Vísir - 24.09.1976, Blaðsíða 19

Vísir - 24.09.1976, Blaðsíða 19
Sjónvarp klukkan 21.35; Allt frœgir Holly- woodleikaror! Þaö er kempan Lee J. Cobb sem leikur eitt aöalhlutverkiö i myndinni „Boomerang” i kvöld klukkan 21.35. Coob fæddist i New York áriö 1911. Eftir að hafa leikið 22 hlut- verk á sviði hóf hann kvik- myndaleik i myndinni „North of the Rio Grande” áriö 1937. Sföan hefur hann leikið i fjölmörgum myndum og sjónvarpsþáttum, m.a. i islenska sjónvarpinu fyrir nokkrum árum i myndaflokkn- um um Virginiumanninn. Likamsbygging hans og rólegt yfirbragö gerðu þaö aö verkum að hann valdist oft i hlutverk valdamikilla manna. Lee J. Cobb lést fyrr á þessu ári 65 ára að aldri. Auk hans eru i aðalhlutverk- um i myndinni þau Dana An- drews, Jane Wyatt og Arthur Kennedy, allt frægir Hoolywoodleikarar. Myndinni, sem í islenskri þýð- ingu hefur hlotið nafnið: „Sekur eða saklaus?” stjórnar Elia Kazan, einn virtasti leikstjóri sem unnið hefur i Bandarikjun- um. Hann er þekktur fyrir sam- vinnu sina við stórstirnin James Dean og Marlon Brando. Árið 1955 gerði hann sina frægustu mynd: „East of Eden” eftir sögu John Steinbeck og þar lék einmitt James Dean aðalhlut- verkið. —GA Cr myndinni „Sekur eöa saklaus” (Boomerang). Sagan greinir frá þvi aö prestur er skotinn til bana. Moröinginn kemst undan og finnst ekki þrátt fyrir mikla leit. Kosningar eru á næsta leiti og þvi til mikils aö vinna fyrir lögreglu og saksóknara aö standa sig, ekki síst þar sem stjórnarandstæöingar hyggjast gera sér mat úr málinu og sina fram á getuleysi þeirra. Óskar Ingimarsson þýddi myndina, sem er byggö á sannsögulegum heimildum. Útvarp klukkqn 22.40: ÁFANGAR Guðni Rúnar og Asmundur viö upptöku. „Við verðum með tónlist úr öllum áttum i þættinum i kvöld, þó mest beri reyndar á jass eða jasskenndri tónlist”, sögðu þeir Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson i samtali við Visi, en þeir sjá um þáttinn Afangar i kvöld. Þáttur þessi hefur nú gengið i nokkur ár og fara vinsældir hans sist dvin- andi, enda geta menn kveikt á útvarpinu fullvissir um að heyra vandaða tónlist og nokkuð ýtarlegar kynningar á þeim sem hana flytja. ,,Við kynnum m .a. i kvöld nýtt verk eftir Neil Ardley, sem heit- ir Kaleidoscope of Rainbows, en þessi plata hefur hvarvetna fengið frábæra dóma og verið skipað á bekk með meistara- verkum nútimans bæði i jass og rokktónlist. Auk þess að semja tónlist er Neil Ardley einnig virtur barna- bókahöfundur i Bretlandi, en segja má að hann hafi hafist til vegs og virðingar árið 1964, og þá allt i senn, sem tónskáld, pianóleikari og stjórnandi.” Margt annað verður í þættin- um, meðal annars heldur ný- stárleg túlkun hljómsveitar á helstu verkum gömlu meistar- anna. — GA 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Grænn varstu, dalur” eftir Richard Llewelyn Ólafur Jóh. Sigurðsson islenzkaöi. Óskar Halldórsson les (12). 15.00 Miðdegistónleikar 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.30 Feröaþættir eftir Bjarna Sæmundsson fiskifræðing Óskar Ingimarsson les úr bókinni „Um láð og lög” (7). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mól Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 Iþróttir Umsjón : Jón Asgeirsson. 20.00 Sinfóniskir tónieikar frá svissneska útvarpinu 20.40 Gamli hundurinn Ásgeir Guðmundsson iðnskóla- kennari flytur hugleiðingu. 20.55 Frá tónlistarhátið i Björgvin. 21.30 Ctvarpssagan: „öxin” eftir Mihail Sadoveanu. Dagur Þorleifsson les þýö- ingu sina (12). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir 1 deiglunni Baldur Guðlaugsson sér um viðræðuþátt. 22.40 Áfangar 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kirgisarnir i Afganistan Bresk heimildamynd um Kirgisa, 2000 manna þjóð- flokk, sem býr i tjöldum i nærri 5000 metra hæð á há- sléttu i Afganistan. 21.35 Sekur eða saklaus? (Boomerang) Bandarisk biómynd frá árinu 1947. Leikstjóri Elia Kazan. Aðal- hlutverk Dana Andrews, Jane Wyatt, Lee J. Cobb og Arthur Kennedy. Sagan, sem byggð er á sannsögu- legum atburðum, gerist i Fairport i Connecticut. Prestur er skotinn til bana. Mikil leit er hafin að morðingjanum, en hann finnst ekki 23.00 Dagski'áriok AFDREP ER ALIRA NAUÐSYN 28644 afdrep FASTEIGNASALAN Fasteignasalan er opin alla virka daga frá kl. 8 til 19. Laugardaga frá kl. 9 til 17. Finnur Karlsson, sölumaður, sími heima 25838. Garðastræti 42 Reykjavik Simi: 2 86 44 Valgarður Sigurðsson lögfræðingur. E SÉRTILBOÐ A 11 A G K V Æ M U M KJÓRUM : Skemmtileg risibúö i Skerja- firði. ibúöin er nýstandsett og skiptist í stofu, tvö stór svefnherbergi, eldhús og bað, samtals um 75 ferm. llúsið nýmálaö. Stendur á stórri eignarlóð. Viö Vesturberg eigum viö 3ja herbergja 85 ferm. ibúö I fjölbýlishúsi. ibúöin er nýstandsett. öll sameign fullfrágengin. Möguleiki á góöum greiðslu- kj örum. Einnig höfum viö aöra sér- lega fallega 4ra-5 herbergja Ibúö viö Vesturberg. Gott verö ef samiö er strax. i Kópavogi getum viö boöiö gott einbýlishús á einum besta stað i bænum. Fokhelt 240 ferm. endaraö- hús i Seljahverfi. Fæst á góð-. um greiösluskilmálum ef samiö er strax. Við viljum minna á að um næstu helgi kemur út ný og vönduð söluskrá. Næsta söluskrá kemur út bráðlega. Skráiðeign yðar sem fyrst. LEITIÐ AFDREPS HJA OKKUR 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.