Vísir


Vísir - 16.10.1976, Qupperneq 1

Vísir - 16.10.1976, Qupperneq 1
Siddegisblað fyrir fjfóisHyiduna alla #!k flfcWftifciBM Börn á forskólaaldri í Reykjavík: Þriðjungur á dagvist- unarstofnunum Rúmlega 35% allra barna i Reykjavik á for- skólaaldri þ.e. fimm ára og yngri njóta dag- vistunar, annað hvort allan daginn eða hluta úr degi. Þetta kemur fram i skýrslu, sem Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar hef- ur gert og eru tölur úr henni frá 1. október. í viðtali Visis við Svein H. Ragnarsson, forstöðumann Félagsmálastofnunarinnar, kom fram að 2.213 börn njóta dagvist- unar hjá Sumargjöf, en 486 börn eru á stofnunum sem reknar eru af foreldrum, fyrirtækjum eða húsfélögum. Börnin eru ýmist allan daginn á dagheimilum eða hálfan daginn i leikskólum. Auk þess eru 127 börn á skóladag- heimilum, þar af 92 á skóladag- heimilum á vegum Sumargjafar en 35 á skóladagheimilum fyrir sjúkrahús, en þau reka umfangs- mikla dagvistunarstofnanir. Að jafnaði eru 400-500 börn i dagvistun á einkaheimilum, sem leyfi hafa fengið hjá Félagsmála- stofnuninni til sliks rekstrar. Einkaheimilin hafa frá einu upp i fjögur börn hvert og eru þau heimilifrá 160 upp i 200, sem hafa leyfi stofnunarinnar til dagvist- unar og eru undir eftirliti hennar. Börn á forskólaaldri i Reykja- vik eru rúmlega 8.600 og sam- kvæmt skýrslunni njóta um 3.100 þeirra dagvistunar. Þá eru ekki talin með þau börn, sem kunna að vera i gæslu án vitundar Félagsmálastofnunar- innar. Þrátt fyrir þennan fjölda barna á dagvistunarstofnunum, er eftir- spurninni engan veginn fullnægt, þvi hjá Sumargjöf biða 407 börn jiess að fá pláss á dagheimilum, og 51 barn biður eftir vist á skóla- dagheimili og 989 börn biða þess að fá að komast i leikskóla. —RJ Þessa mynd tók Jens ljósmyndariaf henni Beggu heima hjá afa og ömmu hennar í gærkveldi, rétt áður en hún fór að hátta. Ég er bara kölluð Begga... Nýjar persónur munu koma við sögu i Stundinni okkar I sjónvarpinu á morgun, að þvi er segir i sjónvarpsdagskránni, þau Viddi og Begga, en þau munu kynna efni þáttarins hálfsmánaðarlega á móti Paila og Sirri. Að þvi er Visir kemst næst heitir Viddi fullu nafni Viðar Eggertsson, og er nýútskrifaður úr Leiklistarskóla rikisins. Aft- ur á móti gekk blaöinu erfiðleg- ar að fá upplýsingar um það, hver Begga væri. Þaö tókst þó i gærkveldi og kom Iljós, að þetta er ein af yngismeyjum höfuð- borgarinnar. Eftir að ljóst var orðið, hvar hún bjó, lögðu Vísis-menn þang- að leið sina og heilsuðu upp á dömuna. „Ég heiti Bergljót, en er bara kölluð Begga”, sagði hún er við spurðum nánar um nafn henn- ar. „Hvað ertu gömul?” ,,Ég er nú orðin dáiitið stór, þvi að ég er komin i sex ára bekkinn”. ,,Er mamma þin ekki heima? ” „Nei, hún er að læra úti i út- löndum, en ég á heima hérna hjá afa og ömmu. Þau eru svaka góð...” „Þekkirðu Palla?” ,,Já, auðvitaö, — heldurðu að það þekki ekki allir hann Palla. Hann er svo sniðugur i sjónvarpinu”. „Og nú ætlar þú lika að fara að tala við krakkana I sjónvarp- inu, er það ekki?” „Já ég fer i heimsókn i sjón- varpshúsið á sunnudaginn. Það var .einn maður búinn að bjóöa mér að koma þangað og ég er viss um að það verður svo gaman...” Og þegar hér var komið sögu kallaði amma hennar Beggu á hana, og sagði að hún yrði að fara að koma að hátta, þvi að klukkan væri orðin átta. Við þökkuðum fyrir okkur og ákváðum að biða rólegir þangað til á sunnudaginn og sjá, hvað gerðist i Stundinni okkar. Þrótt fyrir aukið útflutningsverðmœti: Engin efni til að slá upp veislu — segja fiskvinnslumenn Þær hækkanir sem hafa orðið á verði útfluttra sjávarafurða hafa engan veginn runnið sem óskiptur hagnaður i vasa fiskvinnslunnar. A móti þessum hækkunum hefur komið kostnaðursem gerirþað að verkum að bætt útflutningsverð- lag gerir varla betur en að halda I kostnaðarhækkanir hér á landi. Fiskvinnsluna skortir þvi öll efni til að slá upp veislu. Þetta er niðurstaðan af upplýsingum sem Visir hefur fengið hjá Sambandi fiskvinnslu- stöðva, vegna frétta um mikla hækkun á fiskafurðum á mörkuð- um erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi fiskvinnslustöðva stafa verðhækkanirnar að nokkru af gengissigi islensku krónunnar. 1 öðru lagi hafa kostnaðarliðir aukist svo hér á landi, að hækk- andi útflutningsverðlag hefur vart dugað til þess að brúa bilið. t þriðja lagi, benda fiskverkendur á, að magnaukning veldur nokkru. Aætlað er að útflutningsverðlag hertra, saltraðra og frystra sjávarafurða muni nema 11,2 milljörðum á þessu ári. Aukinn kostnaður mun hins vegar vega hátt á móti þessu bætta verðlagi. -EKG Batnandi efnahagur kemur fram í ferða- lögum og bílaeign Arið 1968 ferðuðust 110.217 manns innanlands með flugvél- um, þ.e. þeir sem leið áttu um ReykjavikurflugvöII. Árið 1975 hafði þessi f jöldi rúmlega tvöfald- ast, eða 240.455 manns fóru þá um Reykjavlkurflugvöll i innan- landsflugi. Það jafngildir þvi, að hver islendingur hafi flogið inn- anlands rúmlega einu sinni. Arið 1945 voru 27,8 reykviking- ar um hverja bifreið sem gerð var fyrir 7 farþega eða færri. Á sama tima voru 137,6 ibúar um hverja bifreið, ef litið er á landið i heild. Árið 1975 voru 3,3 ibúar I Reykjavik um hverja bifreið af framangreindum stærðum en 3,5 ibúar um hverja bifreiö, ef litið er á landið i heild. Arið 1945 voru 2,282 bifreiðar á öllu landinu, af stærðinm sjö far- þegar eða færri, en 1975 voru bif- reiðar orðnar 63.900. í dog fylgir Helgarblaðið með tveimur vönduðum viðtölum og morgskonar öðru lesefni fyrir alla

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.