Vísir - 25.11.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 25.11.1976, Blaðsíða 24
Eimskip vill fá að kaupa bílferjuna — býður ryðvarnarstöð sína og aðstöðu í borgarskálanum í staðinn VISIR Fimmtudagur 25. nóvember 1976 Eru enn með- vitundarlaus Ung stúlka sem slasaðist I bflslysi á Austurstræti fyrir nær þrem vikum, og lá lengi meðvitundarlaus á gjörgæslu- deild Borgarsjúkrahússins, er nú aöeins á batavegi, og hefur veriö flutt af gjörgæslu- deildinni yfir á almenna deild. Aftur á móti er liðan stúlk- unnar, sem lenti i mótor- hjólaslysinu á Skúlagötu, og piltsins úr Vestmannaeyjum, sem hrapaði i Eyjafjallajökli, óbreytt. Pilturinn hefur legið meðvitundarlaus siðan 6. þessa mánaðar en stúlkan siðan um siðustu mánaðar- mót. — klp — Eimskipafélag fslands hefur mikinn áhuga á aö fá aö kaupa og annast rekstur bilferjunnar sem Bilgreinasambandiöhefur I hyggju aö festa kaup á. Jafn- framt hefur Hafnarfjaröarbær mikinn áhuga á aö skipið eigi þar heimahöfn og hefur boöist til að gera aöstööu fyrir þaö. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur aflað sér er Eimskip mjög umhugað um að ganga inn i þessi kaup. Það mun hafa boðið Bilgreinasambandinu ryðvarnarstöð sina og aðstöðu i Borgarskálanum, ef það fái að kaupa skipið. Ryðvarnarstöðin er áttatiu milljón króna fjárfesting sem Eimskip fór út i til að verja skemmdum þær bifreiðar sem stundum eru geymdar vikum saman útundir beru lofti. Ef Bil- greinasambandiö kaupir skipið og rekur verður þessi stöð ekki mikils virði. Eins og kom fram þegar Visir skýrði fyrst frá þessum skipa- kaupum er ætlun Bilgreinasam- bandsins að nota það til annars og meira en bara flytja inn nýj- ar bifreiðar. Það er einnig ætl- unin að flytja út ferskfisk i kæli-trailerum. Þá verður skipið i samkeppni við Smyril, með þvi að menn geta notað það til að flytja bifreiðar sinar fram og aftur milli Islands og megin- landsins, ef þá langar til að aka um Evrópu i sumarleyfi eöa viðskiptaerindum. Allir viðkomandi aðilar verj- art nú frétta um þetta mál, sem bendir til þess að samninga- viðræður milli Eimskips og Bilgreinasambandsins standi yfir þessa dagana. — ÓT Báöir umsækjendur tóku þátt I talningunni sem var mjög spennandi og úrslit tvfsýn fram á slöustu stundu. (Ljósm. Loftur) Varaforsetakjör á þingi ASÍ: FER AÐALHEIÐUR FRAM Á MÓTI SNORRA? „Skorast aldrei undan að vinna fyrir verkalýðs hreyfinguna", Jón Dalbú sigraði í Laugarnessókn Jón Dalbú Hróbjartsson sigraöi i prestskosningum i Laugarnes- sókn. Talningu atkvæöa lauk laust fyrir hádegi á skrifstofu biskups og hlaut Jón Dalbú 1.089 atkvæöi en Pétur Maack 1.037. Auöir seölar voru 24 og ógildir nfu. Kosningin var lögmæt. A kjörskrá voru 3.018, þar af kusu 2.159 og er þaö mikil þátt- taka þegar miðað er við prests- kosningar almennt. Visir fylgdist með upphafi taln- ingar, en hún hófst að loknum fundi yfirkjörstjórnar. Þar voru mættir báðir umsækjendur með fulltrúum slnum, Baldur Möller ráðuneytisstjóri og fleiri embætt- ismenn. Biskupinn stjórnaði taln- ingu atkvæða og munu um 74% þeirra er'voru á kjörskrá hafa neytt atkvæðisréttar og er þaö mikil þátttaka i prestskosning- um. Mikil spenna rikti á Biskups- stofu við talninguna og virtust umsækjendur vera nokkuð jafnir i upphafi. Fulltrúar beggja umsækjenda gerðu fyrirvara áöur en talningin hófst þar sem talsvert var um að fólk hafði verið kært inn á kjörskrá og áskildu báðir aðilar sér fullan rétt i því sambandi ef iitlu munaöi á fjölda atkvæða. Kirkjuþing hefur árum saman lagt til að prestkosningar yrðu felldar niður, en Alþingi hefur fram til þessa staðið i veginum fyrir slikri breytingu. Mikill hugur vari fylgismönnum beggja umsækjenda um Laugarnes- prestakall og báöir aöilar sigur- vissir. — SG Ólafsfjörður: Ármann Þóröarson, forseti bæjarstjórnar ólafsfjaröar og Pétur M. Jónsson, bæjarstjóri viröa fyrir sér framkvæmdir viö heilsugæslustööina á ólafsfiröi. — Vfsismynd: Anders Hansen. HEILSUGÆSLUSTOÐ OG ELLIHEIMILI reist fyrir 200 milljónir króno Byggingu heilsugæslu- stöövarinnar á Ólafsfiröi miöar vel, og er nú lokiö viö aö steypa fyrsta áfanga byggingarinnar, kjallara og gólfpiötu fyrstu hæö- ar. 1 byggingunni verða til húsa undir sama þaki elliheimili, heilsugæslustöð og sjúkrahús, auk þess sem likgeymsla verður i kjallara. Það eru Ólafsfjarðar- kaupstaður og rikissjóöur sem fjármagna þessar framkvæmd- ir, en ekki er þó enn ljóst hve mikill hlutur rikissjóðs verður i elliheimilinu. Stafar það af breytingu á lögum þar um, en væntanlega verða þau mál kom- in á hreint áður en langt um lið- ur. Aætlaður kostnaður við þess- ar framkvæmdir er eitthvað yf- ir 200 milljónir króna. Bygging heilsugæslustöðvar- innar og elliheimilisins á Ólafs- firði kemur til með að bæta úr brýnni þörf þar nyrðra, ekki sist vegna þess hve erfiðar sam- göngur eru við kaupstaðinn vetrarmánuðina. Þá er elli- heimilið einnig kærkomið mörg- um eldri ólafsfirðingum, þar sem þeim verður ekki lengur nauðsynlegt að yfirgefa átthag- ana kjósi þeir að dvelja á elli- heimili á ævikvöldinu. —AH segir hún „Það hefur engin talaö um þaö við mig og ég hef ekki boðið neitt upp á það sjálf. Þaö fer hins veg- ar allt eftir þvi hvernig málin ráöast á ASt-þinginu. En ég hef aldrei skorast undan þvi aö vinna fyrir verkalýöshreyfinguna.” Þetta sagði Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir, formaður Starfs- stúlknafélagsins Sóknar er Visir spurði hana i morgun hvort hún hygðist bjóða sig fram til sætis varaforseta ASl. Núverandi varaforseti er Snorri Jónsson, fráfarandi formaður Málm- og skipasmiðasambandsins. Aðalheiður sagði i morgun að sér þætti sem láglaunafólk ekki gæta nógu vel hagsmuna sinna. Nefndi hún sem dæmi að þrátt fyrir að Verkamannasamband Is- lands með 16.503 fulltrúa á bak við sig hefði það fengið 4 menn kosna i miðstjórn. Rafiðnaðar- sambandið verið með 589 at- kvæði, en tvo menn. „Ég tel að i þessu geti að nokkru leyti falist það hve hlutur láglaunafólks er alltaf fyrir borö borinn i samningum”, sagði Aðalheiður jafnframt. Ég tel að láglaunafólk eigi að gera sig meira gildandi i stjórn heildar- sambandsins. Með þessu á ég ekki við að sterkur meirihluti eigi öllu að ráða, en það verður að vera eitthvert jafnvægi i hlutun- um.” Aðalheiður kvaðst vera þess mjög fýsandi að láglaunasam- böndin tækju sig saman um að ná mönnum i miðstjórn. „Það fer eftir hve mjög menn eru bundir flokksvaldinu hvort það tekst”, sagði hún. ,,Ég tel að þetta sér orðið alltof mikið bundið i viðjar flokka, og þar er ég ekkert að deila á neinn sérstakan flokk. Ég geri mér vonir um að það fólk sem ekki er mjög reyrt i þessi bönd þjappi sér saman og hugsi stéttarlega. Ég geri mér nokkrar vonir um að þetta þing geti orðið nokkurt timamótaþing hvað þetta varð- ar”. — EKG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.