Vísir - 16.10.1976, Page 24
VISIR
1. des. kosningarnar í Háskólanum:
Laugardagur 16. október 1976
Óvenjulegt
fyrirbœri
slátur-
VINSTRI MEIRIHLUTINN
GEKK AÐ KRÖFUM VÖKU
Vaka, félag lýðræðissinnaöra
stúdenta mun taka þátt i kosn-
ingum til 1. des nefndar i Há-
skólanum, sem sér um hátíða-
höld vegna fullveldisdagsins.
Stúdentaráð samþykkti á fundi
sinum i gær að skora á kjör-
stjórn aö breyta kosningafyrir-
komulaginu eins og Vaka hafði
krafist. Á þetta féllst kjörnefnd I
dag.
,,Við unnum bara tvo áfanga-
sigra,” sagði Þorvaldur Friö-
riksson formaður Vöku I sam-
tali við Visi i gær. „Vinstri
meirihlutinn i Stúdentaráði
klofnaði um afstööuna til tillögu
okkar, um lýðræðislegt kosn-
ingafyrirkomulag, þannig að
hún var samþykkt með 17 at-
kvæðum gegn 9.
Formaður kjörstjórnar sagði
af sér og gengið var að kröfum
okkar.
Kosningar til 1. des. nefndar
fara fram á miðvikudaginn.
Verður kosið þá um kvöldiö I
Sigtúni. —EKG
Nýrað var eins
og meðallamb
að þyngd
Þeir urðu hissa i sláturhúsinu i
Þykkvabæ I gær eftir að þeir
höfðu slátraö lambhrút I eigu
Magnúsar Kjartanssonar I
Hjallanesi. t ljós kom nefnilega
að annað nýrað I hrútnum vóg
hvorki meira né minna en 13,7
kiló. Þess skal getið til skýringar
að lamb vegur um 14 til 15 kiló.
Menn þarna höfðu séð lambs-
nýru á stærð við barnshöfuö, en
sllkt furðuverk höfðu þeir aldrei
áður augum litið. Þetta stóra
nýra mun veröa sent til rann-
sóknar að rannsóknarstöðinni á
Keldum.
„Það eru alltaf nokkur tilfelli
um svona stór nýru,” sagöi Páll
A. Pálsson yfirdýralæknir i sam-
tali við Visi i gærkvöld.
Páll sagði, aö það sem gerst
hefði væri það að frárennsli frá
nýranu hefði stiflast og þvi stækk-
að svo. Hitt nýrað hefði hins veg-
ar verið starfshæft.
—EKG
Þessi mynd var tekin, þegar skólaslit Sjúkraliðaskóla tslands fóru fram f fyrsta skiptiigær. Visismynd
Jens.
Eins og sjá má, er úrval hjálpatækja mikið i bankanum, þótt hann
sé ekki stór. Vlsismyndir: Jens.
Banki sem
ekki lánar
peninga
í stuttu ávarpi, sem Theódór
A. Jónsson forstöðumaður frá
Sjálfsbjörgu, flutti við opnun
bankans, kom fram að áður fyrr
hefði það tekið marga mánuði
að verða sér úti um hjólastól og
hafi menn að þeim sökum oft
legiö langdvölum i rúmi, þó án
þessaðþurfa það raunverulega.
Hann sagði að með árunum
hefði þetta þó lagast, en það
væri ekki fyrr en i dag, sem
hjálpartækjaþjónusta fyrir fatl-
aða væri nú fullkomlega viðun-
andi.
Viö opnun bankans var fjöl-
menni, þeir sem staðið hafa i
ströngu við að koma bankanum
á fót, sjúkraliðar og hjúkrunar-
fólk ásamt heilbrigðis- og trygg-
ingarráðherra, Matthfasi
Bjarnasyni, sem flutti ávarp og
árnaði stofnuninni allra heilla.
Hann sagði, aö þótt það væri
stefnan að fækka bönkum, væru
bankar i heilbrigðismálum allt-
af kærkomnir og gat þess að
Hjálpartækjabankinn væri ekki
siður þörf stofnun en Blóðbank-
inn.
Forstöðumaöur Hjálpar-
tækjabankans, sem er að Nóa-
túni 21, er Björgúlfur Andrés-
son.
Hjálpartækjabankinn tók
formlega til starfa i gær. Hug-
myndin að þessum banka kom
fyrst fram hjá Reykjavikur-
deild Rauöa kross tslands, en
eiginlegur undirbúningur hófst
þó ekki fyrr en slöla árs 1973.
Þá var boöaö til fundar með
þeim aöilum, sem á einn eða
annan hátt eru tengdir málefn-
um fatlaðra á sviöi hjálpar-
tækja.
Arangurinn varð sá, að Rauöi
krossinn og Sjálfsbjörg, lands-
samband fatlaðra, tóku saman
höndum um að koma á fót
Hjálpartækjabanka.
Hjálpartækjabankinn tók til
starfa I júli s.l. en hefur nú veriö
opnaður formlega eins og áður
greinir. Markmið hans er að
lána út, leigja eða selja hjálpar-
tæki af ýmsum gerðum henda
fötluðum.
Fjölmenni var statt við opnun bankans
Sjúkraliða-
skólinn
útskrifar
nemendur
í fyrsta sinn
Sjúkraliðaskóli islands útskrif-
aði I fyrsta sinn nemendur I gær.
Brautskráöir nemendur voru 52
og hlutu tveir þeirra, Kolbrún
Guðný Gunnarsdóttir og Hulda
Sigríður ólafsdóttir, ágætis-
einkunnir Ibóklegum greinum, en
18 nemendur hlutu slika einkunn I
verklegum greinum.
Námstimi í Sjúkraliðaskólan-
um er eitt ár, þar af fara 10 vikur
til náms I bóklegum greinum en
38 vikur I verklegar greinar, sem
stundaðar eru á ýmsum sjúkra-
húsum í Reykjavik og nágrenni.
—RJ
Framkvœmda-
stjóraskipti
í Kísiliðju
Á næstunni verða fram-
kvæmdastjóraskipti hjá Kisiliðj-
unni hf. við Mývatn. Björn Frið-
finnsson lögfr., sem verið hefur
framkvæmdastjóri viðskipta- og
fjármála hjá kisilgúrverksmiðj-
unni i tæp 5 ár lætur af þvi starfi
og flyst til Reykjavikur. Við starfi
hans tekur Þorsteinn ólafsson
viðskiptafræðingur, sem að
undanförnu hefur verið deildar-
stjóri tollamála i fjármálaráðu-
neytinu.
Framkvæmdastjóri tæknilegra
málefna kisilgúrverksmiðjunnar
er Vésteinn Guðmundsson efna-
verkfræöingur. Formaður stjórn-
arverksmiðjunnar er Magnús
Jónsson bankastjóri.