Vísir - 24.09.1976, Síða 14

Vísir - 24.09.1976, Síða 14
14 c - Hn b- i r-4 tu1 iWV Föstudagur 24. september VISIR Umsjón Einar K. Guðfinnsson J „Verk gömlu meistaranna komu mér ó sporið," Vilhjálmur Bergsson viö nokkur verka sinna. sýninguna A þessari sýningu eru nú 46 málverk og er meginhluti þeirra frá siöustu þremur árum. Þetta er sölusýning og er verö mynd- ## Ljós og líf- anna frá 65 þús. til 450 þús. kr. Sýningin veröur opin daglega frá kl. 15.00-22.00 fram til 3. október. „Margir þykjast sjá i þessum myndum min- um áhrif frá geimferð- um, dulspeki, eitur- lyfjum og allri þeirri hugleiðslu sem fylgir þeim timum sem við nú lifum á”, sagði Vilhjálmur Bergsson listmálari, þegar Visir spurði hann hver hefði orðið kveikjan að þeirri tegund myndlistar sem hann hefur lagt stund á undanfarin ár og sýnir nú i Norræna húsinu. „Mér finnst þetta ekkert frá- leitt”,sagöi hann. „Ég hef mik- inn áhuga á því sem er aö gerast i kringum mig. Hins vegar hef ég talsvert kynnt mér verk gömlu meistaranna og tel aö meöferö þeirra á ljósi og skugga hafi m.a. komiö mér af staö með þetta. Ég byrjaöi aö fikra mig áfram meö þetta strax áriö 1964. 1 þeim myndum kemur fram nokkuö hik og þær voru ekki nægilega vel leystar tæknilega. En ég hef þær meö hérna til þess aösýna hvernig þetta hefur þró- ast.” Birta og blæbrigði Vilhjálmur nefnir sýninguna „Ljós og lffrænar viddir”. Þetta nafn sagðist hann jafnframt nota yfir list sína, en ekkert eitt fast heiti er enn á þessari tegund myndlistar, enda aöeins örfá ár siöan myndlistarmenn fóru að einhverju ráöi aö nota birtu og blæbrigði f myndum sinum. „Hér á landi er þessi list næsta fátiö, en þó hefur aöeins komið hreyfing á það á siðustu árum. Erlendis hef ég viöa rek- istá þetta, sérstaklega á siöustu tveim til þrem árum, og þá hjá óliklegustu þjóöum bæði vestan hafs og austan”. Vilhjálmur stundaði nám i Kaupmannahöfn á árunum 1958-60 og siðan i Paris til ársins 1962. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekiö þátt i samsýningum bæöi hérlendis og erlendis. Enn er ollt í blómq í Listasafni ASÍ :: Hjörleifur Sigurösson forstööumaöur Listasafns ASt skipulagöi sýninguna i samvinnu viö Hrafnhildi Schram listfræöing. Hér er hann viö nokkrar blómamyndanna. Ljósm.Jens. Vilhjálmur Bergsson opnaði í gœr rœnar víddir" í Norrœna húsinu TEIKNINGAR OG LJÓSMYNDIR Hestamyndir eru margar á sýningu Haildórs Péturssonar. Reykjavik, myndir af hálendi og jöklum Islands og myndir úr þremur eldgosum. „Krókusar I snjó”, ein Reykjavikurmynda Gunnars Hannessonar. „Litillæti Halldórs Pétursson- ar er aftur á móti of mikiö, aö hann nú á sextugsafmæli sinu skuli vera með sina aöra sýn- ingu er ekki nógu gott. Vegna hæfileika sinna hefur hann átt aö sýna mun oftar.” Þetta segir Einar Hákonarson m.a. I Visi I gær um yfirlitssýn- ingu Halldórs Péturssonar á teikningum sinum. Góð aösókn hefur veriö aö sýn- ingunum aö Kjarvalsstööum en auk teikninga Halldórs eru þar sýndar á annaö hundrað lit- myndir Gunnars Hannessonar. Myndir Gunnars eru stækkaö- ar allt aö 30 falt frá upphaflegri filmustærö og er þeim skipt i þrjá flokka, myndir frá Þeir sem ekki hafa enn lagt leiö sina I Listasafn ASl og skoðað sýninguna „Blómamyndir” hafa enn tækifæri til þess, þvi sýningin verður opin i rúma viku til viöbótar, eða til 3. október. A sýningunni eru myndir eftir 16 Islenska málara, þá Asgrim Jónsson, Barböru Arnason, Brynjólf Þórðarson, Guðlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Hörö Agústsson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson, Júliönu Sveinsdóttur, Kristinu Jóns- dóttur, Magnus Arnason, Ninu Tryggvadóttur, Valtý Pétursson, Vigdisi Kristjánsdóttur og Þorvald Skúlason. Nokkur verkanna eru I eigu Listasafns ASl, en flest eru þau fengin að láni hjá einstaklingum og öðrum söfnum. Sýningin er I röð tema- sýninga sem safniö hefur gengist fyrir, en hafa áður verið haldnar sýningar undir nöfnunum „Vinnan,” „Bláar myndir” og „Hestar I landslagi”. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14 til 18 I Alþýðu- bankahúsinu þriðju hæð. Grafíkmyndir til lóns Listlánadeildin viö bókasafn Norræna hússins getur nú lánaö út allar þær myndir sem safniö hefur yfir aö ráöa. Hingaö til hafa út- lánin takmarkast nokkuö af þvl aö rammaeign listlánadeildarinnar hefur veriö af mjög skornum skammti. Nú hefur verið bætt úr þvi og hafa verið settar upp til sýnis, bæöi I anddyri hússins og bókasafni, flestar þær myndir sem enn hafa ekki farið i umferö. Myndir safnsins eru um 180 norrænar grafikmyndir, sem Nor- ræna grafikbandalagiö gaf húsinu, en þessar myndir voru valdar á stórri norrænni yfirlitssýningu á grafik sem haldin var I Bergen voriö 1975. Myndir safnsins eru um 180 norrænar grafikmyndir, sem Norræna grafikbandalagiö gaf húsinu, en þessar myndir voru vald- ar á stórri norrænni yfirlitssýningu á grafik sem haldin var I Bergen vorið 1975. Myndirnar eru lánaöar út meö sömu kjörum og bækurnar i bóka- safni hússins og er öllum heimilt aö fá mynd til láns, eigi þeir út- lánskort. Lánstimi myndar er aö ööru jöfnu 30 dagar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.