Vísir - 01.10.1976, Blaðsíða 18
18
C
W1 wVf wH
Föstudagur 1. október 1976 vísm
Umsjón: Sigurveig Jónsdóttir
D
Fyrsta barnaleikritiö sem
tekiö er til sýninga á þessu
hausti er „Litli prinsinn”, en
sýningar á þvi hefjast i Þjóö-
leikhúsinu n.k. sunnudag.
Leikritiö var sýnt tvisvar
sinnum á Listahátið i vor. 1 þvi
koma fram bæöi leikarar og
leikbrúöur. A Listahátlöar-
sýningum voru brúðustjórnend-
urnir sænskir, frá Marionett-
leikhúsinu í Stokkhólmi, en is-
lenskir leikarar fluttu textann.
Brúöur og sviösbúnaö hefur
Mariónettleikhúsiö lánaö til
sýninganna.
Nú hefur Þjóöleikhúsiö fengiö
islenska brúöustjórnendur til
liös við sig. Eru þaö fjórir félag-
ar úr Leikbrúöulandi, þær
Bryndís Gunnarsdóttir, Erna
Guömarsdóttir, Hallveig Thor-
lacius og Helga Steffensen.
ÞórunnMagnea Magnúsdóttir
fer með hlutverk litla prinsins
og stjórnar þeirri brúöu aö
nokkru. Aörir leikarar eru Briet
Héðinsdóttir, Flosi ólafsson,
Hákon Waage, Erlingur Gisla-
son, Sigmundur Orn Arngrims-
son og Steinunn Jóhannesdóttir
sem jafnframt er aðstoöarleik-
stjóri. Leikstjórinn Michael
Meschke er nú staddur hérlend-
is og leggur hann siöustu hönd á
verkiö.
Leikritiö byggir á frægri sögu
frakkans Antione de
Saint-Exupéry, en þar segir frá
flugmanni sem nauölendir i
eyöimörk og rekst þar á ungan
dreng, litla prinsinn, sem skýrir
honum frá ævintýrum sinum og
feröalögum um himingeiminn.
Hluti leiksins gerist úti i himin-
geimnum og er þá leikiö viö
últra-fjólublátt ljós, þannig að
brúöustjórnendur eru ósýnilegir
en brúöur og aörir leikmunir
þeim mun skýrari I fjölbreytt-
um litum.
LITIR OG FORM AÐ
KJARVALSSTÖÐUM
„Þau verk sem ég sýni hér
eru mörg hver unnin I tengslum
viö kennslu mina I lit- og form-
fræöi viö Myndlista- og handiöa-
skólann. i þeirri grein er reynt á
vísindalegan hátt aö komast til
botns I grundvallarlögmálum
lita og forma. Þó er hér ekki um
visindalega skýrslu aö ræöa,
heldur myndlist,” sagöi Höröur
Agústsson listmáiari I samtali
viö VIsi.
Höröur opnar I dag sýninguna
„tlr lit- og formsmiöju 1953-76”
aö Kjarvalsstööum. A sýning-
unni eru 96 myndir, þar af 56 lit-
bandamyndir sem flestar eru
geröar á siöustu þremur árum.
Eldri myndirnar eru flestar
ljósmyndaöar teikningar og
samklippur.
Höröur sagði aö þetta væri
fyrsta sýning sin á þessu efni og
þessari afstöðu. Myndirnar
teldust til afstrakt listar, en
markmiö þeirrar tegundar list-
ar heföi verið aö leita inn á viö
og reyna aö finna gildi og
áhrifamátt lita og forma til til-
finningalegra tjáninga.
Höröur Agústsson sýndi fyrst
opinberlega i Paris áriö 1949, en
siöast sýndi hann I Norræna
húsinu voriö 1975. Sýningin „Úr
lit- og formsmiöju” veröur opin
daglega kl. 16-22.
Hörður Agústsson viö eina mynda sinna. Ljósm Loftur.
„Á YIÐ EINS ÁRS
SETU í LISTASKÓLA"
Bandarísk nútímaverk sýnd í
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
„Sýningin „American printmakers” er ein af allra bestu grafik-
sýningum sem hingaö hafa komiö.. Aö skoöa slika sýningu er vel á
viö eins árs setu i listaskóla. Hún sýnir ótvirætt aö bandariskir lista-
menn eru meö þeim fremstu á myndlistarsviöinu iheiminum.”
Þetta er umsögn Einars Hákonarsonar listmálara um sýningu 48
listaverka eftir 36 bandariska nútimalistamenn sem nú stendur yfir
I Menningarstofnun Bandarikjanna aö Neshaga 16.
Sýning þessi er mjög fjölbreytt. Þar er aö finna grafikmyndir,
silkiprent, tréskurö , steinprent, upplyftimyndir o.fl. Verkin eru
frá Jane Haslem Gallery I Washington og munu þau fara héöan til
sýninga á hinum norðurlöndunum.
Meöal þeirra sem eiga verk á sýningunni eru nokkrir frægir lista-
menn, s.s. Josef Alberts, Mark Tobey, Clais Oldenburg, Antonio
Frasconi og Gabor Peterdi svo nokkrir séu nefndir.
Sýningin veröur opin daglega kl. 9-6 til mánudagskvölds.