Vísir - 21.03.1977, Page 4
Mánudagur 21. mars 1977
vigm
Þrjátíu ára valdatök
Kongressf lokksins voru
slitin upp um helgina eft-
ir stórsigra Janata-
flokksins i þingkosning-
unum, þar sem Indíra
Gandhi forsætisráöherra
varö að þola niður-
lægjandi ósigur í sínu
kjördæmi og náöi ekki
einu sinni kosningu á
þing.
Talning var rúmlega
hálfnuö, en þó var Ijóst,
að kosningabandalag
stjórnarandstöðuf lokk-
anna f jögurra haföi unniö
mikla sigra og á góðri leiö
meö að vinna fleiri.
Ferenginn i grafgötur um, að
það voru neyðarástandslögin og
handtökur stjórnarandstæð-
inga, sem urðu Kongressflokkn-
um að falli, en þau mál voru sett
algjörlega á oddinn i þessum
kosningum. bar við bættust
óvinsældir og beiskja vegna
harðrar framgöngu yfirvalda i
vönunaraðgerðum til lausnár
fjólksfjölgunarvandamálinu
Stjórnarandstaðan
í sigurvímu
begar ljóst varð, að hverju
stefni um úrslit kosninganna
var neyðarástandslögunum af-
létt i morgun, en fyrir þrem
mánuðum haföi Indira numið úr
gildi þyngstu frelsisskerðingar-
ákvæði þeirra til þess að eðlilegt
kosningastarf gæti farið fram.
Um land allt fögnuðu
stuðningsmenn stjórnarand-
stöðunnar og voru strax i nótt
komnir út á strætin til þess að
krefjast sigurs.
begar siðast fréttist af taln-
ingu, hafði Janataflokkurinn
hlotið 135 þingsæti, en
Kongressflokkurinn 109 og aðrir
flokkar minna. Hafði bilið litið
brúast frá þvi, að talið hafði
verið i 224 kjördæmum, en þá
hafði Jantaflokkurinn 122 þing-
sæti og Kongressflokkurinn 94.
Janataflokkurinn, kosninga-
bandalag fjögurra stærstu
stjórnarandstööuflokkanna,
hafði lofað kjósendum sinum að
hann mundi nema neyðar-
ástandslögin úr gildi, ef hann
kæmist valda. Beindi hann
spjótum sinum i kosningabar-
áttunni fyrst og fremst að
Indiru.
Indíra komst ekki
á þing
t Rae Bareli heimakjördæmi
Indiru tapaði hún með 55 þúsund
atkvæða mun fyrir Raj Narain.
Sonurhennar, Sanjay, sem bauð
sig fram i fyrsta skipti til þings i
nágrannakjördæminu, Amethi,
tapaði með 75 þúsund atkvæða
Indverjar felldu
Indíru Gandhi og
Kongressflokkinn
Indversk kona með barn á armi
gengur að kjörborðinu. — 320
milljónir voru á kjörskrá, og
kjörsókn var meiri en dæmi eru
áður um í Indlandi.
Indlra Gandhi á kosningafundi i
Uttar Pradesh, en þvl er nú
spáð, að stjórnmálaferill
honnar á Pnrlí) .
flokkurinn mundi tapa miklu af
meirihluta sinum. En fæstir
gerðu sér grein fyrir, hvilikt
hatur rikti meðal hinna 320
milljón kjósenda landsins.
Flestir voru þeirrar skoðunar
að Indira hefði gert skyssu,
þegar hún boðaði til kosn-
inganna fyrr i vetur. Viröist hún
hafa misreiknað sig illilega i út-
reikningum sinum. bótt
stjórnarandstaðan hefði verið i
molum með leiðtoga sina i
fangelsum fram á elleftu
stundu, tókst henni á aðeins 3
mánaða bili að skipuleggja
kosningabaráttuna. Indira hafði
reitt sig á að bættur efnahagur
landsins undir hennar stjórn og
aukið öryggi i innanlandsmál-
um kynni að vega upp á móti
óánægjunni vegna réttinda-
skerðingarinnar, en það brást
algjörlega. Hurfu efnahagsmál-
in alveg i skugga neyðar-
ástandslaganna.
bar við bættist siðan óánægja
með son hennar, Sanjay, sem
hefur verið litt þokkaður af
alþýðu vegna óbilgirni i fram-
kvæmd vönunaraðgerða og út-
rýmingu fátækrahverfa.
Úr fortiðinni skyggðu svo enn
á gömul hneykslismál vegna
spillingar stjórnmálamanna og
embættismanna Kongress-
flokksins, þar sem Indira sjálf
var ekki undanskilin.
mun. — brir ráðherrar úr stjórn
hennar náðu ekki kjöri, og eins
nokkrir aðstoðarráðherrar.
beirra á meðal voru Bansi Lal,
varnarmálaráöherra og Hari
Ram Gokhale, dómsmálaráð-
herra, en þeir voru meðal aðal-
hvatamanna neyðarástands-
laganna.
Raj Narain, sem fór með sig-
ur af hólmi i kjördæmi Indiru,
sagði, þegar úrslitin lágu ljós
fyrir þar: „Sigurinn yfir Indiru
Gandhi er sigur lýðræðis og
borgararéttinda.”
Valdaferill œttarinnar
á enda
Indira Gandhi (59 ára),
sem hefur veriö forsætisráð-
Jagjivan Ram, einn af leiötog-
um stjórnarandstöðunnar, sem
hefur áöur átt ráöherrasæti i
stjórnum Kongressflokksins
(27 ár ráöherra). Hann þykir
llklegastur til þess að að verða
forsætisráöherra þeirrar stjórn-
ar, sem viö tekur.
herra Indlands slðustu 11 ár, og
oft kölluö voldugusta kona
heims, hefur . óskað viðtals i
dag við forseta Indlands,
Fakruddin Ali Ahmed, og þykir
liklegt að hún muni biðjast
lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Eftir ósigur hennar og
sonar hennar, sem margir vildu
lita á sem arftaka hennar siðar
meir i stjórnmálum Indlands,
telja margir, að á enda sé runn-
ið valdaskeið þessarar voldugu
ættar. Heita má, að Indira og
áður faðir hennar, Jawaharlal
Nehru hafi stjórnað Indlandi
óslitið frá þvi landið öðlaðist
sjálfstæði 1947.
Menn búast við þvi, að Indira
játi ósigur sinn og flokks sins i
dag, og þvi er spáð, að stjórn-
málaferill hennar sé þar meö á
enda. Liklegastur arftaki henn-
ar sem leiðtogi Kongressflokks-
ins þykir vera Yeshwantrao
Chavan, utanrikisráðherra,
sem hélt velli i sinu kjördæmi
með miklum meirihluta.
Misreiknaði kjósendur
betta óskaplega tap Kongress-
flokksins og Indiru fer fram úr
þvi, sem menn höfðu búist við
fyrir kosningarnar. Að visu
blasti við vegna óvinsælda
neyðarástandslaganna og vön-
unaraðgerðanna að Kongress-
Chirac sigraði í París
Tveir frambjóðendur hægri flokkanna. T.v.
Jacques Chirac, sigurvegari kosninganna I
Parls, sem bar sigurorð af D’Ornano, (t.h.)
iðnaðarráðherra og frambjóðanda D’Estaings
forseta
Stjórn Valery Giscard
D’Estaing Frakklands-
forseta beið enn eitt
áfallið, þegar kosninga-
bandalag sósialista og
kommúnista sigraði
frambjóðendur hennar i
sveitar- og bæjar-
stjórnarkosningum um
helgina.
Eini meiriháttar sigurinn, sem
stjórnarmeirihlutanum féll I
skaut I þessari seinni umferö
kosninganna, vartviræður, þvi aö
þaö var sigur Jacques Chiracs i
Paris, sem er viss um aö verða
fyrsti borgarstjóri Parisarborgar
I heila öld.
Sigur Chiracs var þó um leiö
ósigur D’Estaings forseta, þvl aö
frambjóöandi hans, D’Ornano
iönaðarráðherra, varö að lúta i
lægra haldi. Raunar gekk fram-
bjóðendum hans viðast verr en
frambjóðendum Chiracs
D’Estaing forseti lét Chirac
vikja úr forsætisráðherraembætti
i fyrrasumar eftir ágreining
þeirra um leiðir til aö sigrast á
kosningabandalagi vinstri-
manna, sem hafa jafnt og þétt
aukið við sig fylgi i kosningum
undanfarinna ára — Vildi Chirac
boða til kosninga áður en kjör-
timabilið rynni út, en D’Estaing
ekki.
Eftir úrslitin i gær þykir útilok-
aö fyrir stjórnarflokkana annað
en biða með þingkosningarnar
þar til næsta ár, þegar kjörtima-
biliö rennur út og vonast til þess
.að bæta stöðu sina áöur. — Lita
flestir á sveitarstjórnarkosning-
arnar sem könnun á þvl, hvernig
flokkunum mundi vegna i þing-
kosningum.
begar siðast fréttist af talningu
leit út fyrir, aö kosningabanda-
lagið bætti viö sig 1% frá þvi um
helgina fyrir viku og fengi 52%,
meöan hægri flokkarnir sætu enn
með 46%.
Vinstrimenn eru greinilega i
meirihluta I landinu”, sagði
Francois Mitterrand, leiðtogi
sósialista, sigri hrósandi, en
minnstu munaði, að hann sigraöi
D’Estaing i forsetakosningunum
1974. Hann sagði það „mjög vel
hugsanlegt og jafnvel liklegt” að
kosningabandalagið ynni sigur i
þingkosningunum að ári.
Af stjórnarinnar hálfu varð
enginn til þess að andmæla full-
yrðingum Mitterands, enda sitja
sósialistar og kommúnistar I
meirihluta i tveimur þriðju hinna
221 stærri borga og bæja I Frakk-
landi eftir úrslitin.
Kosningabandalag sósíalista og kommúnista með meirihluta í 2/3
stœrri borga og bœja í Frakklandi. — Spáir ekki góðu fyrir
stjórnarflokkana i þingkosningunum að ári.