Vísir - 04.03.1977, Blaðsíða 4
LURIE
VERÐA OLL OLIUSKIPIN
SETT í SIGLINGABANN?
Milljónamæringurinn
Ravi Tikkoo, sem réði sér
hóp sjómanna frá
Grimsby til þess að ráð-
ast til uppgöngu á oliu-
skipið Globtik Venus í
höfninni í Le Havre, á nú
á hættu að sjómannasam-
tökin setji flota hans í
bann.
Leiötogar sjómannasamtak-
anna sögBu i gær, að alþjóölegt
bann yröi næsta skrefiö i til-
raunum til þess aö knýja út-
gerðina til aö greiöa filipps-
eyingum, fyrri áhöfn skipsins,
eftirstöövar launa, en sú
upphæö nemur alls 141 þúsund
sterlingspundum.
Filippseyingarnir höföu kyrr-
sett skipiö I Le Havre i 15 daga
meö verkfalli sinu, þegar
Tikkoo réöi stóran hóp grimsby-
sjómanna, sem hann flutti til Le
Havre. Geröu þeir herhlaup,
vopnaðir öxum og bareflum, og
rufu herkvi filippseyinga, sem
reyndu ekki að hindra uppgöngu
þeirra. — Filippseyingarnir
voru sendir heim.
Mannrétt-
índanefnd
S.þ. lœtur
Uganda
ekki til
sín taka
Bandarikjastjórn
harmaði i gær, að mann-
réttindanefnd Samein-
uðu þjóðanna skyldi ekki
samþykkja tiilögu breta
um rannsóknir á
meintum brotum gegn
mannréttindum i
Uganda.
Fulltrúi Bandarlkjanna haföi
stutt tillöguna, og ætlunin haföi
veriö aö bera hann upp til al-
mennrar umræöu á allsherjar-
þinginu.
Tillaga breta var lögö fram,
eftir svipleg dauösföll Luwum
erkibiskups I Uganda og tveggja
ráöherra. Yfirvöld i Uganda
höföu kært mennina þrjá fyrir
landráð, en skýröu slöan frá þvf,
aö þeir heföu farist I bifreiöaslysi.
Kirkjunnar þjónar I Afrlku og
fleiri halda þvl hins vegar fram,
aö öryggissveitir Idi Amins for-
seta hafi tekiö mennina af llfi.
Litlifílahirðirinn
Kate litla Roberts heyrir til
einni stærstu fjölleikahúsfjöl-
skyldunni I Bretlandi. Á sllkum
heimilum veröa allir aö starfa
eitthvaö, og þótt Kate sé ekki há
I loftinu hefur hún sínum skyld-
um aö gegna. Hún hiröir fils-
ungann, Maureen, og er hérna
aö hjálpa Maureen niöur af
vagninum á sinn rétta staö.
Flugvélin
splundrað-
ist á tind-
inum
38 ungir kadettar ítalska
flotans fórust í flugslysi
i gærkvöldi ásamt yfir-
manni sínum og fimm
f lugliðsforingjum.
Flutningavél flughersins, sem
flutti þá, hrapaöi og rakst á fjalliö
Monte Serra (918 metra hátt),
sem er um 16 km austur af Pisa.
Hrapaöi vélin skömmu eftir flug-
tak af herflugvellinum I Pisa.
' Sjóliðsforingjaefnin voru i sinni
fyrstu æfingaflugferð, þegar vélin
rakst á tindinn á Monte Serra og
splundraðist. Flugvélin var af
gerðinni Hercules C-130, knúin
fjórum túrbinuhreyflum.
Björgunarsveitir leituöu I alla
nótt innan um brakiö aö líkum
hinna látnu, en enginn i vélinni
liföi af slysiö.
Varnarmálaráöuneytið I Róm
heldur þvi fram i fréttatilkynri-
ingu um slysið, aö skyggni hafi
verið ágætt, þegar þaö bar að
höndum. Landbúnaöarverka-
menn viö rætur fjallsins sögöu, aö
þoka heföi faliö tindinn. Sumir
sjónarvottarsögöust hafa séö vél-
ina hrapa. Einhverjir töldu sig
hafa héyrt hreyfla vélarinnar
sprengja óreglulega.
Vito Lattanzio, varnarmála-
ráöherra, sagöi að þetta væri
versta slys Italska flughersins á
friöartimum. Alls fórust 44 meö
flugvélinni.
Stjórnarkreppa
í Belgíu
i Belgiu biða menn nú
átekta eftir þvi að sjá,
hvort Leo Tindemann,
forsætisráðherra, boði
til nýrra kosninga, eða
hvort hann hyggst
stjórna i minnihluta.
Tindeman vék úr ríkisstjórn-
inni tveim ráöherrum RW-flokks-
ins, þegar þingmenn RW greiddu
ekki atkvæöi meö fjárlögunum. —
Eftir sitja þá I samsteypustjórn-
inni, kristilegir sóslalistar og
frjálslyndir.
Forsætisráöherrann sagöi neöri
deild þingsins I gær, aö hann
mundi gera frekar grein fyrir
brottvlsuninni og fyrirætlunum
slnum næstkomandi þriöjudag.
I gærkvöldi átti Tindeman
viöræöur viö aöra ráöherra
stjórnarinnar og fékk slöan
áheyrn hjá Baudouin konungi, en
ekkert hefur veriö látiö uppi um,
hvaö þeim fór á milli.
RW (Rassemblement wallon)
haföi hótaö þvi fyrr I vikunni aö
sllta stjórnarsamstarfinu, ef ekki
næöist samkomulag fyrir helgi
um aukna sjálfstjórn til handa
einstökum sveitarfélögum. — An
stuönings RW ráöa kristilegir
sóslalistar og frjálslyndir yfir aö-
eins 105 þingsætum af 212 I neöri
deildinni.
Ránið á Paul Getty
fyrir rétti í Róm
ttalskir dómstólar taka nú fyrir
áfrýjanir I máli nlu manna, sem
ákæröir voru I fyrra fyrir aö hafa
rænt Paul Getty III, afabarni
milljónamæringsins, Paul Getty,
sem talinn var rlkasti maöur
heims, meðan hann var enn ofar
moldu.
Paul Getty III var fimm mán-
uöi á valdi mannræningja uns
þeir slepptu honum I desember
1973 gegn 1 milljón sterlings-
punda lausnargjaldi.
Tveir menn voru dæmdir I
fyrra i sextán og átta ára
fangelsi, en sjö voru sýknaöir af
manhránsákærunum. Báöir hinir
sakfelldu hafa áfryjaö og ákæru-
valdið áfrýjaöi sýknudómunum.