Vísir - 26.11.1976, Síða 1
Sjálfstætt randaó
og hresstfegti
blaö
farnir að
vinnu
Röntgentœknar
leita að annarri
Engir nýir röntgentœknar róðnir enn
„Um það þori ég engu
að spá, en ég tel eðlilegt
að ríkið hefði forystu um
það ef til þess kæmi",
sagði Haukur Benedikts-
son, framkvæmdastjóri
Borgarspita lans í
morgun, þegar hann var
spurður að því hvort til
viðræðna gæti komið við
röntgentækna. Þeir sögðu
upp vinnu frá 20. þessa
mánaðar.
Haukur sagði að frem-
ur erfiðlega gengi vegna
uppsagnanna, enda all
miklu að sinna. Varðandi
auglýsingar eftir
röntgentæknum, sagði
hann að ekkert hefði
komið út úr þeim ennþá.
Inga Valborg Einars-
dóttir, formaður Rönt-
gentæknafélagsins, sagði
i morgun að ekkert hefði
gerst i þessu máli. Hún
sagði að nokkrir af rönt-
gentæknunum sem sagt
hefðu upp, væru farnir að
leita sér að annarri vinnu
og einn eða tveir hefðu
þegar fengið hana.
— EA
Þessi mynd var tekin er Geir Hallgrimsson forsætisráöherra og Finn Loav Gundelach, sendimaöur
Efnahagsbandalags Evrópu, hittust i morgun. Ljósmynd Visis Loftur
Geir og Gundelach hittust í morgun:
„Fyrst og fremst
kurteisisheimsókn"
— segir forsœtisróðherra
..Þetta var fyrst og fremst Forsætisráðherra sagði að
kurtcisisheimsókn”, sagöi Geir viðræðurnar við Gundelach
Hallgrimsson forsætisráðherra hefðu verið i höndum þeirra
er Visir innti hann frétta af Matthiasar Bjarnasonar
fundi þeirra Gundelachs sendi- sjávarutvegsráðherra og Einar
manns Efnahagsbandalagsins i Ágústssonar útanrikisráðherra.
morgun. Vildi hann þvi ekki tjá sig neitt
„Gundelachs tjáði sin viðhorf Um horfur.
og ég sömuleiðis viðhorf
okkar.” Finn Olav Gundelach ræddi
við ráðherrana ásamt
embættismönnum i gær frá
klukkan 10.30 til 15. Þá munu
þeir Einar og Matthias hafa
rætt við hann án þess að
embættismenn væru viðstaddir.
Fundur Gundelachs og islend-
inga hófust að nýju klukkan 11 i
morgun. Er álitiö að i dag muni
verða skýrt frá gangi viðræðna.
En hingað til hafa menn varist
allra frétta.
—EKG.
Guðbjargarstrandið:
Sjópróf í dag
Ekki var búið að kanna
skemmdirnar á skuttogaranum
Guðbjörgu á ísafiröi er Visir
hafði samband þangað i
morgun. Guðbjörg strandaði I
gærkvöldi utanvert við Seljadal
á óshlið sem er á milli Bol-
ungarvikur og ísafjaröar.
Skipið náðist út með eigin vélar-
afli eftir um það bil klukku-
stund.
Það viöist þó Ijóst að gat hefur
komið á skrokkinn og rann olia
út. Unnið hefur verið aö þvi að
dæla oliu úr skipinu sem nú
liggur i isafjarðarhöfn.
Sjópróf hegast i málinu i dag.
—EKG.
Leit hafin að
sjötugum manni
„Við erum að kalla út
björgunarsveitirnar Albert og
Ingólf til að leita, og byrjum um
leið og birtir”, sagði Óskar Þór
Karlsson crindreki hjá Slysa-
varnarfélagi islands i morgun.
Þá var hann ásamt öðrum
slysavarnarmönnum að skipu-
leggja leit að sjötugum manni,
Gunnlaugi Guðmundssyni tií
heimilis að Barmahlið 50 i
Reykjavik.
Gunnlaugur hvarf aö heiman
frá sér i fyrrakvöld og hefur
ekki spurst til hans siðar. Þó er
talið að hann hafi komið á
Landspitalann i gærmorgun, en
það hefur ekki fengist staðfest,
og á eftir að kanna það nánar.
Gunnlaugur er. mörgum
kunnur. sérstaklega eftir
hressilegt viðtal var tekið við
hann i skemmtiþætti i sjónvarp-
inu fyrir nokkrum mánuðum, en
þá sýndi hnn meðal annars
gömlu dansana þótt kominn
væri fast að sjötugu.
-klp-
Álit kennimanna ó
satansdýrkuninni
— sjó bls. 11
Ein milljón
upp úr sjó
— tvœr í
gjaldeyri
— sjó bls.