Vísir - 04.03.1977, Page 3
vism Föstudagur 4. mars 1977
3
Fagna //nýju" blaða-
mennskunni
Andlegt skran
Alfreð Þorsteinsson, forstjóri Sölu varnarliðseigna, og Sigfús Jónsson,
sölustjóri, skoða sig um i bilasölusalnum, þar sem mörg dollaragrinin
fara i gegn. Mynd Loftur.
upp við einstaka skot. Þaö þýðir
ekki að hafa veikar taugar i þessu
starfi.”
„En hvað með fjölskyldu
þina.. .eiginkonuna ? ’ ’
„Ég held að hún kippi sér ekki
upp við þetta. Ég er ekki einu-
sinni viss um hvort hún les það.
Allavega gerði hún sér grein fyrir
þvi i upphafi að þetta gæti orðið
stormasamt, og hefur aldrei
kvartað.”
„En hvað er mikil alvara á
bakvið pólitisk stóryrði og
rifrildi? Menn skammast þar
blóðugum skömmum, en eru hinir
kumpánlegustu þegar þeir hitt-
ast. Eru þetta allt látalæti?
Sjónarspil fyrir almenning?”
„Ég held nú að oftast nær sé
töluverð alvara á bakviö deilurn-
ar. En menn fá útrás i skrifum og
á öðrum vettvangi, svosem i
borgarstjórn og á Alþingi. Þess á
milli geta þeir hinsvegar verið
ágætir kunningjar.”
Illskeytt síðasta árið
„Mér finnst þetta eiginlega
mjög eðlilegt og vildi ekki hafa
það öðruvisi. Ég veit ekki um
neitt hatur af þessum sökum, sem
betur fer. Þótt menn séu ósam-
mála um eitthað og deili um það,
á það ekki að þurfa að koma i veg
fyrir eðlileg mannleg samskipti.”
„Ég verö þó að segja að mér
hefur fundist pólitikin sérstak-
lega illskeytt siðasta árið. Hún
hefur verið óvenju persónuleg.
Menn hafa hreinlega verið hund-
eltir og ofsóttir. Pólitisk blaða-
mennska hefur verið mun ill-
vigari en áður.”
„Ég hef lent i þvi að halda uppi
vörnum fyrir Framsóknarflokk-
inn, það hefur mætt töluvert á
mér sem öðrum. Og ég held að
þegar upp er staðið komi i ljós aö
árásir á Framsóknarflokkinn, til
dæmis i sambandi viö dómsmálin
voru ekki á rökum reistar.”
„Hvað finnst þér þá um það
sem sumir kalla nýja blaða-
mennsku?”
„Sem „gamall” blaðamaöur
fagna ég þessari breytingu að
■ mörguleyti. Það hlýtur aö vera
öllum blaðamönnum fagnaðar-
efni að losnar um pólitiskar viðj-
ar. En ég held að þetta hafi i viss-
um tilfellum gengið of hratt fyrir
sig. Það hefur ekki orðiö eðlileg
þróun.”
„Breytingin hefur eiginlega
komiö yfir sem bylting og sumir
hafa hreinlega misst fótanna. Þá
vilja menn ganga of langt og
stundum hafa verið settar fram
algerlega órökstuddar fullyröing-
ar, sem alls ekki er hægt að
flokka undir nýja og betri blaða-
mennsku. En ég fagna hlutlausri
og pólitiskt óháðri blaðamennsku.
Hún á fullkominn rétt á sér, svo
fremi sem menn hafa staðreyndir
og sannleika að leiðarljósi.”
Pólitískar hreinsanir?
„En hvaö verður nú um þinn
pólitiska feril?”
„Það er ákaflega erfitt aö meta
á þessu stigi, ég verð bara að sjá
hvernig þetta kemijr út. En i
borgarstjórn er nú um helmingur
fulltrúa opinberir starfsmenn,
þannig að það eitt að ég er nú
orðinn opinber starfsmaður,
hindrar ekki áframhald.”
„Hvað mina setu i borgarstjórn
snertir þá get ég aðeins sagt að
svo framarlega sem mfnir um-
bjóöendur treysta mér og aðrar
aðtæöur eru fyrir hendi, gef ég
kost á mér aftur.”
„Nú er sagt aö það standi yfir
miklar pólitiskar hreinsanir i
Framsóknarflokknum og að
brottför þin frá Tímanum sé einn
liður I þeirri hreinsun?”
,,Já, ég hef heyrt sögur um póli-
tiskar hreinsanir I flokknum i
Reykjavik. En þaö er regin mis-
skilningur. Hvaö mig snertir per-
sónulega þá var ég bara oröinn
þreyttur og vildi breyta til.”
„En hvað viltu segja um lætin
sem hafa orðið út af stöðuveiting-
unni?”
„Mér finnst þetta fjaðrafok hálf
spaugilegt, og það gætir mikils
ósamræmis I gagnrýninni.
Annarsvegar hefur mátt skilja að
þetta sé einhver allra eftir-
sóknarverðasta staða á landinu,
en hinsvegar er þetta kölluö auð-
virðileg skransala, eins og vinir
minir á Þjóðviljanum orða það og
Eiöur Guðnason ýjaði að i sjón-
varpinu.”
„Ég vil nú helst ekki móöga
nokkurn mann, en ég er nú þeirr-
ar skoðunar að ýmislegt sem er á
boðstólum hjá Sölu varnarliðs
eigna, sé mun nýtilegra en það
andlega skran sem fyrrnefndir
aðilar hafa upp á að bjóða i sinum
fjölmiðlum.”
Veitingin pólítísk
„En er þetta ekki pólitisk veit-
ing?”
„Jú, ég tel að svo sé. Allar
stöðuveitingar eru meira eða
minna pólitiskar. Ég vil minna á
að hjá Reykjavikurborg eru 37
eða 38 af æðstu embættismönnum
borgarinnar, flokksbundnir eða
yfirlýstir sjálfstæðismenn.”
„Þetta stafar auðvitaö af þvi að
borgarstjóri velur sér samstarfs-
menn sem hann treystir og þekkir
vel. Mér finnst þetta ósköp eðli-
legt. Og mér finnst einnig eölilegt
að ráðherrar noti sömu aðferö.”
„Slikar stööuveitingar mega þó
ekki fara útfyrir ákveðinn
ramma. Það má ekki augljóslega
ganga framhjá mönnum sem
hafa menntun, reynslu og hæfi-
leika. En það er eðlilegt að menn
velji sér til samstarfs þá sem þeir
þekkja vel.”
„Og hvernig leggst svo nýja
starfið i þig?”
„Mér list ágætlega á það. Allt
starfsfólkiö hefur tekiö mér mjög
vel og ég hugsa gott til samvinnu
við þaö. Ég fór lika framá við
Helga Eyjólfsson, fyrirrennara
minn, að hann yrði mér til ráðu-
neytis fyrst i stað, og hann féllst
góöfúslega á það.”
„Ég er honum mjög þakklátur
fyrir þaö. Ég veit aö hann var far-
sæll i þessu viðkvæma og vanda-
sama starfi og að ráð hans verða
heil.
—ÓT
Það er nú ekkibeinlinis hægt að kalla þetta skran.
Ný flugvél Arna á ísafirði:
„Vélin reynist
Ijómandi"
„Vélin hefur reynst ljóm-
andi”, sagði Hörður Guðmunds-
son fiugmaður, sem nú hefur
fengið nokkra reynslu af nýju
Islander flugvélinni sinni, sem
Vísir skýröi frá- að hefði veriö
keypt til tsafjarðar fyrir
skömmu.
Hörður kvað nóg hafa verið aö
gera og hann væri byrjaður að
fljúga af fullum krafti. A morg-
un fer hann til dæmis meö 40
skólabörn úr Reykjanesi í Isa-
fjarðardjúpi til tsafjaröar.
Þaðan taka þau farþegaflugvél
Flugfélagsins til Akureyrar i
skiðaferð.
Höröur vildi koma þeirri leið-
réttingu viö frétt blaösins fyrr I
vikunni, að hann heföi sjálfur
veriö flugstjóri á heimleiðinni,
en Helgi Jónsson flugmaður
með sér.
—EKG
Hörður Guðmundsson i hinni nýju flugvél Arna hf. Ljósmynd
VIsis Loftur.
„Verið að drepa
menn niður"
— Kaupmenn reiðir vegna lœkkandi álagningar
„Arib 1973 var áiagning á osti 23
prósent. Núna er hún 4 prósent.
Það er verib að drepa menn niður
með þessum aðgerðum”, sagði
Giumar Gunnarsson kaupmaður i
kjötversluninni Laugavegi 32 en
kaupmenn eru nú afar óánægðir
Sýning til
styrktar
soroptimistasjóði
Sýning á keramiki, postuiini
og glerskreytingum hefst i
versluninni Kirkjumunir i
Kirkjustræti I Reykjavik á
laugardag. A sýningunni eru
hlutir sem unnir voru á fimm
vikna námskeiði á vegum list-
og vcf naöarskóla Sigrúnar
Jónsdóttur.
Allur aðgangseyrir sem inn
kemur vegna sýningarinnar
rer.nur til styrktarsjóös
Soroptimista I Reykjavik. Sá
sjóður hefur það hlutverk að
veita námslán og námsstyrki
ungmennum sem farið hafa hal-
loka I lifinu.
—EKG
með þá lækkun sem orðib hefur á
álagningu mjólkur- og land-
búnaðarvara.
„Og I sambandi við lækkun
álagningarámjólk vil ég segja að
hún er beinlinis hlægileg,”
sagöi Gunnar ennfremur. „Sex-
mannanefndin beitir kröftum sin-
um til að lækka smásöluálagning-
una á mjólk á viökvæmum tim-
um. Það er á sama tlma og kaup-
menn eru að steypa sér I skuldir
til að geta fjárfest I þeim tækjum
Að sögn rlkissaksóknara mun
Stefán Jóhannsson félagsráb-
gjafi verða kallaður fyrir dóm-
stól I ávana- og flkniefnamálum
til aö gera nánari grein fyrir
fullyrðingum sinum um að
hasssala nái inn i framhalds-
skóla borgarinnar.
sem nauösynleg eru eftir að
mjólkursala var gefin frjáls.”
Gunnar sagði ab álagning á kjöt
I heilum skrokkum væri 6 pró-
sent, en verðlagsstjóri heföi lýst
þvi yfir aö 12 til 15 prósent álagn-
ing þyrfti að vera á þessum vör-
um, til að þær stæbu undir
rekstrinum.
„Hvernig smásalan er leikin
með þessari álagningu er bein-
linis þjóðarböl”, sagði Gunnar.
—EKG
Fullyröing Stefáns kom fram
á fundi með fréttamönnum fyrir
einum sex vikum, en hann mun
ekki hafa veriö beðinn um að
rökstyðja þessa skoöun sina
fyrir yfirvöldum fyrr en
—SG
Kallaður fyrir
fíkniefnadómstólinn