Vísir - 01.10.1976, Side 1
VÍSSR
Siódegisblaö fyrir
fjföisHyiduna
aUa /jEUpÍkpi*
G«tum horft é b<|
i%'; l"»imjvi8buri
Föstudagur X. október 1976
235. tbl. 66. árg.
GÁMARNIR GETA TÝNST Á
LEIÐ í VÖRUGEYMSLUNA
„Okkar eftirlit fólgið í að taka stikkprufur", segir Kristinn Ólafsson, tollgœslustjóri
//Það hefur farið fram
rannsókn innan tollgæsl-
unnar á þessu litasjón-
varpsmáli/ en það hefur
ekkert f undist sem bendir
til þess að einhverjir
starfsmenn hennar séu
viðriðnir smyglið"/ sagði
Kristinn ólafsson, toll-
gæslustjóri í viðtali við
Visi í morgun.
Orðrómur þessa efnis hefur
verið á kreiki, liklega vegna
þess að talað er um að smyglað
hafi verið heilum gám, fullum
af sjónvarpstækjum.
„Það er erfitt að ráða við orð-
róm, en hlutur tollgæslunnar i
þessu máli mun að sjálfsögðu
liggja fyrir í Sakadómi, að
rannsókn lokinni”, sagði Krist-
inn.
,,Er hægt að smygla heilum
gámi af sjónvarpstækjum tu
landsins?”
„Ja, hvernig er hægt aö koma
öðrum smyglvarningi til lands-
ins? Með einhvers konar brögð-
um býst ég við. Ég get nú eigin-
lega ekki farið út i það. Þaö yrði
þá nánast kennsla i smygli.”
„Það er hins vegar ekkert
leyndarmál að okkar eftirlit er
fólgið I að taka stikkprufur. Við
höfum ekki mannafla til að
halda uppi stanslausu eftirliti.
GLATT Á HJALLA
Starfsmenn sjónvarpsins
minntust þess i gærkvöld, að þá
voru liðin nákvæmiega 10 ár frá
fyrstu útsendingu sjónvarpsins,
30. september 1966. Þar var
glatt á hjalla er núverandi og
fyrrverandi starfsmenn
stofnunarinnar rifjuöu upp
minningar frá fyrstu dögunum.
Þau þrjú, sem sjást hér á mynd-
inni, voru að rifja upp eitt
þessara skemmtilegu atvika er
Loftur Ásgeirsson, ljósmyndari
Visis, tók af þeim þessa hressi-
legu mynd. Það eru tveir af
fyrstu þulum sjónvarpsins, þær
Asa Finnsdóttir og Sigriöur
Ragna Siguröardóttir, sem eru
hér meö Sigurði Sigurðssyni,
fyrrum iþróttafréttamanni hjá
sjónvarpinu, og núverandi
varafréttastjóra útvarpsins.
Ég get hins vegar sagt þér að
tækin komu ekki til landsins i
þeirri ferð sem nefnd hefur
verið, þvi að þá vildi svo til aö
tollverðir tóku skipið rækilega i
gegn og skoöuðu i hvern einasta
gám. Þau geta hafa komið I
ferðinni á undan, eða eftir”.
Bílarnir „týnast"
„Ein aðferð sem nefnd hefur
verið er sú, aðaukagámum úr
farminum sé skipað upp á bila,
sem svo „týnist” og fari með
varninginn eitthvaö annaö en i
skemmuna, sem hann á að fara
i ”
„Jú, okkur er kunnugt um
þetta. En eins og ég sagði höfum
við ekki mannskap til að fylgj-
ast með hverjum einasta gámi
sem kemur til landsins og er
fluttur i vörugeymslur. Við
fylgjumst með eftir bestu getu.”
— ÓT
„Ekki óstœða til oð draga
úr varúðarróðstöfunum"
segir Póll Einarsson
„Það er alla vega ekki
ástæða til þess að draga úr
varúðarráðstöfunum",
sagði Páll Einarsson jarð-
eðlisfræðingur er Vísir
ræddi við hann í morgun
um ört minnkandi jarð-
skjálftatíðni á Kröflu-
svæðinu.
Jarðskjálftum hefur fækkað úr
jarðeðlisfrœðingur
130 á dag og niður i 16. Páll sagði
að mörg dæmi væru um það áður
en eldgos hæfist að jarðskjálftum
fækkaði. En hins vegar þyrfti
þessi fækkun ekki að þýða að eld-
gos væri að hefjast.
„Það veit enginn hvað þetta
þýðir, þaö er eiginlega ekki hægt
að segja annaö en þetta sé ein-
kennilegt”, sagöi Páll.
,—EKG
Fersksíldin hér á landi:
Verðhœkkun dlt
að 150 prósent
Lágmarksverð á síld til
söltunar, skiptaverð, hef-
ur hækkað gíf urlega mik-
ið frá því á vertíðinni F
fyrra. Með því að bera
saman verðflokka í fyrra
og núna kemur í Ijós að
hækkunin nemur á milli
90 og 150 prósentum.
Verð á fersksild er mjög gott
núna og þurfa bátarnir ekki að
veiða mikiö til þess að hlutur
skipverja og útgeröar verði góö-
ur.
Heimilt er að veiða 10.500 tonn i
herpinót og er það um þriöjungi
meira en leyft var i fyrra. Rek-
netaveiðar eru hins vegar leyfð-
ar án takmörkunar. Samkvæmt
þessu er ekki ótrúlegt aö afla-
verðmæti upp úr sjó geti orðið
um þúsund milljónir króna.
Sjá blaðsiöu 3.
— EKG
Ný þyrla í flugflotann
Ný þyrla af gerðinni Hughes
300C er komin til íandsins.
Eigandi hennar er Asgeir
Höskuldsson, sem sagði Visi að
fyrst í stað yrði hún notuð við
kennslu.
Sjá nánar á flugsíðu. bls. 13.
Þeir vinnsœlustu
í poppinu 76
Hvað viltu gera
unt
— Sjá bis. 16 og 17
— Sjá ,/Líf og list" bls. 18 og 19