Vísir - 14.02.1977, Blaðsíða 3
3
VTSIR
Mánudagur 14. febrúar 1977
um fimmtán sentimetrar i þver-
mál. Þetta þættu ekki glæsileg
húsakynni i dag. Innveggir
voru steinhlaðnir og svefnbálk-
arnir lika. Það var ekkert verið
að hafa fyrir að klæða innvegg-
ina.en hris var vist notaöur dá-
litið á fletin.
3000 „steinar” i vegg-
ina
„Þetta hefur þó verið mjög
vönduð verbúð, þvi að drengir
gengu upp af skammbitum, en
það var ekki nema i bestu búö-
um.” (Drengir voru kallaðir
burðarbitar sem stóðu upp úr
skammbitum, upp i mæni).
Verbúöir voru hlaðnar úr
steini og þessi búö sem Axel er
að smiöa virðist einnig vera
það. Ef bankað er i kemur þó i
ljós að þetta eru tréflögur sem
hann hefur skorið ójöfnur i til
þess að þær likist grjóti. Flög-
urnar eru um 16 x 20 millimetr-
ar og Axel þurfti að skera þrjú
þúsund þeirra til að þekja vegg-
ina að utan og innan.
1 „torfþakið” er svo notað
grænt teppi. Inni i verbúðinni,
vinstra megin við dyrnar verður
svo ljós, þannig að fólk getur
skoðað búðina að innan með þvi
að gægjast inn um dyr eöa
glugga.
Gunnar Markússon, skóla-
stjóri i Þorlákshöfn sagöi Visi
að þegar haldið var upp á 25 ára
afmæli byggðar i Þorlákshöfn i
sumar, hafi orðiö afgangur af
fé þvi sem átti að verja til hátið-
arinnar.
Tekin var ákvöröun um að
nota það til að fá smiðað likan af
verbúðinni. Gunnar sagði aö
reyndar væri mikill áhugi á að
endurreisa búðina sjálfa, en
þaö væri dýrt fyrirtæki sem yröi
að biða betri tima. En með lik-
aninu væri lika geymd vitneskja
um þessi hibýli sem ekki glat-
ast. —öT
m dyr búöarinnar. Svefnbálkarnir eru sitt hvorum megin gangsins. Eftir
fa” þakið. — Vfsismyndir — JA
Bera skertari hlut
frá borði en aðrir
Félag einstæðra foreldra segir
að einstæðir foreldrar muni skv.
nýja frumvarpinu um tekju- og
eignaskatt i nánast öllum tilvik-
um bera skaröari hlut frá borði en
aðrir þegnar. Hefur FEF sent til
Alþingis umsögn um frumvarpið
oe seeir bar m.a.:
„Félag einstæöra foreldra legg-
ur höfuðáherslu á aö fellt veröi
niöur þaö nýmæli i frumvarpinu
að meðlag og barnalifeyrir verði
talið til tekna hjá þvi foreldri sem
við greiðslu tekur. Með-
lag/barnalifeyrir er framlag þess
foreldris sem ekki hefur barnið
hjá sér til framfærslu þess.
A móti kemur siðan framlag
þess foreldris sem barnið hefur,
og hefur það að sjálfsögöu greitt
skatt af sinu framlagi. Eigi ein-
hver að greiða skatta af hinum
helmingnum, hlýtur að vera rök-
rétt að það geri sá, sem þess fjár
aflar. Ekkert réttlæti felst I , að
það foreldri sem hefur barnið hjá
sér greiöi einnig skatta af fram-
lagi hins, eins og gert er ráö fyrir
i frumvarpinu.”
Þá er bent á að það sé að flestra
dómi ósanngjarnt að skv. nýja
frumvarpinu hækki heimili
margfalt i sköttum þegar karl
veröur ekkill. I öðru lagi telur
FEF óeðlilegt aö auknar barna-
bætur skuli háðar þvi, að einstætt
foreldri hafiunnið i 12 vinnumán-
uði á ári, enda að stæöur tiltekju-
öflunar ákaflega misjafnar.
t þriðja lagi telur FEF ný á-
kvæöi um vexti og viðhaldskostn-
að óraunhæf og muni bitna ó-
þyrmilega á einstæðum foreldr-
um.
Borgarbúar kvefaðir
Kvef var með meira móti
seinni hluta siðasta mánaðar I
Reykjavik, samkvæmt skýrsl-
um lækna. Siðustu tvær vikur
mánaðarins voru t.d. um 130
manns með kvefsótt hvora vik-
una.
Siðustu viku mánaöarins voru
57 með hálsbólgu 24 með
lungnakvef og 23 með iðrakvef.
Allar þessar tölur eru hærri
en i byrjun mánaðarins en litið
var um aörar farsóttir.
ESJ
Vinnuveitendur viljo viðrœður sem fyrst við launþega:
„Sameiginlegur hagur
að afstýra nýrri
kollsteypu"
„Kjarasamningarnir i vor
verða að taka raunverulegt mið
af efnahagshorfum. spám um
þjóðarframleiðslu, þjóðartekjur
og verðlagsþróun. Ákvörðun
peningalauna sem ekki tæki mið
af þessu myndi kalla yfir þjóð-
ina i vaxandi mæli vixlhækk-
anir verðlags óg kaupgjalds,
aukinn viðskiptahalla og geng-
islækkanir, rekstrarörðugleika
atvinnufyrirtækja og óvissu i at-
vinnumálum”, segir I sam-
þykkt, sem framkvæmdastjórn
Vinnuveitendasambands Is-
lands gerði a fundi i gær.
1 samþykktinni er varaö við
þeirri skoðun „aö öll bata
merki i efnahagsmálum séu
jafnframt tilefni til meiriháttar
launahækkana” og þvi lýst að
þessu sé ekki svo farið.
Gerð er úttekt á stöðunni i
efnahagsmálum og segir þar
m.a. að enn sé um viöskipta-
halla að ræða. Enn sé halli
á fiskiflotanum og fisk-
vinnslan standi i járnum. Þrátt
fyrir hæsta afuröaverð hafi
verðhækkanirnar varla haft viö
þeim geysimiklu kostnaðar-
hækkunum, sem oröiö hafi hér á
landi. Veröbólgan hafi verið yíir
30% á siðastliönu ári. Löng er-
lend lán hafi veriö um 39% af
þjóðarframleiðslunni áriö 1976
um siðustu áramót og greiöslu-
byrðin þeirra vegna sé áætluö
rúmlega 18% á þessu ári. Við-
skiptakjörin séu enn 17% lakari
en þau voru á fyrsta ársfjórð-
ungi 1974.
„Af þessum staðreyndum
verður að taka mið á næstu
vikum og mánuöum þegar haf-
ist veröur handa um launa-
ákvarðanir” segir I ályktuninni
og halda launahækkunum innan
þeirra marka sem hækkun
þjóöartekna setur”.
Vinnuveitendasambandið
býður i ályktuninni launþegum
samstarf um viöræöur við rik-
isstjórnina um úrbætur á ýms-
um sviðum fyrir launþega og at-
vinnureksturinn og telur æski-
legt að viðræður aöila vinnu-
markaðarins hefjist sem fyrst,
m.a. um „ástand og horfur i
efnahagsmálum og þann
ramma, sem setja verður
launaákvörðunum I vor, eigi að
takast að varðveita og treysta
þann efnahagsbata, sem hafinn
er stuðla að frekara jafnvægi i
þjóðarbúskapnum og vinna að
raunverulegri kaupmáttar-
aukningu. I þessum efnum eiga
launþegar og vinnuveitendur
óskilið mál. Það er þeirra sam-
eiginlegir hagur og þjóöarinnar
allrar að afstýra megi nýrri
kollsteypu i efnahagsmálum”,
segir i ályktuninni.
— ESJ
Útibússtjórar
flytja um set
Starf útibússtjóra Landsbank-
ans á tsafirði hefur verið auglýst
laust til umsóknar.
Verulegar tilfærslur verða á
nætunni á útibússtjórum i Lands-
bankanum. Helgi Jónsson, sem
verið hefur útibússtjóri á Isafirði,
mun taka við stjóm útibúsins á
Akranesi 1. júni n.k., en Sveinn
Eliasson, sem verið hefur útibús-
stjóri þar, mun fara til Hvolsvall-
ar. Þar er Ari Jónsson útibús-
stjóri, en hann mun taka við
störfum i aöalbankanum i
Reykjavik.
Fleiri breytingar munu
væntanlegar en útibússtjórar
Landsbankans eru færöir til á
þennan hátt á nokkurra ára
fresti. — ESJ
Ný sending komin
í númerum 28-48
með loðfóðri
og ófóðraðir
Pantanir óskast
sóttar
sem fyrst
Verð frá
kr. 3.965.-
Millibrúnir. Mjúkt og sterkt anilin skinn
Með þykkum ekta hrágúmmisólum
Egllsgötu 3,
pósthóif 5050.
Sfmi 18519.