Vísir - 21.11.1976, Side 10
Sunnudagur 21. nóvember 1976
[
I
Þessi hljómsveit var atkvæöamikil á samkomunni.
Allt starf hersins byggist á frjálsum samskotum.
Þetta er paliurinn. Þar eru hermenn og foringjar hersins, sam-
komugestir sitja á móti þeim i salnum.
„Við berjumst gegn
hinu illa í heiminum"
dæmis fólk sem vill fara út i
starfið algjörlega. Einnig eigum
við i fjárhagserfiðleilcum. Það
er oft of litið til af peningum til
starfsins hér á landi: 1
í öllum nágrannalöndum okk-
ar, þar sem ég þekki til, fær
Hjálpræðisherinn vissa styrki
frá riki og bæ, fyrir allar barna-
samkomur og fundi fyrir gam-
alt fólk, sem herinn stendur fyr-
ir. Þvi er ekki hér að fagna, en
það getur þó orðið.
Hjálpræðisherinn starfur nú i
um 83 löndum og er stærsta
bindindis hreyfing i heimi. Um
3 milljónir hermanna er i hern-
um. I trúboðslöndunum er mikið
af sjúkrahúsum og skólum, en i
London og öðrum stórborgum er
aftur mikið af drykkjumanna-
heimilum.
Hvort herinn fer fram á við,
eða aftur á bak, er erfitt að
segja. En margt gott er að
frétta utan úr heimi af starfinu.
Getur þú með nokkru móti
lýst þvi sem gerjst þegar maður
frelsast?
Já, það eru margir hissa á
þessu — hvað þetta þýði.
Þetta er dásamleg reynsla
sem maður verður fyrir og eng-
in getur útskýrt fullkomlega.
Það fyrsta sem gerist, er að
Hermenn og foringjar Hjálpræöishersins hafa ekki upp á vegg hjá
sér i svefnherberginu einhvern lista meö fyrirmælum — þetta
máttu gera, og þetta máttu ekki gera
Það kom greinilega fram á
þeirri samkomu sem visismenn
sóttu, og sagt er frá hér i blaö-
inu, aö driff jööurin i starfi hers-
in hcr i Rcykjavik er Daniel
óskarsson, foringi . Okkur þótti
þvi tilhlýðilegt að leggja fyrir
hann nokkrar spurningar.
Hvernig gengur starfsemin?
Að minu áliti gengur starf-
semin hér á landi vel. Hún
'mætti auðvitað ganga betur, en
hún fer batnandi. Það bætist þó
nokkuð við hjá okkur af ungu
fólki, en enn er þó mikill skortur
á starfsfólki. Okkur vantar til
Upphaf:
Hjálpræöisherinn var stofn-
aöur 1865, þegar William
Booth kom opinberiega fram i
East End i Lundúnum, likt og
spámaður frá liönum timum
og boöaði baráttu gegn fátækt,
löstum og synd. Félagsskapur
sá, er hann var upphafsmaöur
aö, varö brátt kunnur sem
„kristna trúboðiö”. Starfsem-
in varð smám saman skipu-
lögö þannig, aö hún fékk hern-
aðarlega stjórn, og siöan 1878
hefur hún boriö nafnið Hjálp-
ræöisherinn.
Siðan þetta gerðist hefur
starfsemin breiðst út um allan
heim, og hinir einkennis-
klæddu meðlimir hennar —
karlmenn og konur — eru
reiðubúnir að framkvæma
starf sitt meðal hinna bág-
stöddu og óhamingjusömu og
vera til vitnisburðar um mátt
Jesú Krists.
„Mottó"
Hljálpræðisherinn er grund-
vallaður á kenningu Jesú
Krists. Hann litur þannig á að
trúarlegar deilur séu til ills
eins. Og hvorki i ræðu né riti
heldur hann þvi fram sem
aðskilur, heldur þvi sem sam-
einar. Aðaláherslan er lögð á
að hver einstaklingur öðlist
frelsun frá syndinni fyrir
trúna á Jesú og á kraft heilags
anda til þess að helga menn og
konur og varöveita þau i þvi
ástandi.
Hjálpræðisherinn trúir að
sönn iðrun og trú á Guð og full-
komin uppgjöf alls ranglætis
sé nauösynleg til þess að
öðlast frelsun, og að maður
verði eftir afturhvarfið að lifa
með Guði nýju lifi.
A samkomum hersins eru
bornir fram vitnisburöir af
þeim, sem eru orðnir
gjörbreyttir, og það eru gerð-
ar rækiíegar tilraunir til þess
að fá hina ófrelsuöu til að
meðtaka Jesú sem frelsara
sinn.
Hjálpræðisherinn er félag
fólks, karla og kvenna, sem
eru endurleyst fyrir trúna á
Krist og flytja boðskap hans.
Herinn væntir af meðlimum
sinum kristilegs lifernis,
hreinleika i orði og verki, al-
gjörs bindindis með tilliti til
áfengis og annarra deyfandi
lyfja, og hermönnum ber ekki
að taka þátt i veraldlegum
skemmtunum og ósiðsamlegu
athæfi. Foringjar hersins og
undirforingjar mega heldur
ekki nota tóbak.
H jálpræðisherinn er
alþjóðastarfsemi og ku ekki
skipta sér af stjórnmálum.
Skipulag.
Þrátt fyrir það að aðal-
stöðvarnar eru i Lundúnum,
þar sem William Booth hóf
starf sitt, er ekki nauðsynlegt
að æðsti stjórnandi hersins,
hershöföinginn, sé Englend-
ingur. Kommandörar eða
umdæmisstjórar Hjálpræðis-
hersins um allan heim, sem
mynda æðsta ráð hersins og
velja hershöfðingja, eru af
ýmsum þjóðernum.
Hjálpræðisherinn hefur
mörg þúsund flokka og er með
starfsemi i rúmlega 80 lönd-
um.
Stjórnarlega er starfssvið-
um hersins um allan heim
skipt niður í 50 umdæmi.
Hverjum flokki er stjórnað
af einum foringja með einn
eða tvo aöstoðarforingja. Þeir
fara i heimsóknir á flokks-
svæðinu. Þeirreyna aðvera til
hjálpar og uppörvunar fyrir
þá sem eru hjálparþurfi og
sömuleiðis selja þeir „Heróp-
ið”, sem er opinbert málgagn
starfseminnar og inniheldur
skýrslur um hana og greinar
andlegs efnis.
Til þess að geta haft áhrif á
fjöldann og fá fólk til aö sjá
kröfur Guös, eru haldnar
samkomur, bæöi inni og úti
undir berum himni, á torgum
og gatnamótum.
Hjálpræðisherinn telur að
söngur og hljóðfæraleikur séu
gagnkvæm öfl, til að ná hjört-
um fólks með fagnaðarerindið
og fá það undir áhrif þess.
Æskufólki þarf að veita sér-
staka athygli. Er talið að það
sé oft, sérstaklega i stórborg-
um, látið sigla sinn eigin sjó og
mæti þá mörgum og stórum
freistingum.
Starfsemin
t öllum hlutum heimsins
hefur Hjálpræðisherinn marg-
þætt björgunar- og liknar-
starf, sem hefur hlotið
viðurkenningu margra
áhrifamikilla manna og
kvenna.
I fátækrahverfum
stórborganna hafa liknarsyst-
urnar vakið athygli fyrir bar-
áttu sina gegn fátækt og synd
meðal hinna óhamingjúsöm-
ustu. Hjálpræðisherinn hefur
mörg hundruð liknarstofnanir
svo sem heimili fyrir heimilis-
lausa, matargjafir fyrir
fátæka og ódýr matsölu- og
gistihús fyrir verkamenn og
verkakonur með rúm fyrix
þúsundir, mars konar iðnað-
arfyrirtæki, svo sem verk-
stæði ýmiss konar, viðarhögg,
pappírsaðgreiningu og vinnu-
miðlunarskrifstofur. Auk þess
eru heimili fyrir fanga sem
nýleystir eru úr haldi, til aö
hjálpa þeim i viðleitni þeirra i
að verða nýtir þjóðfélags-
þegnar.
í ýmsum löndum hefur Her-
inn búgarða, þar sem ungir
menn geta fengið atvinnu,
Fallnar stúlkur finna athvarf
og umönnun i björgunar-
heimilum hans. Hann hefur
einnig mörg sjúkrahús og slik-
ar stofnanir á sinum snærum.
Fyrir börn hefur hann dag-
heimili, iðnskóla heimavistar-
skóla og marga dagskóla. Viö
allar umdæmisaðalstöðvar
eru upplýsingaskrifstofur og i
nokkrum löndum hefur veriö
hafið sérstakt starf meðal
heyrnarlausra og blindra. 011-
um hjálparþurfandi er hjálpað
án tillits til þjóðernis eða
trúarbragða.
Fjármál
Starf Hjálpræðishersins
hvilir algerlega á frjálsum
HVAÐ ER HJÁLPRÆÐ