðri. Vestan við hólmann rennur áin i þröngum og djúpum stokk og bakkarnir háir hinum megin. Troðningurinn var það mikill, að fénu sem komst fyrst út i hólmann var þrýst áfram og út i stokkinn, þar sem það tróðst undir. Svo mikið gekk á, að áin stiflaðist um stund, og þegar hún loks brast þeytti hún á undan sér fleiri tugum dauðra kinda. Nokkrir bændur munu þarna hafa misst á milli 30 og 40 fjár, og sumir jafnvel enn meir. Er tjón þeirra metið á fjórar til fimm milljónir, en auk þess er mikill hluti af fénu svo illa marið ' eftir troðninginn i nátt- haganum og ánni, að kjötið af þvi mun verða i lágum verð- flokki þegar komið verður með það til slátrunar. —KLP/RIT. Blönduósi. ,,Ef bændur óska eft- ir þvi við Bjargráða- sjóð, á hann samkvæmt lögum að veita þeim fyrirgreiðslu,'‘ sagði Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Bjargráðasjóðs, er Vis- ir spurði hann i morgun hvort sjóðurinn hlypi undir bagga með bænd- um sem misstu fé i Svartá i gær. „Að hluta til yrði um óaftur- kræft lán að ræða,” sagði hann, „en einnig yrðu veitt vaxtalaus lán til fimm ára”. Magnús sagði að búast mætti við að bændur hefðu samband við sjóðinn og raunar hefði einu sinni verið haft samband við hann i morgun. Hann taldi að tjón bænda næmi á milli þriggja og fimm milljóna króna. Taka yrði inn i myndina að ef mikið hefði verið um lömb i hópnum þyrfti að draga sláturkostnað frá þegar tjón væri reiknað. En á móti kæmi að það fé sem lifað hefði af volkið væri hugsanlega marið og kjöt þess skemmt. Það gæti lækkað afurðaverðið. Magnús sagði að Bjargráða- Vörubilar voru fengnir til að aka niöur meö ánni, þar sem bændur hjálpuðust að við að lesta þá með dauðum kindum sem lágu eins og hráviði við árbakkana og á eyrunum i ánni. sjóður væri nú illa staddur. náttúruhamfara og það væri svo Sjóðurinn hefði þegar greitt 100 til allt ráðstöfunarfé hans. milljónir vegna búfjártjóna og — EKG Útsendingor hef j- ast aftur í kvöld Ctsendingar Sjónvarpsins hefj- ast aftur eftir rúmlega viku stöðvun á kvöld á venjulegum tima og verður þá sýnd sú dag- skrá, sem sýna átti s.l. föstudag. Kl. þrjú siðdegis i dag efndu sjónvarpsmenn til blaðamanna- fundar, þar sem frá þessu var skýrt. Þeir sögðu einnig að þeir teldu sig nokkuð ánægða með þá niðurstöðu sem fengist hefði með viðræðum við menntamálaráð- herra og væri það honum að þakka að nokkur úrlausn hefði fengist i launamálum sjónvarps- manna. Sjónvarpsmenn samþykktu að stofnuð yrðu þriggja manna- nefnd, þar sem einn maður væri tilnefndur af rikisútvarpinu, ann- ar frá Starfsmannafélagi Sjón- varpsins og sá þriðji af mennta- málaráðuneytinu. Störf þessarar nefndar eiga að vera þau að gera samanburð i starfi starfsmanna sjónvarpsins i launakerfi rikisins og á stöðu sjónvarpsmanna i Dan- mörku og Noregi miðað við aðra rikisstarfsmenn þar, er varðar laun og starfskjör. Jafnframt skal nefndin hafa hliðsjón af launum sambærilegra starfshópa sem taka laun hjá rik- inu og einnig hinu almenna vinnu- markaði. Nefndin skal svo skila áliti á Nefnd skipuð til að kanna launamólin grundvelli þessara athugana og ráðherra beita sér fyrir þvi að til- lit verði tekið til niðurstöðunnar er laun verða ákvörðuð. Nefnd- inni ber að skila áliti fyrir lok þessa árs. Saga stœkkar en Esja ekki Orðrómur um að Flugleiðir hyggist fara að stækka Hótel Esju um helming, hefur ekki við rök að styöjast. Hins vegar á að bæta tuttugu og fimm gistiherbergjum við Hótel Sögu. „Það er rétt að það er aðeins búið að byggja helminginn af Hótel Esju,” sagði Erling Aspelund við Visi i morgun. „Einhvern tima i framtiðinni verður hinn helmingurinn reistur. En það er alls ekki á næstu grösum.” Flugleiðir eru nú að flytja starfsemi sina úr bændahöll- inni og Hótel Saga ætlar að yfirtaka það pláss sem þar losnar. „Við byrjum á breytingun- um núna fyrsta október og vonumst til að vera búnir i mai á næsta ári,” sagði Kon- ráð Guðmundsson, hótelstjóri. Þetta er ein hæð sem við fáum — og út úr henni fáum við tutt- ugu og fimm tveggja manna herbergi.” —ÓT A Blaöamannafundinum með sjónvarpsmönnum siðdegis i dag Visismynd: LA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.