Vísir - 01.10.1976, Page 11

Vísir - 01.10.1976, Page 11
11 visir Föstudagur 1. október 1976 1......... . -------- I Þótt furðulegt megi telja hagar ekki svo til i húsakynnum þing- manna, að þau auðveldi þeim samvinnuna um valdið við al- menning. Við þekkjum það úr ýmsum atvinnugreinum, að vinnuaðstaða er þar misjafnlega hættuleg. Ekki er hægt að segja að vinnuaðstaða þingmanna sé hættuleg i bókstaflegri merkingu. En ef við virðum fyrir okkur þinghús á Norðurlöndum bera þau oftar en hitt keim af þvi, að þar séu að starfi stofnanir sem hýsi fasta starfsmenn en ekki hetjur málsnilldar og framsýni, sem láta auðnu ráöa hvort staöiö er við lengur eða skemur. Stólarnir og borðin og gagna- staflarnir á borðunum benda eindregið til til þess, að menn hafi komið sér fyrir til langframa i þessum salarkynnum lýöræðis- ins. Kaffistofan á næsta leyti eyk- ur enn á það andrúm varanleik- ans, sem mætir auganu strax og litið er yfir þingsalinn. Sá þingsalur, sem kemst næst þvi að vera nógu óþægilegur, til að enginn verði grunaður um að vilja dvelja þar lengur en nauð- syn krefur, er málstofa brezka þingsins. Þar er setið á lang- bekkjum og aðbúnaðurinn viröist beinlinis koma i veg fyrir að menn séu grunaðir um að vilja sitja þar til langframa. Mjög hef- ur verið rætt að virðingu þinga hraki.Slikt á sinar uppsprettur i hugum almennra kjósenda að einhverju leyti, sem vilja ekki að þingmenn liti á sig sem embættis- menn eða skrifstofuþingmenn heldur kyndilbera framvindunn- ar og stjórnviskunnar. Einn hlut i þessu eiga svo hinar svonefndu flokksmaskinur, sem hafa tilheigingu til að ýta til þingsetu fremur hægu og viðráðanlegu liði og samstarfsþýðu innan þing- flokkanna. Skrifstofuhaldið getur þá gengið þeim mun snurðulaus- ara fyrir sig. En það er efamál að einmitt slikir þingmenn séu hin- um almenna borgara að skapi. Aukin samvinna um valdið mundi leiða það i ljós. Tilgáta min bygg- ist á þeirri vitun* að vagga lýö- ræðis er maðurinn sjálfur, hugsanirhans og orð, en ekki góð- ur stóll, borð með prentgögnum og kaffistofa i nágrenninu. Margt i lögum og reglugerðum vekur nokkra furðu leikmanna, vegna þess að sumt er þar óljóst orðað til að veita nokkurt svig- rúm 1 framkvæmdinni. Hiö sama er að segja um stjórnmálaálykt- anir. Þær verða að vera almennt orðaðar til aö sem fiestir geti sætt sig við þær. Þessar aðferöir hafa eflaust lætt inn grun im stjórn- leysi og vanmátt stjórnmála- manna, eða það sem verra er, hugmynda um skipulagða meðal- mennsku. Kannski er hér um að ræða einn þátt lýöræöis, en rými innan laga og ályktana og of laus tök yfirleitt leiða til hungurs eftir sterkum mönnum eöa öfgum. Og þá er að meta hvort betra sé óljóst orðalag, sem vekur grun- semdir þeirra, sem minna skilja i þessum efnum, eða það öfunds- vsrða hlutskipti stjórnmála- mannsins að standa með af- dráttarlausri og virðingarveröri skoðun sinni — eða falla. Hinir loðmæltu stjórnmálamenn sitja kannski alla ævi á þingi, trúir þingflokki sinum, en þeir heyrast illa meðal fólksins. Virðist hafa gleymst að breyta valdinu i almennara horf Embættismenn i ráðuneytum og stjórnarstofnunum leggja lika sitt af mörkum til að viðhalda þeim trúnaðarbresti, sem rikir milli almenns borgara annars vegar og stjórnmálamanna hins vegar. Meðan embættismenn sátu i skjóli einvalda voru þeir bæði að framfylgja guðs lögum og lögum manna. Þá skipti ekki ýkja miklu máli hvernig þeir höguðu sér,af þvi borgarinn leitsvo á, að allt vald væri óvinveitt og til bölv- unar. Skuggi þessara almennu viöhorfa til valdsins hvilir enn yf- ir stjórnmálunum. Þrátt fyrir miklar breytingar, einlægan framfaravilja og öfluga sam- hjálparstefnu siðustu áratuga virðist hafa gleymst að breyta valdinu i almennara horf. Það vekurenn tortryggni borgaranna, og þeim einum er um að kenna, sem dýrka valdið valdsins vegna. Það er nefnilega enn til mikið af stjórnmálamönnum, sem ekki þola völd og ganga með snert af gamla einvaldanum i brjóstinu. Pólitik þeirra hefur oft keim af sjónarspili, þótt þeir kyssi ekki börn i kosningaleiðöngrum hér á Norðurlöndum, og þeim hefur láðst að nálgast allan almenning i öðru en rikisforsjánni. Embættismenn koma yfirleitt úr skólum til starfa sinna, flestir með staðgóða þekkingu i húman- iskum fræöum. Sem forhlið að valdakerfinu kunna þeir sáralitið til verka, þótt þeir læri af reynsl- unni. Ráðuneyti og stjórnar- stofnanir geta að vfsu ekki haft á sér svip hjarðf jósa, þar sem allir ganga út og inn að vild. Hins veg- ar er borgarinn fljótur að tengja allan seinagang og tregðu við vélabrögð andsnúins valds. Stjórnarstofnanir ýmiskonar eru þvi viðkvæmir staöir, sem geta eftir atvikum ráðið miklu um við- horf til stjórnmála. Það riður þvi á miklu að embættismennirnir geri sér grein fyrir þvi, að þeir eru þjónar þjóöfélagsins en ekki herrar þess. Rikisforsjáin getur gengið út i öfgar t ýtrustu myndum sinum eru vald og frelsi andstæður. Það er starfi stjórnmálamannsins að rækja það jafnvægi, sem rikja verður á milli þessara höfuðatr- iöa stjórnarfarsins. Rlkisforsjá og fyrirgreiðsla ýmis konar er hluti valdsins. Þetta tvennt getur verið jákvætt eftir atvikum, en það leiðir hvorki til meira frjáls- ræðis né eflir úrræði einstaklings- ins. Að lokum getur farið svo, aö hann hreyfi sig litið án forsjárinn- ar að ofan. Þá minnir hann meira á ákveönar tegundir búskapar en frjálsborinn mann. Borgarinn óttast þessa þróun, þótt hann i sjálfu sér sé samþykkur ýmsum greinum rikisforsjár I mynd vax- andisamhjálpar. En rikisforsjáin getur gengið út i öfgar. Viö höfum raunar fyrir augunum heil þjóð- riki, sem byggja ekki lengur á frumkvæði einstaklingsins um- fram það sem rikisforsjáin heimilar. Það mætti spyrja Alexander Solsjenitsyn hvernig væri að búa viö slikt vald. Þótt margt hafi verið gott gert á Vesturlöndum stjórnarfarslega séð, og lýöfrelsi sé viðast virt til rlndriði G. Þorsteinsl son rithöfundur skrifan hins ýtrasta, hefur það ekki kom- ið I veg fyrir, að andstaðan viö valdið hefur sjaldan birst I harð- vitugri myndum en einmitt nú. Ofgahópar, sem starfa utan laga og réttar telja athæfi sitt til stjórnmálastarfsemi. Þeir lita jafnvel á sig sem frelsishetjur. Við teljum að þá skorti allar for- sendurfyrir slikum yfirlýsingum. Það þýöir þó ekki að valdbeiting- in innan Iýðræðisins þurfi ekki stöðugrar endurskoðunar viö. Að læðast bakdyramegin að lýðræðinu Mikið af tima stjórnmála- manna fer til að sinna áætlunar- gerð um efnahagslega forsjá. Þeir eru flestir til með að ræða efnahagsmál. Minna fer fyrir umræöu þeirra um menningar- lega forsjá. Oftar en hitt beinist sú umræða einkum að kennslu- málum, hafiþau ekki verið fengin embættismannavaldinu I hendur umræðulitið. Að öðru leyti heyra menningarmálin mest undir al- menning af öllum þeim atriðum, sem flokkast til stjórnmála. Þau eru sá ventill, sem ætlaður er til að halda jöfnum þrýstingi. Stjórnmálamenn gæta þess yfir- leitt ekki sem skyldi, að menningarstefnur eru samtvinn- aöar stjórnmálastefnum, og næstum sá eini vettvangur, þar sem hægt er að læðast bakdyra- megin að lýðræðinu og kveikja I húsinu. Þetta er þegar vitaö af þeim.sem hafahug á ikveikjunni. Þótt fjárlög séu nú aö stórum hluta bundin af föstum útgjöldum virðist jafn mikill timi og áður fara I skiptingu hins óbundna hluta fjárlaga. Dæmi eru til þess að rúmlega tuttugu prósentum fjárlaga sé óráðstafaö frá ári til árs. Gróft sagt gæti þetta þýtt að stjórnmálamenn heföu aðeins rúmlega tuttugu prósent vald á rikinu. Þeir hljóta sjálfir að finna mjög fyrir þeirri spennitreyju. Þeir hafa að vissu leyti afhent völdin út fyrir mannlegt svið og gert þau að einskonar náttúrulög- máli eða sjálfhreyfiafli innan stjórnkerfisins. Ekki eykur það á virðingu almennings fyrir vald- inu, að vita það sitja bóndafagnaö i sambýlisþrengslum við slikt náttúrulögmál. A verðbólgutimum og timum oliukreppu er auðvitað mjög bagalegt aö geta aöeins fjallað um litinn hluta fjárlaga. Þegar svo er komið hefst dansinn við tölfræðingana. Þeir reikna hvaö sem vera vill, en almenningi finnst að meö slikum útreikning- um sé stjórnmálamaöurinn að firra sig ábyrgð. Efnahagsstjórn- in hefur verið afhent sérfræðing- um. Askilinn réttur þrýstihópa um fastar sneiðar af kökunni er kominn i staðinn fyrir samvinnu um völd og skilning á þvi, að hinn áskildi réttur kemur ekki lengur úr hendi einvalda nitjándu aldar heldur úr sameiginlegum sjóði okkar sjálfra.Konungsfjárhirslan er orðin almannasjóður án þess að almennt viðhorf til opinberra fjármuna hafi breyst að mun i meira en öld. Þótt aukin samvinna um valdið sé nauðsynleg bæði fyrir almenn- ingiog stjórnmálamenn, og þeirri samvinnu sé hvergi nærri full- nægt i kjörklefanum einum, er leið stjórnmálamannsins út úr lokuðu umhverfi sinu oftar en i kosningum næsta torgeng. Þó er ekki útilokað að hann geti haldið uppi einskonar beinu stjórnmála- sambandi við borgarann með þvi aö hlusta meir eftir sjónarmiðum og skoðunum i einstöku tilfellum en gert hefur veriö. Þetta er hægt með fundahöldum, skoöanakönn- unum og upplýsingamiðlun. Eins og nú háttar einkennist samband- iö við almenning um of af svo- nefndu yfirliti um stjórnmál, þeg- ar framtiðin skiptir mestu máli. Sé hægt að tala um arkitektur i stjórnmálum, þá eiga stjórn- málamenn fyrst og fremst að vera arkitektar framtiðarinnar. Og þaö þurfa sem flestir að sam- þykkja teikningarnar. Borgarinn var ekki spurður hvort ætti að hefja heimsstyrjöldina síðari Við höfum séð þess nokkur dæmi, að almenningur hefur ver- ið vélaður til að fylgja stefnumið- um, sem hafa reynstbeintofstæki i framkvæmd. Sumpart hefur þetta stafað af veikleika, uns svo seinni hluti hefur farið að öll samvinna um völd hefur verið lögð niður, jafn- vel i kjörklefanum. Or þvi varð ekki snúið við. Enginn maöur er fulikominn og ekki stjórnmála- maðurinn heldur. En vegna stööu sinnar og þeirrar tiltrúar sem hann nýtur, veröur það þyngra á metunum láti hann blindar hvatir ráða geröum sinum, en þótt almennur borgari misstigi sig i daglegu lifi. Við skulum ekki gleyma þvi, aö ýmislegt af þvi versta, sem yfir okkur hefur dun- ið á þessari öld átti sitt stjórn- málalega upphaf. Borgarinn var ekkí spurður hvort hefja ætti heimsstyrjöldina siðari. Sam- vinnan um valdiö var i lágmarki, enda hófst hún fyrir tilverknaö einræöis. Vinnuplan lýðræöisins hafði enn einu sinni fariö úr skorðum. Notkun atómvopna i hernaði var einnig stjórnmálaleg ákvörðun þótt nú sé talið að i þremur tilfellum af milljón geti slik sprenging breytt andrúms- loftinu i sand. Ég býst ekki við að almennir borgarar hefðu viljaö samþykkja neitt af þessu, ef þeir hefðu verið spuröir. Og stjórn- málaástandið i Evrópu bendir jafnvel til þess aö lýðræðiö i nú- verandi mynd ætli varla að veröa annað og meira en leiftur um nótt, sögulega séð. Bændur, iðnaðarmenn og sjómenn verða ekki spuröir hvenær því lýkur. Þurfum að undir- búa næstu sigra betur Ýmsar ástæður liggja til þeirr- ar þreytu almennings á stjórn- málum, sem lengi hefur veriö töluvert áberandi og viröist fær- ast i vöxt með hverjum áratugn- um sem liöur. Þetta kann öðrum þræði að stafa af þvi, að almenn- ingur er ekki boöinn nógu skarpt til leiksins. Stjórnmálamenn þreytast lika, sem er ekki nema mannlegt. Þeim er það manna ljósast aö ekkert stendur I staö, hvorki vinsældir eða fylgi og ekki andúðin heldur. Oryggi þaö, sem þeir eru að reyna að tryggja, fyrirgreiöslan, sem þeir veita og rikisforsjáin, er kannski ekki það sem áhugaveröast þykir þrátt fyrir allt. Það þykir ekki lengur stjórnviska aö viðhalda nægri at- vinnu. Nú heyrir atvinna til almennum og sjálfsögðum mann- réttindum, eins og góð húsakynni, heilsusamlegt fæði, nýtisku heimilistæki I litum og bill. Hinir stóru sigrar dagsins hafa veriö unnir. Viö þurfum að undirbúa næstu sigra betur. Þess vegna verða stjórnmálamennimir að stiga út úr þingsalnum oftar en i kosningum. Þeir þurfa aö hlusta á fólkið og kenna þvi um leið, aö valdið er hvergi á einum staö heldur meöal þess sjálfs.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.